Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

föstudagur, desember 18, 2009

Ég Líka.



Hvernig var þetta aftur? Maður kaupir sér til dæmis banka með peningum sem eru ekki til. Rífur þá peninga sem eru til úr honum og kemur þeim úr landi. Láta gamla seljandann taka síðan galtómann bankann aftur, og gera síðan kröfu í þá peninga sem koma stuttu síðar inn með tilheyrandi lánum og þjóðargjaldþroti. Jú var þetta ekki einhvernveginn svona. Ps. Og finnast ekkert athugavert við þetta.



Immagaddus segir.

Vinnumálastofnun.







Skiltinu þar sem stóð á Arbeit Macht Frei, við aðalinngang Auschwitz hefur verið stolið.
Líklegasta skýrirng á stuldinum eru Nýnasistar.

En Immagaddus veit betur.

Forstjóri Vinnumálastofunar fór í fyrradag við annann mann til Póllands og stal skiltinu.
Verður það síðan sett fyrir framan aðalinngang Vinnumálastofnunar við Engjateig.
Í þeirri von um að Peppa atvinnulaust fólk upp við atvinnuleit.


Immagaddus segir...............

Stúfur.














Heyrst hefur að Stúfur ætli að yfirgefa
hina Jólasveinanna eftir þessa Jólavertíð.

Mun það aðallega vera vegna þess að hann vill
frekar vera á ferðinni yfir sumartímann.
En þá eru mínípils mikið í umferð.



Immagaddus segir................

Afsökunarbeiðni.

Ég biðst innilegrar afsökunar á póstinum hér fyir neðan.

Það á auðvitað að vera stórt S í Stígamót.


Immagaddus segir..............

Jólin.







Styrkjum stígamót.

Berjum konu fyrir Jól.


Immagaddus segir..............

fimmtudagur, nóvember 19, 2009

Einu sinni var.






Átti einu sinni Lífsförunaut.

Varð að slátra því.




Immagaddus segir............

fimmtudagur, ágúst 27, 2009

Stjórnarskrábreyting.

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

Allt gott og blessað um það.

En hvað þýðir orðið Stjórnarskrábreyting?

Orðabók Immagaddusar segir eftirfarandi.

Stjórnarskrábreyting. ( kv.et.na.lo.sa.).
( Teyjanlegt ).( Loðið ). ( Óstjórnarskrálegt ).
( Óstjórnar skrá og lekt ). ( Túlkunaratriði hverju sinni fyir sig ).

En er samt:

Þegar lítill hópur hagsmunaaðila fær stærstan hluta af kökunni á kostnað meirihlutans.


Immagaddus segir...

föstudagur, ágúst 07, 2009

Bissnisstækifæri.










Er að spá í að opna smurþjónustu.
Nei ekki fyir bíla.
Heldur fyrir fólk með brauð.

Er að spá í að verðleggja eftir sneiðum.
Þverskorin brauð verða ódýrari.
Gróft brauð dýrast.

Hvaða viðbit ætti ég að velja.

Hmmmmmm?

Þeir sem hafa álit á því.

Mega gjarnan halda því fyrir sig.


Immagaddus segir.............

mánudagur, júní 22, 2009

Vaxandi stofn.







Nú ku Rjúpnastofninn vera í
það mikilli uppsveiflu, að ef svo
heldur áfram eftir að þessum friðunarárum líkur.

Getum við farið að nota klasasprengur við Rjúpnaveiðar
fyrir árið 2018.


Immagaddus segir...........

Loksins frjáls.

Raddirnar í höfðinu á mér sögðu mér að
hætta hjá sálfræðingnum mínum.

Okkur líður strax betur.




Immagaddus segir.............

Smá ferðatipp.








Þeir sem ferðast til Tyrklans.

Einu Pizzurnar sem þeir bjóða uppá er " Calsone "




Immagaddus segir.............

Icesave part lll.






Al Queda samtökin hafa nú gefið frá sér
tilkynningu vegna reglna um Icesave samningsins
innan Evrópu.

" Enginn hryðjuverk verða framinn næstu 5 ár
vegna taps. "





Immagaddus segir.................

Spámenn?






Stonehenge var reist sextánhundruð árum
fyrir Krist.

