Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

miðvikudagur, mars 08, 2006

Meistaradeild.

Ætlaði að byrja pistilinn á að líkja Liverpoolleik við kvennaknattspyrnuleik.
En við nánari tilhugsun hætti ég snarlega við það.
Það eru skoruð mörk í kvennaboltanum.

Annars vona eg það svo innilega að Púllararnir mínir sigr í kvöld.
Þeir bara verða að verða evrópumeistarar, þó ekki nema til að pissa Mohytos off.
Afsakið en ég kann ekki að stafa mohítoss.
Já!
Og á að gera eitthvað vesen!?
Nei ég hélt ekki.

Immagaddus segir.......................

Topp sjónvarpsefni:

Alltaf jafn gaman þegar að nýtt sjónvarpsefni lítur dagsins ljós.
Eins og til dæmis í gær. Sá maður Felix Bergson graðga í sig fisk meðan að ljóshærð kerling blaðraði án afláts við hann um ekki neitt og gjóaði augunum ákaft niður á matardiskinn hans. Allt í beinni útsendingu á milli 6 & 7. Á skjá einum.
What a consept. Að engum öðrum hafi dottið þetta í hug áður..

Immagaddus segir.......

þriðjudagur, mars 07, 2006

Heimsbókmenntirnar.

Sá þrúgur reiðinnar áðan.
Ansi tilkomumikið verk.
Var í Bónus Skútuvogi. Við grænmetið...( Nei ekki Madam XXX ) Heldur við grænmetiskælinn.
Þar sem liðlega hálffimtug kona var annaðhvort með það óþekkasta barn sem um getur eða þá að þetta hefur verið 5 ára strákur, andsetinn af pitbull Terrier frá helvíti.
Sem getur þótt alveg eðlileg skýring á þessari stundu.
En eftir að hafa sér konuna sleppa sér alveg þegar barnið lagðist á beit í vínberjunum.
Komst ég að því að þetta var 5 ára pitbull Terrier sem var andsetinn af strák.
Þetta var bara gaman.
Eða þangað til að það var kominn það stór hópur áhorfanda þá fór konan út með púkann.
Flott að sleppa þessum lausum á virkjunarsinna.

Immagaddus segir....................

Nokkrir gullmolar úr læknaskýrslum.

Að höfðu samræði við lækni,féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.

Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið.

Daginn fyrir innlögn, borðaði hún kvöldverð á eðlilegan máta með kjötbollum.

Fékk vægan verk undir morgunsárið.

Húðin var rök og þurr.

Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið sitt í hvora áttina í byrjun desember.

Móðir getur látið barn sitja með því að setja fæturna í hring.

Sagan er fengin hjá uppgefnum ættingjum.

Sjúklingur á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur.

Sjúklingur var í morgun að drekka te og borða maís þegar bar að mann sem heitir Kristmundur.

Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt.

Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði.

Við rectal exploration fannst stækkaður skjaldkirtill.

Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð.

Það sem fyllti mælinn var þvagleki.

Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa.

Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.

Þessi maður veit ekkert um skyldleyka í ætt.

Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann.

Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat og var kominn með lystarstol í hádeginu.

Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið í meira en eitt ár.

Sjúklingur hefur skilið hvítu blóðkornin eftir á öðrum spítala.

Sjúklingur hefur verið mjög niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig 1983.

Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.

Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði.

Immagaddus segir...

sunnudagur, mars 05, 2006

25. ástæður fyrir notkun áfengis í vinnuni.

1. Það er góð ástæða fyrir að mæta yfirleitt til vinnu.
2. Áfengi dregur úr stressi og spennu eða virðist allavega gera það.
3. Áfengi gerir öll samkipti opinskárri.
4. Þegar fólk er góðglatt, kvartar það síður yfir lágum launum.
5. Fjarvistum vegna timburmanna fækkar.
6. Starfsmenn segja yfirmönnum sínum hvað þeim finnst, ekki það sem þeir vilja heyra.
7. Maður þarf ekki að leita að bílastæði, því enginn kemur á bíl í vinnuna.
8. Fundir verða kannski ekki árangursríkari, en hinsvegar mun skemmtilegri.
9. Það eykur starfsgleði fólks. Þeir sem eru í vondu starfi láta það sér í léttu rúmi liggja.
10.
Frídögum fækkar, þar sem fólk vill heldur mæti í vinnuna en að hanga heima.
11. Samstarfsfólkið lítur mun betur út.
12. Maturinn í mötuneytinu virðist girnilegri.
13. Yfirmenn eru ósparir á kauphækkanir, þegar þeir eru í því.
14. Aukin bjartsýni eykur tiltrú fólks á fyrirtækinu.
15. Það er allt í lagi að ropa á fundum.
16. Starfsmenn vinna lengur. Það er engin ástæða fyrir því að fara á barinn á leiðinni heim.
17. Starfsfólkið er ófeimnara að viðra hugmyndir sínar.
18. Vinnan er bærilegri eftir 1-3 bjóra.
19. Minni líkur á að fólk helli sig fullt í hádeginu.
20. Auknar líkur á að þú sjáir einhvern nakinn.
21. Bætt samkipti við Rússa.
22. Ræstingaskápurinn kemur loksins að gagni.
23. Kaffidrykkja minnkar,maður verður bara edrú af því.
24. Allt í einu ekkert mál að sitja á ljósritunarvélinni.
25. Það er ekkert óvanalegt við það að vera þvoglumæltur.

Immagaddus segir.....

Sumarhús.

Já ég veit að ég er bjartur.
En síðastliðnu dagar í henni sóðalegu Reykjavík, hafa verið góðir á sinn hátt.
Þetta stóra gula þarna á himninum er meira að segja farin að láta sjá sig.
Að vísu með gluggaveðrum. En.
Það er að verða bjart aftur.
Lífið er yndislegt.

Immagaddus segir.......

miðvikudagur, mars 01, 2006

Danskir dagar.....