Og þá koma spurningarnar.

1. Hvernig vissu menn þá að Kristur myndi koma?

2. Vissu menn ekki, að Kristur,fæddur einhversstaðar nálægt Bethlehem,
Árið NÚLL.
Ætti ekki sjéns á því að skreppa til Amesbury í Wiltshire í England.
Eingöngu til þess að líta á það?

3. Til hvers voru þeir þá að reisa það fyrir hann?



Immagaddus segir.............

Áríðandi orðsending!
























Eftirfarandi fréttatilkynning hefur nú borist frá
Ferðamálaráði Snæfellsbæjar.

"Nú er sá tími árs að stór hætta fyrir þá sem ganga á snæfellsjökul"

Og er það aðallega vegna hnattrænnar hlýnunar.

"ÞAÐ ER EKKI OKKUR AÐ KENNA AÐ JÖKULLINN ER ORÐINN
SVONA DJÖFULLI LÍTILL!!!!"

Sagði Snær Óttar Ísleifsson, Ferðamálafulltrúi Snæfellsbæjar.

"Djöfull flott"

Segir hinsvegar Fulltrúi Sjúkrahúss/Dekkja og Vélaverkstæðis/Hárgreiðslustofu/Flugvallar og Hafnastjóri í Stykkishólmi.

Sem sagði fréttamanni Immagaddusar að Öklameiðsl vegna Snæfellsjökuls hali inn meira fé síðsumars en öll smábátaútgerð í Gunnhólmsvíkurfjalli samanlagt.

Ekki hefur náðst í Hildigunni Benjamínsdóttir vegna málsins.

Og í guðanna bænum ekki spyrja mig af hverju.

Ps.
Þeir sem hafa gengið óvart á Snæfellsjökul og slasað sig.
Geta haft samband við Lögmannsstofuna Lort.
Og reynt að fá þá til að semja um bætur.



Immagadus segir....................

Icesave part ll.


























Verður þetta ímynd okkar
þegar fólk gúglar " Icesave " ?



Immagaddus segir...............

Icesave.








Að reyna að borga Icesaverikninganna,
er eins og að reyna að mjólka dauða kú.


Immagaddus segir...................

föstudagur, júní 19, 2009

Ísland.

Ísland
er að sökkva
í það mesta skuldafen
sem nokkur
vestræn þjóð
hefur
nokkkvurntíma
þurft að sökkva
áður.



Ég segi og hugsa.
Atvinnuleysi.
gerum eins og sá
gamli.

Já.
Gerum eins og Hilli gamli.
( fyrir utan það að fara
útí vonlaust stríð)

Þegar Þýskaland varð
gjaldþrota eftir fyrra srtíð.
Lét Hilli gamli gera þýskaland flott.
Hann lét avinnulausa sjá um að
reisa innviði landsins upp aftur.
Bjó til eftirspurn eftir innlendum
iðnaði og starfskrafti.

Við getum gert slíkt hið sama.
Við höfum ekki efni á því að missa
10-20% þjóðarinnar á atvinnuleysisbætur og síðan 5-15% af ungu vinnuafli úr landi.

Ríkið...Þar að segja ég og þú.
Eigum miklu frekar að borga þeim sem vilja vinna einhver 40.000 ofan á atvinnuleysisbæturnar til þess að sjá um þjóðvegina,flugvellina, sópa götur og svo framvegis.

Þeir sem ekki vilja vinna nú á tímum og hafa verið á atvinnuleysisspenanum í mörg ár.
Skikkum þá í vinnu!

Án þess að hljóma sem rasisti. Þeir útlendingar sem hafa verið hér og eru ekki orðnir ríkisborgarar. Eiga eftir sinn lögboðna rétt á bótum að fara til síns heimalands og sækja bætur þar. Ekki hér.
Sorrí.

Okkar litla þjóð hefur ekki bolmagn til aðgreiða endalaust bætur til þeirra sem ekki hafa vinnu, og ætla sér kannski aldrei aftur út á vinnumarkaðinn.

Reynum að virkja þá þekkingu sem við höfum í landinu.

For kræjing át lát!!

Við erum Íslendingar við getum þetta.

Verum Íslendingar.



Immagaddus segir....













Táknræn mynd... HUH!

Ísland!

Ó!

Hvar ert þú, mín Íslenska þjóð?

Sú þjóð sem fyrr um var.

Sú þjóð sem rétti alþjóða samfélaginu löngutöng,
og stækkaði efnahagslögsögunaí 200 mílur.

Sú þjóð sem bar sitt stolt í svita síns andlits.

Hvar er sú þjóð í dag??

Við höfum alltaf haft svolítið fyrir því að búa hér.

En nú.
Öll okkar tækni og allar okkar auðlindir.

Kæra þjóð.
Virkjum okkur sjálf, hættum að rífast, hættum að borga erlendum aðilum, og byggjum upp.
Við erum stórasta land í heimi.

Virkjum okkur.


Immagaddus sgir..........

Gjaldþrota!!













Ég bara spyr.

Af hverju að reyna einu sinni að semja um ICESAVE?

Af hverju förum við ekki þá leið sem Argentína gerði?

Lýsum yfir þjóðargjalþroti og neitum að borga.

Látum alþjóðasamfélagið fá löngutöng hægri handar.
Og segjum. Við Borgum ekki!

Þetta alþjóða samfélag, sem er í ekki minni skít en við, kemur til með að
" Fyrirgefa " okkur á einum 5- 8 árum.

Fyrir það eitt að borga ekki.

Og næstum normal gjaldeyrisviðskipti komast í gand.

Ef hinsvegar við borgum ..Icesave, ruglið.kemur það til með að kosta okkur sjálfstæðið.

Ég segi.
Fokk you punks!!

Og við borgum ekki!

Við höfum Orkuna, Fiskinn og Íslendinginn.

Við vinnum okkur út úr þessu!

En ekki með Icavesamningi.

Immagaddus segir.......

föstudagur, maí 01, 2009

mánudagur, apríl 20, 2009

Hvað?

Framkvæmdarstjóri Samfylkingar: Nýjar og ógeðfelldar aðferðir í kosningabaráttunni

Innlent 20. apr. 2009 14:36

Framkvæmdarstjóri Samfylkingar: Nýjar og ógeðfelldar aðferðir í kosningabaráttunni

Afbakað af Vísi púnktur is í dag.

Framkvæmdastjóri Samslykjunnar hefur sagt af sér.

Uppsögnin kemur í kjölfar þess að rósarunni var rifinn upp
með rótum í Eden um helgina.

Á meðfylgjandi mynd sýnir Framkvæmdastjórinn, flokknum
runnann sem olli afsögninni.

Innannbúðamenn Samslykjunnar hafa haft í nógu að
snúast síðustu mínúr....
Sem hefur aðallega snúist um það að koma rósunum í vatn.

Og Stjóranum í betri föt..



Immagaddus segir...................

Að Ég held.

Það er ekki nema von að Járniðnaður
á Íslandi hafi aldrei náð sér almennilega á strik.

Bara það að málshátturinn hljóði svona.

Hamra skal járnið á meðan það er heitt.
Segir það allt.

Og hvenær er heitt á Íslandi?

Svona 30 til 50 daga á ári.

Allt of lítill tími fyrir Járniðnaðarmenn
til að geta gert eitthvað að gagni.



Immagaddus segir...............

Kostningar 2009.

Já eitthvað kosta nú þessar kosningar.

200 til 300 millur....

Hef ég heyrt.

En hvað um það...

Ég var að spöklera.

En.

Því miður veit ég ekki nóg um það sem ég
er að fara að segja.

En hvenær svosem hef ég látið það stoppa mig.

En var semsagt að spöklera.

Ef allir sem kjósa skila auðu.

Hvað gerist þá?

Er það ekki svoleiðis að þá er bæði búið
að hafna öllum stjórnmálaflokkum,
og því fólki sem er á þeirra listum?

Og ef það er svoleiðis.

Þarf þá ekki að kjósa aftur?

Og þá með þeim formerkjum að.

Enginn af þeim flokkum sem buðu fram,
í fyrri kosningunum mætti bjóða fram aftur,
Því þeim var hafnað.