Djö.... Hvað ég misskildi dönsku daghanna shem vhoru ah bhyrja nhirri fessskum.
Jéhh mhætti í vhinnunhna oh bhyrjaði að hella í mhig. GhammelDhansk Áhálabhorgar Áhhvavíti og drhakk elephant í viinnhnunni.
Ekki skrhítið þvó hyfirmenn mínir hhhafffi orðnir skrítnir.
Shvo maðr tali ehhkkki um unhdirmennhnina.
Annars af fyllirísröfli frátöldu.
Rassgats 3 dagar. Búinn að skila 38 tíma vinnuviku á þremur dögum.
MIG ER ÞREYTTUR.
Samt ekki nærri eins þreyttur og einhver í fjölskyldu Madam XXX.
Sem minnir mig á það.
Ég fór niður í morgunverð í morgun. " Stundum getum við verkstjórarnir ekki farið í kaffi á kaffitímum,, Þannig að við förum þegar við getum.
Sem sagt ég fór niður í Café botulism og ætlaði að fá mér að snæða kyrrlátan árverð.
Hitti þar fyrir annann verkstjóra snæðandi kókó kennt við puffs.
By the way. Það var ný skrifstofustúlka að byrja hjá okkur í dag.
Og Gimpið...Öðru nafnið Madam XXX, var að grennslast fyrir um hvaða stelpa þetta væri, og böggaði hinn verkstjórann þangað til að hanngafst upp og sagði.
Þetta er dóttir Finns Ingólfsonar Ráðhrerra.
Og þá kom upp hjá henni.
" Já hún. Ég þekki pabba hennar, hann var vanur að versla í Hagkaup þegar ég var að vinna þar.,, Síðan taldi hún upp öll skiptin sem hann kom að versla þar. Hvernig hann var klæddur, hvað hann keypti,hverjum hann var með, hvernig bíl hann var á....... o.sf.v.
Hún malaði um þetta í Ca 10 mínútur stanslaust og án þess að anda.
þegar helvítið loksins þurfti að anda.
Spurði hann svona út í loftið.
Madamm XXX.
Veistu hvort þeir fljúga til Frankfurt á miðvikudögum?
Loksins þagnaði fávitinn.
Því hún vissi þa' ekki.
En á morgun gefur honum sennilega svar sem hún hefur fengið frá, litla frænda sínum,systir sinni,mömmu sinni eða frá flugmanninum sem brotlenti flugvélinni þegar hún hringdi í hann....

Immagaddus segir............

sunnudagur, febrúar 26, 2006

Ókei dagur...

Jæja.
Púllararnir mínir unnu í dag.
Sem er bara hið besta mál en frétt dagsins er sú.

Til hamingju júnætidd þið unnuð í dag,
Sann færandandandi og þá er nú lag.
Voruð miklu betri það er ekkert blöff,
Wigan 4-0 undir, töff,töff töff.

Annars var smá töf á að bikarinn yrði afhentur.
Það þurfti að sjóða eggið, sem passaði í hann.

Annars lét ég ekki svona 2003. þá fannst mér þetta miklu stærri bikar en hann er.

Immagaddus segir........

föstudagur, febrúar 24, 2006

Úff!

Þetta var nú meiri rassgats dagurinn.
Ég hata það þegar ég þarf að vinna fyrir laununum mínum.
Ég var það lengi í vinnunni að ég missti af spurningakeppninni drekktu betur.
En ég hefði ætlað mér á hana með Feitabirni ef ég slyppi tímanlega úr vinnu, en var ekki kominn heim fyrr en um 6 leitið.
En auðvitað kemur annar föstudagur einhverntíman aftur.
Annars bauð fyrirtækið okkur á Pizzu í hádeginu. MMMMMM PIZZA!
Þetta eru alveg ágætis flatbökur sem þeir gera þarna á Rauða tómatnum,tómatinum. Tomato,tomeidó.....Hvaðsem.................
Sá svo feita konu í Smáralindinni í gær.
Hún var í, eða allavega held ég að þetta hafi verið hún.
Jamm hún var í joggingbuxum og neongulum bol.

Hey!.
Kópavogshöfn!

Það hefur slitnað upp bauja og rekið upp á land.

Hún var svo feit að sennilega borðar hún hippopotamús með öllum mat.

En sennilega ekki......Þetta er náttúrulega bara bull.
Það gerir enginn svoleiðis..

Immagaddus segir............

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Fokking ótrúlegt

Sláið inn sylvia nott eða sylvianott inn á.
Google.
Sjáið hvað skeður.
Ótrúlegur fjöldi sem kemur upp.

Immagaddus segir.........................

SÖKKKK!!!!!!

Púllararnir mínir sökkuðu feitt í um 100 mínútur í gærkveldi.

Lag: Það skemmist ei tönn.

Það vinnur ei lið sem að skorar ei neitt,
stanslaust þeir sækja en sökka samt feitt
Þó að það sé fyrir piltunum brýnt,
Hafa þeir enn ekkert sýnt.

Það er sorglegt og leitt, það er sorglegt og leitt.
Að geta ekki skorað neitt.

Haft var eftir Benites að hann liti á leikinn sem jafntefli........
Hmmmmm??????
Þetta skýrir margt.
Að tapa leik með einu marki er jafntefli, því þeir vinna örugglega heima.
Á hvaða lið hefur hann verið að horfa á, á leiktíðinni.
Nema hann hafi nú nýverið að útsrifast úr The Scouser school of mathematics.

GRRRRRRRR:

Ég ætlaði í bað áðan, en ég er alltof pirraður til þess.


Immagaddus segir.................

mánudagur, febrúar 20, 2006

Án titils..........

Byrja á að segja ykkur frá því að Púllararnir mínir eiga að keppa við Benfica á morgun.
Það er í meistarakeppni Evrópu.
HMMMMMM????
Keppni þar sem lið eins og Manu og Arsenik eru ekki í.
Annars er æðislegt hvað margir virðast pirraðir yfir því að Sylvía Næturdrottning hafi unnið Júgravísíon keppnina hérna heima.
Ég bara spyr ykkur sem eruð pirruð.
Af hverju tókuð þið ykkur ekki saman 0g kusuð Birhittu eða Birgittu 2.(Arndísi)
Það er bara sorglegt hvernig hún er að reyna að ná sviðsframkomu " early Birgitta hauk,,
Reynir að standa eins og hreifa sig eins en...................
Engin ertu Birgittan.
Hin lögin voru góð. Kannski ekki eins góð og kremkex....................... ( Gamalt máltæki).
En góð.
En hvaða vit hef ég á tónlist..Mér finnst ennþá gaman af Mike Oldfield.
Tek mér frí í vinnunni á morgun .
Ætla að gera ýmislegt heimavið.
Aðallega svefntengt.................
Er farinn að fá mér bjór..........