Svo og að það fólk sem bauð sig fram í þeirra
nafni mætti ekki heldur bjóða sig fram aftur né
stofna eða ganga í nýjann stjórnmálaflokk,
og bjóða sig fram í þeirra nafni.

Því þjóðin hafnaði bæði flokkunum og fólkinu.

Verða þá kannski bara til hæfir stjórnmálaflokkar og hæft fólk
sem fær virkilegt tækifæri til þess að geta komið okkur á
réttan kjöl.

Ég væri alveg til að borga aðrar 200 til 300 milljónir í aðrar
kosningar ef þessar pælingar gætu orðið raunin.

Það er fórnarkostnaður sem ég er til í að borga til
að koma gömlu spilltu kerfi frá völdum.


Ps.

Þessar pælingar eru samt bara pælingar.
Við skilum aldrei öll auðu.

Það eru alltaf til þeir sem kjósa sjálfan sig.
Sennilega af því að þeir halda virkilega að þeir séu
hæfir til starfans.

Svo og nánasta fólk og fjölskilda þeirra. ( Eða fjölskylda ).
Því þau halda virkilega líka að sá sem er í
framboði sé hæfur.



Immagaddus segir.........................

Kreppuráð.













Kjósum öll Ástþór!

Því þá koma menn að utan....

Sérfræðingar...

Og setja alla þjóðina í spennitreyjur og síðan á Geðveikrahæli.

Þá þarf enginn að vinna framar...
Þrjár til fimm máltíðir á dag. ( Með kaffinu).
Lyf og heilbrigðisþjónusta ókeypis.
Allskonar föndur, ferðir,ókeypis bleyjur,
líkamsrækt,sund og sjónvarp á kvöldin.

Á Geðveikrahælinu þurfum við ekki að borga af lánum.
Á Geðveikrahælinu þurfum við ekki að kaupa inn.
Á Geðveikrahælinu þurfum við ekki að þrífa.
Á Geðveikrahælinu þurfum við ekki að þvo af okkur.
Á Geðveikrahælinu þurfum við ekki að elda.

Og svo framvegis.

Og hvað er að því að tékka sig út af núverandi Geðveikrahæli og
inn á það næsta?????


Immagaddus segir.................

laugardagur, apríl 18, 2009

Ég held svo margt.

Eitt sem ég hef verið að pæla í síðustu mánuðina er.
Hvort Pizzan hafi verið fundinn upp til þess að
það væri hægt að borða græna papriku?

Því græn paprika er ekki góð með neinum öðrum mat.




Immagaddus segir.........................

fimmtudagur, febrúar 26, 2009

Gaman að segja frá því.

Allt er best í hófi.

Allt er best í hófi. mbl.is/Golli


Langir vinnudagar geta haft slæm áhrif á andlegt heilsufar

Langir vinnudagar geta haft neikvæð áhrif á geðheilsu fólks og mögulega leitt til elliglapa. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem finnskir vísindamenn fóru fyrir.

Vísindamennirnir rannsökuðu 2.214 opinbera starfsmenn í Bretlandi á miðjum aldri, að því er segir á vef breska ríkisútvarpsins. Þeir komust að því að minni þeirra sem unnu meira en 55 klukkustundir á viku væri verra en hjá þeim sem unnu 40 stunda vinnuviku.

Rannsóknin er birt í vísindaritinu The American Journal of Epidemiology og þar segir ýmis vandamál hafi komið upp hjá þeim sem unnu mikið, t.d. varðandi skammtímaminnið og að muna orð.

Dr. Marianna Virtanen, sem fór fyrir rannsókninni, segir að ókostirnir við að vinna yfirvinnu sé eitthvað sem fólk verði að taka alvarlega.


Ég verð nú að segja að það er alltaf gaman að lesa fréttir sem koma manni ekkert við.


Immagaddus segir.............

fimmtudagur, febrúar 19, 2009

Einu sinni áður var.

Ég er ná á þeim aldri.

Að ég man þegar það var vandræðalegt á kaupa smokka.

Þá fengust þeir bara í Apótekum.
Og þetta var virkilega feimnismál.

Og sem unglingur lærði maður snemma,
í hvaða Apóteki maður gat skorað smokka.

Það varð að vera Apótek þar sem Apótekaraninn átti.
Í þá daga. Karlmaður.

Og það varð að vera Apótek þar sem hann vann sjálfur.

Því ef hann vann þar sjálfur, hleypti hann konunum sem
unnu hjá honum reglulega í mat og kaffi, og þá fóru þær eitthvað.

Þá fyrst gat maður keypt smokka.

Auðvitað seldi kallinn strákunum smokka með bros á vör,
og kankvíslega kinkaði kolli og hló.

Misvelútilýtandi kerlingarnar...Og stundum ungar stelpur,
var ekki endilega það sem maður vildi láta afgreiða mann
í þessum hugleiðingum.

Og.

Talandi um það að þegar ég var unglingur.

Þá var nú beinlínis bannað að selja unglingum getnaðarvarnir.

Því það gæti hvatt til kynlífs.

( Pása vegna hláturs. ).

Þvílíkt brjálæði.

En nú eru sem betur fer breyttir tímar.

Smokkar fást allstaðar.

Ég meina.

Þeir eru á milli Pezkallanna og tyggjósins við hvaða
búðakassa sem er.

Núna getur maður borið höfuðið hátt.

Gengið hnarrreystur inn í næstu verslun.

Beðið um með hárri rödd. " Ég vil fá rifflaða smokka með kókosbragði og extra sleipuefni, og þeir verða að glóa í myrkri!".

Passið ykkur þá bara að vera ekki inn í fornbókaverslun eins og ég.


Immagaddus segir.............

Þjóðin?

Er Þjóðinn kannski Ólafur?


Ég bara spyr.



Immagaddus segir...............

mánudagur, febrúar 16, 2009

Bara.









Þarf að ræða þetta eitthvað????


Immagaddus segir................

föstudagur, febrúar 06, 2009

Ljótur Brandari.










Foreldrar athugið!!!!

Gerið börnin sýnileg á veturna.

Landsamband Barnaníðinga.




Immagaddus segir...............

Broslegt.




Ef ég ætti kamp, þá mundi ég brosa í hann.

Hef verið að sjá undanfarið auglýsingar frá
Glitni, þar sem þeir bjóðast til þess að láta
þjónustufulltrúa sína sjá um heimilsbókhald
fyrir fjölskyldur, sem stofna og eða eru hjá þeim
í viðskiptum.

Eru þeir ekki að djóka?

Ég myndi ekki einu sinni treysta þeim til þess að fara
út með ruslið fyir mig.



Immagaddus segir.............

Sagan endalausa.





















Faldir fallnir,brotinn löm,
fjármunir og Baugur.
Eftir situr þjöðin gröm,
sem grár og gugginn draugur.

Fláráð Davíðs augun ljóma,
Fyrsta að Baugur er nú burt.
Mannskepna með engan sóma,
Ætlar sér að verða um kjurt.

Enginn saklaus,allir sekir,
vegna bréfa skítinna,
Allir bankar, sjóðir lekir,
hverfa í skuldahítinna.



Immagaddus segir......................

fimmtudagur, febrúar 05, 2009

Í Góðærissonagarði.




















Liverpool var slegið út úr bikarkeppninni í gærkveldi.
Og ekki nóg með það heldur af einhverju bleyjubarni.

Jæts hvað mínir menn hafa sökkað feitt eftir áramót.


Immagaddus segir..................

miðvikudagur, febrúar 04, 2009

Öryggisráðstafanir.

Lést þegar farsími sprakk í brjóstvasa

mynd
Myndin tengist ekki þessu bulli.

Maður í Kína lést á dögunum eftir að farsími hans sprakk í brjóstvasa hans.

Þannig að í guðanna bænum.

Tæmiði innhólfið ykkar reglulega.
Ekki láta skilaboðin hlaðast upp, sérstaklega ef þau eru á Kínversku,
því þau taka extra mikið pláss.


Immagadus segir............

Hvað kemur til með að gerast?

















Veit ekki alveg núna hvernig þeir koma til
með að Haga sér. Báðir komnir með Baug´ undir augun.
En þeir ættu nú ekki að svelta með öll þessi Aðföng.
Síðan lesa þeir um sig í næsta Magasíni,að þeir
þurfi Grouphug, til þess að Euroshoppan gangi upp.