Immagaddus segir............

laugardagur, febrúar 18, 2006

Mont.

Jæja nú getur maður verið smá montinn.
Liverpool vann Manu í dag. Í fyrsta skipti í 85 ár. Þe í bikarnum.
Á 19 mínútu fór boltinn í slána inn.
Jú þetta var sláni sem skoraði.


Immagaddus segir................

fimmtudagur, febrúar 16, 2006

10. Ástæður..

Tíu ástæður fyrir því að Sylvía Nótt á að keppa fyrir okkar hönd í Eurovision 2006.

10. Eurovision er ekki kirkja. Fólk tekur þessa keppni allt of alvarlega. Það má alveg hræra aðeins upp í þessu eurotrashi með smá einkaflippi. Við erum ekkert að fara vinna keppnina hvort sem er.
9. Hommi & Nammi. Eða what their faces. Þessir dansarar. Hversu svalir eru þeir? Ótrúlega kúl, svo kúl eru þeir.
8. Sigga Beinteins og Selma eiga að vera í bakröddum, í bleikum náttfötum.
7. Lagið, Er prittí katsí, manni langar næstum að raula það.
6. Viðlagið. Þú færð viðlagið á heilann. Punktur.
5. Sögulegt samhengi. Lagið varð að sögulegu viðhengi.
4. Sylvía Nótt. Hún á það skilið að fara út. væri ekki gaman að sjá hana í innskotsmyndum á Eurovisionkvöldinu þegar við fáum 12 stig frá Hvurslagstan.
3. Todmobíllinn, þegar hann fer í gang.
2. Hin lögin. Ha eru einhver önnur.
1. Lagið er best.......EINS OG ÍSLAND........

Immagaddus segir........

Kalt úti. Partur tvö.

Var á leið heim af Ölver.
Sem er staður þar sem leggur áherslu á að sýna íþróttir, þannig að tæknilega er mjög hollt að fara þangað.
Humm!! KALT ÚTI!!!!!!
Var á leið heim af Ölver.
Sá 27 skokkara frostna saman við Gnoðavoginn.
Ég gat hinsvegar labbað áfram óhindrað og aldeilis ónæmur fyrir kulda vegna frostlögs í æðum.
Djö verður gaman þegar dráttarvélin með saltið kemur og keyrir yfir ´etta drasl.

Annars.

Það ku vera satt að skokkarar hlaupa ekki í spik.
Allir eru nú að væla um að vernda hálendið.............
Hvernig væri nú að fara að væla um að vernda láglendið.?
Þar kemur endastöðin af öllum spellvirkjunum sem koma af hálendisævintýrunum okkar.

En það er skrattans kalt úti.

BRRRRR!!!!!!!

Var spurður nokkura mjög góðra spurninga í dag.
Af strák sem er um það bil tuttuguogtveggja til þriggja ára.
1. Hefur þú verið ástfanginn?
Ég svaraði játandi.
2. Hvað er ást?
Ég svaraði. Eigingirni.
3. Hvað meinar þú?
Ég svaraði. Ástin er sú eigingjarnasta tilfinning sem þú getur nokkurntíma upplifað. Hún dregur fram það besta en jafnfram það versta sem í okkur býr.

Hann átti ekki von á þessu svari. ( Enda ungur ).

4. Ertu hamingjusamur.
Ég svaraði. Já nokkuð.
5. Af hverju.
Ég svaraði. Á í mig og á. Nokkuð góð heilsa,engin eftirsjá og hæfilega kærulaus.

Strák greyið var engu nær.
Kannski voru þetta ekki nógu töff svör.

Samt kalt úti.......Leiðrétting....fokkíng kalt úti.

Immagaddus segir........................

Brr. Ógeðslega kalt.

Í dag er það kalt hér á höfuðborgarsvæðinu að trjágróður er víða farinn að pakka saman og fara til Kanaríeyja.

Immagaddus segir.......................

miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Er ekki 2006?

Þurfti að fara í banka áðan.
Borgaði svosem einn reikning og ætlaði einnig að loka reikningi sem ég hef ekki notað síðan 1990.
Þá kom upp úr kafinu að ég þarf að hafa bókina meðferðis sem tilheyrir þessum reikningi.
DO,H!
Ég er löngu búinn að glata henni.
Þá kom það besta. " Nei vinur þú getur ekki lokað þessum reikningi nema að hafa bókina,,
"Þarftu þennann pening?,,
La,la,la,la,la.................Þarf ég þennann pening hvað?
"Nei sko við þurfum að auglýsa eftir bókinni, þannig að þú getur fengið peninginn eftir 6-8 mánuði ef hún finnst ekki,,
Ef enginn hefur notað þessa bók síðan 1990. þá er hún týnd.
Það fer ekki nokkur maður að koma allt í einu núna og reyna að rífa eitthvað út af henni.
" Já en þetta eru reglurnar,,
Ókei.
Get ég fengið debetkort fyrir þennann reikning?
" Ekkert mál,,
Já takk þá ætla ég að stofna debetkort á þennann reikning. Hvenær má ég ná í það.
" það ætti að vera tilbúið á föstudag eða mánudag,,
Snilld. Nú þarf ég ekki að bíða nema 2-5 daga eftir að geta tæmt reikninginn minn. Ekki satt.
" Jú ( svolítið kindalegur gjaldkeri á svipinn.),,
Takk kærlega fyrir.

Það má fylgja sögunni að upphæðin sem um ræðir er 7045 krónur.

Immagaddus segir.......

þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Valentínus hvað ha?

Núna ættu allir allir íslendingar að vera búnir að éta hjörtun úr flestum þeim húsdýrum sem þeir hafa haft í tilefni valentussunardagsins.
Amerísk uppfinning sem gerir ekkert annað en að pirra mig.
Ég þoli ekki innflutta " hátíðisdaga,,
Eins og Valentínusardaginn,hrekkjavöku,öskudag,bolludag,jólin,páskana,fyrsta maí,hvítasunnunna og fleiri karlkúaskíta daga.
Í stefnu þess að vera pólitísk réttþenkjandi þjóð á að skíra alla þessa daga. Okkar dagur.
Þá verður miklu skemmtilegra að lifa.
Enginn verður móðgaður, og tvöföld ánægja skín úr öllum andlitum, ljótum sem fallegum yfir því að eiga frí.


Immagaddus segir...............

Smá um mig.

Svo þú veist svolítið um minn innri mann.

(x) Unnið til sjós.
( ) Verið rekinn.
(x) Lent í slagsmálum.
(X) Verið sagt. Verum bara vinir.
(x) Hefur sagt. Verum bara vinir.
(x) Ferðast um Suður Ameríku.
( ) Farið á blint stefnumót.
(x) Skrópað í skóla.
(x) Skrópað í vinnu.
( ) Farið til Grænlands.
( ) Farið í meðferð.
(x) Horft á einhvern deyja.
(x) Borðað sushi.
(x) Tekið eiturlyf.
(x) Orðið ástfanginn.
(x) Sofnað í vinnunni.
( ) Farið í sleik við strák.
(x) Fundið jarðskjálfta.
(X) Feikað fullnægingu.
( ) Farið á rúlluskauta/línuskauta.
(x) Sofið hjá vinkonu systur þinnar.
(x) Ekki talað við móður í 8 mánuði.
( ) Gert glerlistaverk.
(x) Reykt í flugvél.
(x) Verið rændur með vopnavaldi.
(x) Eitt nótt með konu frá Angóla.( Og fyrripart morguns)
( ) verið með asískri vændiskonu.


Immagaddus segir.................




mánudagur, febrúar 13, 2006

Fattari.

Nú er ég loks búinn að komast að því af hverju "við hlaupum" Reykjarvíkurmarathon á hverju ári.
Það er til að minnast þegar Jón Forseti hljóp hálfa leiðina til Hveragerðis til að stinga lánadrottna sína af.
Djö maður.
Sá svo feita kerlingu áðan að ég er nokkuð viss um að það þarf fullann heiðursvörð lögreglunnar til að brjóta saman naríurnar hennar.
Hún var svo feit að hún hefur sitt eigið veðurkerfi.
Og djöfulli vont loftslag um miðbaug.

Annars búinn að komast að því að skokkleið milli Glæsibæjar og súðarvogar er nú aflögð.
Skokkarar víðsvegar um Reykjavík eru nú allir búnir að fá mynd af fullum kalli sem karlkúarskítar í þeim ef þeir eru á þessari leið.
Karlkúarskítur. Jafnt og Bullshit.

Búinn að þrefalda bjórneyslu mína, til styrktar Dönum.
Lifrin mín flúinn land.
Óska eftir nýrri, nú þegar.....................Nýrun farin að kvarta.

Búinn að liggja yfir júgravisíon lögunum.
Og búinn að komast að því að við eigum að senda Gleðibankann einu sinni enn.
Það gerir ekkert til.
Getum bara sagt að þetta lag hafi lekið út.
Og sendum æsítríóið aftur út. Í sömu búningunum og allt.
Hef sagt þetta áður.
Við eigum að senda Gleðibankann á hverju ári í keppnina, þangað til að hann vinnur.
Eða þangað til að einhverjir trúarhópar finnst hann móðgandi.
Hvað sem kemur á undan.

Annars er Lási lappalausi alveg að ná fótfestu í hlutabréfaviðskiptum við lappland.

Immagaddus segir..........

sunnudagur, febrúar 12, 2006

Stundum fer ekki allt...

Ætlaði aldeilis að detta í það og fara út á lífið um helgina.
En vegna þess að það var fullt tungl, varð ég að vera heima og raka mig.
Annars unnu púllararnir í dag eftir að hafa sökkað í allt of langan tíma.
Eru nú að senda liðsmann til Boro að láni svo hann geti ríportað heim , hvernig eigi að vinna Chel$ea.
Búinn að komast að því hvað skammtalækningar eru.
Þú ferð til læknis með sjúkdóm.
Hann greinir hann. Kemst síðan að hvað er að þér.
Og ákveður síðan hvað hann getur grætt á þér ef hann læknar þig í smá skömmtum.

Ps.
Á einna best um lyflækningar.

Allr e kvart yf a íslennskann sé á unadnhld.
Mér finnsta e skr, a sjá hvnr sumir eralta sty rimal.

Þessi setning er í boði kálfs.
Erfðaeiginleikar hans muna enn þegar við íslendingar þurftum að stytta mál okkar vegna skorts á kálfskinnum.
Nú á öld gígabætanna þurfurm við ekki að lesa,tala eða skrifa styttingar sem enginn skilur.
Handrit voru miskilinn því þar voru steningar og orð stytt það mikið að það var ekki almennilega hægt að segja að Njáll hafi verið hommi.
Sögur urðu helmingi styttri og hugsanir töpuðust.
Stöndum vörð um Íslenskuna. (Plís).

Þetta innslag var hinsvegar í boðo gras.is.

Leiðrétting:
Ég vil koma á framfæri að þegar ég vildi styrkja dani vegna rumpulýðsins, gleymdi ég að taka fram að þar vantaði náttúrulega inn í myndina. Gammel Dansk og Álarborgar ákavíti.
Biðst ég velvirðingar á þessu.. Skál.
Ef þið vitið um fleiri danskar áfengistegundir sem ég get stutt. verið þá óhrædd að styðja mig þegar ég fer í meðferð í lok ágúst.
Lok október. Ég á afmæli í ágúst.
Lok janúar.
Jólahlaðborðin maður.
Nei lok mars.
Þorrablót í janúar.
Fyrirgefið lok júní.
Páskarnir í mars.
Gleymið þessu bara.
Sumarfrí í júni.


Immagaddus segir...................

laugardagur, febrúar 11, 2006

Stöldrum við.

Stöldrum við?

Eða stöldrum við.

Hvenær ætlum við að staldra við og finna lyktina af blómunum.
Og/eða í sumra tilfellum reykja þau.
En seríúst.
Gaman að stressi.
Var með kallinum honum pabba mínum í Bónus áðan, og fyrir framan okkur var svona típísk einstæð hálftimbruð einstæð móðir með öskrandi 4-5 ára krakka sem langaði í einhvern djöfuls nammipoka.
Gargið hafði þegar náð 156 decibelum og karlinn farinn að ókyrrast, því ekki komst hann áfram með krakkaskrattann liggjandi í gangveginum öskrandi.
Mammann þegar orðin pirraðri en karlinn........Að ég hélt.
Allt í einu setti karlinn innkaupakerruna sína alveg upp að krakkaskítnum og öskraði Usss!!!
Og vanalegt ba.ba.ba.ba. fylgdi á eftir.
Viti menn krakkapúkinn hætti að garga.
Í staðinn fyrir byrjaði mamman að garga í staðinn.
Karlin lét annann skammt af Ba. ba.ba.ba. Á kvensniftina þannig að hún þagnaði í smá stund.´
Þá vatt sér að mér maður sem ég hef aldrei séð áður og spurði mig hvar hann gæti keypt einn svona og benti á pabba.
Fullt af fólki í búðinnu fór annaðhvort að hlægja eð í það minnsta brosti í kampinn.
Nema mamma hávaðarseggsins.