Immagaddus segir............

Jæja.

Jón Ásgeir: Pungspark frá Landsbankanum

mynd
Frétt á visi.is í dag.

Ókei. Landsbankinn sparkaði í punginn á þér.

En þú og þínir líkar eru búnir að vera að Rí** allt og öllu í svo langann tíma í ***gatið
að það hlaut að koma að þessu.




Immagaddus segir..................

mánudagur, janúar 19, 2009

Hvar erum við?

Ekkert gott
væri án ills.

Ást án haturs.

Gleði án sorgar.

Enginn Guð
án Djöfuls.

Stöndum við ein?

Eða er æðri máttur?

Æðri máttur sem
skapaði okkur í sinni mynd?

Auðvitað er Guð til.

En hann er bara ekki
alveg eins og við viljum
hafa hann.

Hann er nefnilega
ekki allur þar
sem hann er séður.




Og hann veit af biturri
reynslu að hann er ekki
alveg fullkominn.

Í reynd er hann bæði Guð og Djöfullinn.

Annað væri aðeins firra.

Hann skapaði okkur í sinni Mynd.
Og þá með öllum þeim annmörkum sem því fylgir.

Guð er ekki sá sem skrifað er um í Biblíunni nema að sumu leiti.
Biblían er trúarrit skrifað og ritskoðað af hinum ýmsum kirkjulegum
deildum gegnum aldirnar, og hefur löngum verið notað sem hrikalegt afl
til stjórnunar á mannfólkinu.

Ýmsar útgáfur eru til af Biblíunni.
Og fer þá eftir hvaða trú maðurinn aðhyllist.

Gyðingar,Múhameðstrúarmenn,Kristnir,Búdda,Hindúar ofl.
Allir trúa.
Allsaðar er gott og illt að berjast.

Allstaðar eru menn sem skýla sér á bak við sína trú.

Menn.

Sem kemur aftur að því sem ég held.

Að Guð og Djöfullinn, eru í reynd sama veran.

Guð gaf okkur frjálsan vilja.
Guði sé lof fyrir það.

Sem skýrir syndafallið að nokkru leiti.

Guð sagði við Adam og Evu í árdaga Edens.
Et eigi af skilningstrénu, því ef þið gerið það,þá
munið þið ekki vera lengur í náðinni hjá mér.

Sem þýðir einfaldlega.
Ég lofa ykkur endalausri hamingju ef þið farið eftir
reglunum sem eru inni í garðinum, en ef þið gerið eitthvað annað,
þá er ekkert víst að grasið sé grænna hinum megin.

En af því að við vorum síðar mynnt á
að við höfum frjálsan vilja þá brutum við reglurnar.

Og komust að því að grasið var ekkert grænna hinum megin.
En þá var það orðið of seint.

Svona sirka sömu reglur og þegar við stofnum til slagsmála á
bar eða borgum ekki reikninginn og förum í straff
og fáum aldrei að koma þangað aftur.

Og enn þann dag í dag höfum við ekkert lært af reynslunni.

Því Guð er í reynd alveg eins og við þegar við
erum upp á okkur versta.

Smásmugulegur,móðgunargjarn,hefnigjarn,tilætlunarsamur og langrækinn.

Samanber Sódómu og Gómorru. Og síðan Flóðinu mikla.

Hann varð virkilega svo pirraður á okkur að hann gerðist
mesti fjöldamorðingi sem sögur fara af.

Ef það er ekki djöfullegt þá veit ég ekki hvað.

Hann skapaði okkur í sinni mynd.

Einhverjir eru enn að reyna að komast inn í Eden.
Restinni er alveg sama um Eden og vilja hafa þennan
yndislega frjálsa vilja og lifa eftir honum.

Af þessu tvennu.
Eru einhverjir sem líta svo á að Guð hafi skapað okkur í sinni mynd.
Og þar af leiðandi er líkami þeirra hof Guðs.
Og Líkami okkar er hof Guðs, því hann skapaði okkur í sinni mynd.
Og þeir sem eru því fylgjandi fara vel með hof Guðs og halda að þeir séu
betri en við hin.