Djö.... þetta var æðislegt.

Sem segir okkur bara það.
Verum róleg.

Immagaddus segir........

föstudagur, febrúar 10, 2006

Nostal.....

Fór með strætó niður í bæ áðan.
Þurfti ekki að bíða nema í 3 mínútur eftir strætó.
Komst síðan að því að vagninn sem ég náði var 138 mínútum á eftir áætlun.
Þannig að ég var bara tiltölulega sáttur.
Aumingja vagnstjórinn var að reyna að keyra vagninn eins og hann væri formúlu eitt bíll til að ná ekki 200 mínútna sektinni fyrir að vera of seinn til að klára ómögulegan hring á föstudegi.
Og hætti stuttu eftir að ég var kominn inn í vagninn að stoppa á stoppustöðvum.
þar náði hann að spara 14 mínútur.
Sparaði 4 mínútur með því að fara yfir á rauðu, 12 mínútur fyrir að fara ekki framhjá landspítalanum og síðan aðrar 110 mínútur til að hringja á leigubíl fyrir mig og hinn farþegann.
Húrra fyrir strætó BS. ( Bullshitt).
Hann fær að aka annann hring.

Immagaddus segir...........................

Hafið þið pælt??

Siglum við hraðbiri til helvítis eða hvað??
Fyrirsögn á mbl.is í dag.
Skopmyndamótmælendur kveikja í húsum.
Allt í lagi.
En.
Að vísu átt við múhameðstrúarmenn, vegna Jyllandspóstsins.
En bara fyrirsögnin fékk mjög mikið á mig, og hugsið út í það.

Skopmyndamótmælendur kveikja í húsum, og brenna þjóðarfána.
Hvenær getur hugsanlega komið að okkur að við stöndum við trúarlega sannfæringu okkar og hættum að gera grín að JK. Og leifum engum að gera það.

En pössum okkur og gerum ekki grín að einu né neinu því það geta risið upp hópar og farið að kveikja í húsum, nema þeir/ þau sem eru of feitir(t).....Þeir/þau geta ekki hlaupið í burt frá staðnum.

Annars sá ég svo feita konu í strætó áðan að hún þarf heiðursvörð lögreglunnar til að brjóta saman nærbuxunar sínar.

Immagaddus segir................

Leið rétting....

Feitt fólk sem les Gaddusinn, hefur komað að máli við mig og sagt mér að hætta að gera grín að sér.
Ég fagna þessu.
Farið í megrun beljurnar ykkar og þá hætti ég að gera grín af ykkur.
Skal tekið fram að Immagaddus er of feitur sjálfur.

En það versta sem ég get hugsað mér er að feitt fólk hópi sig saman og fari í göngur eins og múhameðstrúarmenn. En að sjálfsögðu verður ekkert úr því. Það færi nefnilega frekar í bíltúr til að mótmæla. mundi aldrei nenna að massera um göturnar.

Skrítið hvað það er skrítið hvað það er skrítið að vera allt í einu orðinn tengdur við umheiminn aftur.
En það er ekkert skrítið að umheiminum finnist ég vera skrítinn.
Skrítið ; )

Ég hélt lengi vel að einn kunningi minn ætti ofboðslega feita kerlingu og ri iði henni alveg í tætlur.
Sag´ð alltaf:"Ég er að fara heim og setja í eina feita.,, Komst síðan seinna að´í að hann vara bara dópisti.

Mamma komast síðan að sömu niðurstöðu með mig fyrir eigi alls löngu síðan.
En það er alltof löng saga.

Annars var Lási lappalausi að ökklabrjóta sig í morgun.

Immagaddus segir...........................

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Strákar passið ykkur.

Karlmenn athugið.
Hvað sem þið komið til með að gera ekki vaska upp.
Þú veist aldrei nema að það búi hægri öfgamaður í næsta húsi.
Jú.
Skýringin er sú að hvernig lúkkar það?
Þið standið við eldhúsgluggann með viskustykki í hendinni, í mjaðmarhæð.
Þetta lítur út fyrir að þið séuð að láta múhameðstrúamann sjúg´ann á ykkur.
Nágranninn yrði ekki lengi að láta eina stingerflaug inn um eldhúsgluggann hjá ykkur.

Einföldustu húsráðin eru alltaf best.
Konan á heima í eldhúsinu.

Annars er það að frétta af Lása lappalausa að hann fékk nýlega ágræddann á sig ökkla á vinstri úlnliðinn.

Immagaddus segir............

Þar láu Danir aldeilis ekki í því...

Nú keppast múslimar um öll lönd að sanna að djöfullinn sé danskur eftir alltsaman. Eru þessir handklæðahausar nokkuð með reðuröfund????

Ég sá svo feita kerlíngu i kringlunni um daginn, að ég hélt að börnin hennar tvö væru fylgihnettir.
Hún var svo feit að ríkisstjórn Íslands hélt neyðarfund og ákvað að 0,2 prósentum af þjóðarhagnaði yrði veittur til þess eins að halda henni sem lengst upp á hálendi, þar sem hún getur ekki haft áhrif á sjáfarföll og breytt þannig stefnu golfstraumsins og gert þetta land alls óbyggilegt.
Semsagt.
Feit.

Danir eru hinsvegar ligeglad.
Hver einasta húsfrú sem á saumavél er farinn að sauma fána, því eftirspurnin er allt í einu orðin gríðarleg.
Persónulega ætla ég að sýna samstöðu mína í verki með því að þrefalda bjórneyslu mína og stuðla þannig að vinna fáist altént hjá Tuborg og Calsberg.

Annars var gaman að því þegar að Lási lappalausi var látinn sofa til fóta.

Immagaddus segir.......

miðvikudagur, febrúar 08, 2006

Í tilefni dagsins...

Jæja...
Hvenær verður eins manns tjáningarfrelsi, annars manns ofsóknir.
Það eina sem ég hef um það að segja, er að okkur Lúter þenkjandi mönnum er nokkuð skítsama um allt, þannig að við gerum grín að öllu þangað til að allt í einu er farið að brenna Norska fánann og við dauð öfundum múslima að hafa gert það á undan okkur.
Því eins og alþjóð veit.
Hverjum hefur ekki langað að brenna Norska fánann, svona endrum og eins.

Mikið er annars gott að vera orðinn nettengdur aftur.

Verið viðbúinn miklu.
En verið einnig fyrir miklum vonbrigðum.
Ég er hættur í bili.
Þar til næst.


Immagaddus segir................

laugardagur, nóvember 26, 2005

Verkfræðingar,ýmislegt og Guðrún

Jæja púllararnir mínir unnu í dag,
Nema Peter pan alias Peter Croutch. Hann býr í never never score land.
Búinn, að komast að því, að allar verkfræðiskrifstofur á landinu eru nú búnir að banna neyslu kaffis inn á skrifstofum, vegna ruglings sem hefur kostað þjóðarbúið marga milljarða króna.
Jú. Þeir voru vanir að leggja kaffibollana sína á teikningar deiliskipulags ýmissa byggðalaga, aðallega hér sunnanlands, og oftar en ekki risu þar hringtorg, og oftar en ekki í óþökk allra.
Sérstaklega þeirra sjálfra.

Annars er búið að loka fyrir alla internetnotkun á vinnustaðnum sem ég er hjá. Sennilega er okkur ekki treyst fyrir öllu þessu frelsi sem því fylgir að vera með nettengingu.
Vissulega er það fyrir hendi að við færum yfir á Norðlenska púntur is í staðinn fyrir dvergaklám. org, en samt......

Vegna þess gæti orðið einhverjar tafir á næsta bulli.

Immagaddus segir.......................

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

DISSSSSSSS !

Djísús mar!
Púllaraleikurinn í gær.
Það tók Liverpoolliðið akkúrat 23 mínútur að svæfa mig.
Hrökk við í hálfleik uppúr sófanum við það að það voru komnar auglýsingar.
Peter OUCH!
Ég er búinn að komast að því að þetta fyrirbæri er þjónninn úr Addamsfjölskyldunni. ( LURKUR )
Hann getur bara ekki rassgat. Ég skal koma til móts við Benites og fara til Liverpool fyrir 3 milljónir bara til að vera feiti kallinn í liðinu sem getur ekkert.
Það var alveg sama hvað hann var mataður, gat ekki rassgat. það þyrfti að setja í hann einhvern jafnvægisskynjara, hann fellur oftar en misheppnaður alkóhólisti, bara með verri afleiðingum.

Jæja annars nóg um það.
Djöfull er Madonna annars flott í nýja myndbandinu sínu, þarna, constructions of a dancefloor, eða whatever.

Annars er fokkíngs kalt í dag. Gamla fólkið sem er útivið skreppur svo mikið saman að maður heldur að það séu ógeðslega krumpuð börn í fötum frá hjálpræðishernum.

Var að fá bréf frá vini mínum þar sem hann sagðist ætla að fara að gifta sig næsta sumar.
Var að bjóða mér í giftingaveisluna.
Veit ekki alveg hvort ég á að fara. Hann býr í Ástralíu.
Það kostar skrilljónir bara að fljúga þangað.

Annars er allt í hinu besta.

Immagaddus segir......................................

sunnudagur, nóvember 20, 2005

Pælingar og.....Jah meira bull

Segið mér eitt.
Þegar Gunnar í Krossinum er að tala um ástandið í þjóðfélaginu.
Er hann þá ekki bara að mála Skrattann á vegginn?

Sumt sem virkar asnalegt á ensku.

Það liggur í augum uppi = it lies in the eyes upstairs.
Ertu frá þér = Are you from you?
Ber er hver að baki nema sér bróður eigi = You are a berry in the back without a brother.
Ég kem af fjöllum = I´m comeing from the mountains.
Hún má muna sinn fífil fegri = She can remember her daffidil prettier.
Að reisa sér burðarás um öxl = To build oneself a carryaxel over one´s shoulder.


Immagaddus segir..............................

Það besta við að bulla.

Það besta við það að vera á göngudeild fyrir spilasjúka alkóhólista er það að maður getur veðjað við hina hvenær næsti maður, annaðhvort dettur í það eða spilar rassinn úr buxunum.

Það besta við það að vera klínist dauður er það að maður þarf ekki að horfa á íslenska batsélortinn.

Það besta við að vera íslenski batsélortinn er það að vera klínist dauður.

Er það bara ég eða er Clint Eastwood borið eins fram og klínískur??
Nei sennilega er það bara ég.

Is Harrisons Ford, Ford better than Henry´s Ford, Ford?
Is Chuck´s Berry, berry as good as Halle´s Berry berry?

Svör við þessum spurningum fást í Eymundson.

Immagaddus segir...............................

Og það skýrir margt....

Úps!
Einu sinni enn um þessa margrómuðu og umtöluðu vísindamenn.
En vísindamenn hafa nú komist að því að börn sem fæðast snemma á árinu, ganga betur í skóla, eignast fleiri vini og almennt séð komast betur af í lífsbaráttunni.
Ég er til dæmis fæddur í ágúst, sem er tiltölulega seint á árinu.
Það skýrir það af hverju ég var aðeins meðalmaður í skóla, átti fáa en góða ímyndaða vini og nú upp á síðkastið alveg hættur að fá að ríða svo nokkurt gagn er í.

Ég á hinsvegar nokkra vini sem eru fæddir snemma í árinu, og eru þeir flestir mun gáfaðri en ég.
Eru annaðhvot kennarar,bókasafnsfræðingar,leikstjórar,kafteinar eða læknar.
Eru giftir og eiga næstum allir börn og buru. Sumir eiga þó bara buru.
Hinsvegar eiga þeir verri vini en ég.
Nema einn hann er frelsaður, og ég get náttúrulega ekki keppt við jesú.
Allavega ekki ennþá.
Ég þarf bara að mæta í veginn og taka nokkrar krossaspurningar og þá kemur í ljós hversu heilagur/óheilagur ég er.

Ég trúi því að ef maður trúi því að maður trúi því að maður trúi nógu mikið þá trúi maður því að maður trúi það mikið að trúin flytji fyrir mann heilu búslóðirnar.