Við hin vitum sjálfsagt að líkami okkar er hof Guðs. en okkur er í sjálfu sér
sama, því við höfum kosið að ganga þannig um hofið, að það er ekki þangað til að
sprungur fara að myndast í því að við förum að spá í að kannski höfum við ekki
alveg viðhaldið því eins og vera ber.

Himmnaríki og Helvíti:

Guð er Djöfullinn.
Eins er Djöfullinn, Guð, sama persónan.

Eins manns Himmnaríki er annars manns Helvíti.
Eins manns Helvíti er annars manns Himmnaríki.

Himmnaríki og Helvíti eru virkilega til.

Þau eru bara hvergi til á korti.

Himmnaríki og Helvíti eru innra með okkur öllum.

Og við höfum val.
Frjálsan vilja.

Við veljum okkar skapadægur.

Og það kemur því ekkert við hvaða trú við aðhyllumst.

Það eru nefnilega til svona almennar reglur.

Dæmi um almennar reglur eru til dæmis boðorðin 10.
Nema kannski þessi fyrsta.

Maður á nefnilega alltaf að hafa hugann opinn.

En restin segir sig sjálf.

Vera góður við mömmu,pabba og vinina.
Ekki stela,ljúgja,drepa,ríða framhjá,éta of mikið,öfundast
og svo framvegis.

Þetta er allt kommon sense, svo ég sletti nú aðeins.

Þær stéttir sem hafa síðan haft með það að gera hafa í aldanna rás.
Breytt þeim ritningum sem fjöldinn á að fara eftir.

Tökum til dæmis frjásemisguðinn Pan.

Hálf geit hálfur maður.
Satan er skuggalega líkur Pan.

Það voru jú til myndir af Guði.
Því ekki að taka eitthvað líkneski og búa til
algera andstæðu við það himmneska.

Einhvern með horn,klaufir,hala.
Og eftir nokkurn tíma varð til Djöfull.

Sem er í reynd svolítið fyndið því upphaflega var Pan.
Tilbeðinn sem guð frjósemis og ástar.

En það er manninum líkt að í valdi sínu og til þess að
hafa stjórn á lýðnum, að hagræða aðeins,búa til og falsa.
Að koma ár sinni það vel fyrir borð að enginn annar komist að.

En síðan er til Guð þegar hann er í virkilega góðu skapi.

Tek sem dæmi.

Þegar hann tekur sig til og málar hin fullkomnustu sólsetur og
sólarupprásir.
Það er alveg sama hversu mörg svoleiðis málverk frá honum ég hef séð,
Ég verð aldrei leiður á þeim.

Lætur lítið barn brosa í fyrsta skipti framann í heiminn.
Ekkert fallegra til.

Læknar og líknar þjáðum sálum, og lætur lækna og vísindamenn
standa eftir agndofa.

Og síðast en ekki síst, lætur okkur líða vel augnabliki áður en við förum til hans.

Mín barátta:


Guð og Djöfullinn berjast um mig daglega.
Og ég tala daglega við þá báða.

Yfirleitt vinnur Guð. sem betur fer.
En stundum vinnur Djöfullinn.
Og þá er ég nokkurn tíma að sleikja sárin.
Og fer í sjálfsskoðun.

En það er sennilega vegna þess að ég leyfi honum að vinna.

Ekki einu sinni Guð getur sigrað Djöfullinn í sjálfum mér
þegar ég ljæ Djöflinum liðs.

Guð hefur gefið mér frjálsan vilja.
Guð hefur sýnt mér fram á hvað ég get gert.

Djöfullinn hefur gefið mér frjálsan vilja.
Sú leið sem hann sýnir mér er ekki eins túristavæn,
en á tímum fer ég hana samt.

En þegar ég er orðinn leiður á þeim holótta innantóma vegi.
Fer ég inn á slétta kaflann aftur og vona að skemmdirnar
á sálartetrinu og hofinu séu ekki of miklar.

Ég á eftir að berjast mörgum sinnum aftur á þessari ævi minni.

Þakka þeim báðum þegar það er vopnahlé.

Annars myndi ég ekki lifa þetta af.


Immagaddus segir..............

Í kvöld.



















Jæja þá ræðst það víst í kvöld hvort Liverpool nær toppsætinu aftur.




Immagaddus segir.................