Ef einhver getur sagt mér hversu mörg" ég " ég skrifaði í þessu bloggi.
þá ætti hinn sami að fá sér líf.


Immagaddus segir.................



Góðverk og gras.

Jæja nú eru að koma jól.
Ekki svosem fréttnæmt ha, nema að nú eru allar góðgerðastofnanir í heimi byrjaðar að væla sama jólasönginn. Gemmér, gemmér,gemmér.
Náttúruhamfarir hér, hungursneið þar, styrjöld meira og minna allstaðar.
Meira að segja Kattholt og hundahótelið eru að væla um að fólk ætti að taka að sér hund eða kött núna þegar skammdegið er sem mest og vera góð við dýrin og hvert annað svona að tilefni jólanna.
Ég ætla að gera góðverk þessi jól.!!
Ég ætla að taka að mér einn kött og einn hund, og senda þá til sveltandi fjölskyldu í Pakistan.

Nú hafa vísindamenn komist að því að gras óx mun fyrr á jörðinni en menn töldu áður.
Auðvitað hefur maðurinn alltaf ræktað gras.
Haldiði að nokkur óstónd villimaður hafi málað öll þessi hellamálverk???

Vísir.is í dag.
Mynd af Siv og Ingibjörgu hlið við hlið.
Djöfull eru þessar myndir líkar því að vera " mugshot "
Svo náttúrulega á ekki að hafa þessar konur hlið við hlið á myndum.
Hugsið ykkur samanburðinn sem er gerður á milli þeirra.
Hann er.....................

Amríkaninn er nú í tilefni jólanna, farinn að nota fosfórsprengjur í Afghanistan, og þegar að nær dregur skiptir hann svo yfir í napalm.
Hugsið ykkur öll litlu afgönsku börnin sem fá að sjá þessa ljósadýrð, gaman,gaman. En hvar er mamma og pabbi?.

Ameríski draumurinn. Að megra sig niður í 140 kíló eftir jólin.

Immagaddus segir....................

Sunnudagsmorgun og ég er edrú..Whatthe....?

Hvað er að þessari mynd?
Hugsaði ég þegar ég sá mynd af sjálfum mér í spegli áðan.
Þið hin þurfið ekki svara þessari spurningu.
Sunnudagsmorgun og ég er hvorki fullur,dópaður né timbraður.
Heimur versnandi fer.
Eða var´ða Hreimur versnandi fer. Annaðhvort. þið megið ráða.
GRRRRR!!!
Þurfti að mæta í vinnu í morgun.
HMMM!
Það mættu, englendingur, kani frá suðurríkjunum,tveir pólverjar ( einn frá sitt hvorum pólnum) jórdani,íslendingur og færeyingur.
Dijísús kræst. En það samsull.
Sem betur fer eru engir samskiptaörðuleikar, þar sem það gengur yfir línuna að enginn skilur hvorn annann, virðist það ekki vera neinum örðuleikum bundið.
Jibbí.
Jæja annars púllararnir mínir unnu í gær. Meira að segja sannfærandi. Þrjú núll. Gegn hafnarkjafti.( Portsmouth)
Eins og einn góðvinur minn kýs að kalla þá.
Tjélskí heldur samt áfram að vinna og vinna.
Þeir eru eins og Borgarnir í Star Trekk þáttunum.
Þegar liðið er örlítið á leikinn eru þeir búnir að komast að því hvar veilurnar eru hjá mótherjanum, og einnig hvernig árásartæknin verður. Þannig ná þeir að samlaga sig allt og öllu, og standa síðan upp sem sigurvegarar.
Skerí eint it???
Annars var árshátíð hjá Ferskum síðustu helgi á Hótel Sögu.
Það kom á óvart hvað maturinn þar var góður, og enn meira á óvart hvað sýningin var góð.
Siggi Sig, Örn Árna og Karl Ágúst voru bara alveg þokkalegir.
Samt þekkti ég gömlu góðu Sögu þegar kom að ábótinni. Hún kom skítköld.


Immagaddus segir...............................

miðvikudagur, nóvember 16, 2005

Það er til Guð......

Jíbbííííííí!!!!!!!

Ég er hættur að vera pirraður.
Keití Hólms er hætt að leika.
Vonandi er þetta satt. Ég sá hana í Batman begins og hún sökkaði. Ég sá hana líka í Jawnsons creek. Og hún sökkaði þar líka.
Hún er hætt að leika. Hún er hætt að leika. Hún er hætt að leika. Na.Na.Na.Na.Na.Naaa. (sagt með ógeðslega pirrandi barnarödd)

Annars vonar maður þá að hommafíflið hann Tom Krús hætti að leika í leiðinni.
Og svo ég tjái mig aðeins um Edduverðlaunaafhendinguna.
Þá var jafnvont að sjá Halldór Ásgrímsson þar og að fá brennandi heitan járnskörung í rassgatið.

Immagddus segir.........................

Pirringur dauðans...

Ég er svo pirraður á allt og öllu núna að mig langar helst til að taka frönskunámskeið í því að kveikja í bílum.
Það sem er helst að pirra mig að dagurinn er enn að styttast, kólna, kólna meira og meira og meira og meira og meira. Og meira.
Verkalýðsforustan lét ríkistjórnina plata sig aftur.
Þessir háu herrar hugsa sér nú gott til glóðarinnar og eru akkúrat í þessum rituðu orðum að ákveða hversu mikla pjénínga þeir ætla sér fljótlega uppúr febrúar, þegar við horgemlingarnir erum búin að fá okkar 2,7 % eða 3,1 %. Sem er alveg fáránlega lágt, hvort sem um hækkun á launum er að ræða eða prósentuhlutfall af rúmmáli alkóhóls í bjór.
Kvintfeis Tarntúlla er víst á skerinu og hópast nú hver sem betur getur til að snobba fyrir þessu fyrirbæri.
Jú hann er búinn að gera nokkrar myndir...........En hvað með það.
Afhverju erum við svona miklir sökkerar fyrir selebrittíum(*). Köllum þá Íslandsvini,Tengasyni og eða dætur Íslands. Þetta lið telur lifnaðarhætti okkar fáránlega og skipar okkur sess mitt á milli Men Thal li il og Ri diggi ó lús.
Gerir enginn sér grein fyrir að það er allstaðar hlegið að smáborgaraskapnum í okkur.
Annars er Kvintfeis það stropaður að hann gæti alveg eins fengið sér íbúð við hliðina á Bobbí fischcunt. Eða það sem er betra. Ísbúð við hliðina á Hebba.

(*)Það skal tekið fram að Selebrittíum er ekki frumefni og finnst hvergi í lotukerfinu.

Já ég er pirraður.
Pirraður yfir því að það sé ekki ennþá búið að koma manni á óvart, þegar það er löngu búið að koma manni á tunglið.

Afskaplega pirraður yfir orðinu bréfsefni. Sem hlýtur að vera annað orð yfir tré.
Pirraður yfir því að hreindýrakjöt skuli vera svona dýrt, en við því er ekkert að gera. Það var svo erfitt að flytja það hingað fyrr á öldum.
Af hverju fluttu þeir ekki helvítis draslið bara hingað á öldum ljósvakans í staðinn fyrir öldum Atlandshafsins.
Miklu fljótlegra.
Drullu pirraður yfir því að fá ekkert almennilegt að éta hjá eitraða dvergnum sem sér um mötuneytið.
Og síðast en ekki síst Pirraður yfir öllum andskotans Walt Disneymyndunum sem hafa verið framleiddar. Fyrir utan Bambi. Æðislegt þegar mamm´ans var skotin.


Immagaddus segir.......................

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Lengi lifi Ferguson, og lengi lifi Gudda.

Jæja barrasta.
Man U spilaði evrópuleik í gær eins og Liverpoollið í öndunarvél.
Skemmtanagildi leiksins var álíka og að horfa á málningu þorna.
Jæja annars, fullt af hommum sem ætla á fagottkonsertinn í kvöld, djö verða þeir fyrir miklum vonbrigðum.
Og vá maður! Fyrsta sprenjgutilræðið.
Og auðvitað fyrir framan matvælafyrirtæki. Það eru jú líka einu fyrirtækin sem eru með meirihluta starfsfólks af erlendu bergi brotið.
Já erlendu bergi brotið.
Fólk í útlöndum fæðist nefnilega ekki. Það er meitlað út úr hamraveggjum með hamri og meitli, nema í rússlandi þar er það skorið út með hamar og sigð.
Þorgrímur þráins fær meiri sönnur á það að reykingar eru hættulegar, því kona sem var úti að reykja fékk sprengjubrot í fótinn þegar sprengjan sprakk.
Í fréttum var sagt að sprengjan hafi verið heimatilbúin.
Og????
Það er ekki eins og maður fari ekki bara í bónus eða eitthvað og kaupi sér eina sprengju, jú annars hún var ekki það kraftmikil. 40% afsláttur við kassann.
Eða í Hagkaup. 27% fyrir E-kortshafa.
Enginn afsláttur fyrir E-pilluhafa.

Sem segir að. Ef lási lappalausi hefði verið fyrir utan Mylluna þegar sprengjan sprakk hefði hann þá sloppið?????????


Immagaddus segir..............

þriðjudagur, nóvember 01, 2005

From russia with love......

Snilld.
Þegar ég mætti í vinnuna í morgun, beið eftir mér alveg þessi glimrandi póstur frá rússneskri konu, sem er greinilega í makaleit, eða allavega í einhverskonar leit að fórnarlambi til að hösla.
Ég birti hér tölvupóstinn í heild sinni.
Athugið að nöfnum hefur verið breytt til að verja viðkomandi

Hello my hope.
I am not sure you get this message but if you got it you know that I want to travel to your country to work in two weeks and I just want to meet right man. I live in Russia and my goal is to leave this country because it is impossible to live here for young pretty woman. If you have not wife or girlfriend, maybe we could try to meet.
I am 25 years old, I will tell you more about me and send you picture when you reply. Please write to me directly to my mail-XXXXXXXXXXXX.XXX..
e- mail I am writing from right is not mine. Make sure you write to my personal adress. See you soon.

Alveg gargandi snilld.
Ætli það séu margir sem falla fyrir svona löguðu?
Hmmmm???
Hvar fékk viðkomandi póstfangið mitt?
Og ég sem hélt að einstæðar mæður í Kringlunni væru þreytandi.


Immagaddus segir........................

Alveg gargandi snilld

mánudagur, október 31, 2005

Einstæðar mæður.

Vá maður.
Fór í Kringluna á laugardaginn uppúr eittleitinu.
Þar var ekkert smáræði að ungum konum með barnavagna, venjulegt fólk komst bara ekkert áfram.
Var kannski einstæðra mæðradagur í Kringlunni????
Er síðasti laugardagur mánaðarins kannski tileinkaður ungum konum sem hafa ekkert annað að gera nema að hlaða niður ómegð og þurfa endilega að fylla allar verzlunarmiðstöðvar af þeim.
Ég til dæmis fór aðeins í Kringluna til að kaupa mér bjórkippu með leiknum,DV, MBL og sígó.
En komst varla úr spori fyrir barnavögnum fullum að krökkum með hor.
Það ætti að vera forgangs gangbraut fyrir fertuga feita karla með bjór í poka sem aðeins vilja komast sem fyrst heim til sín til að njóta hans yfir fótboltaleik.
Engir barnavagnar eða aðrir tengivagnar í gangveginum.
Annars unnu Púllararnir mínir núna um helgina. Hæ! hó! og lengi lifi Gudda.
Þetta ku vera fyrsti sigurleikur þeirra síðan Guð var á stuttbuxum og spilaði handbolta með Hetti hérna um árið.
Að vísu út í hött, en satt engu að síður.

Immagaddus segir................

föstudagur, október 28, 2005

Próf.

Próf

Enn stend ég leiðréttur.

Sorrí yfir því sem ég sagði áðan.
Ókey!!!!
Þeim tókst að ræsa snjóblástursvélna.
Ekki neinn hríðarbylur en samt nóg til að fyllast viðbjóði á íslensku veðurfari.
Er hálnaður að setja vetrardekkin undir bílinn.
Það er búinn að setja þau í skottið.
Kannski gera þau eitthvað gagn þar.
Var að vonast til að veðrið myndi nú haldast tiltölulega snjófrítt fram að mánaðarmótum svo ég gæti eitt síðustu peningum mánaðarins í eiturlyf,bjór og lauslátt kvenfólk........En almættið hafði aðra skoðun á því máli.
Allataf að skiptandi sér að öllu.
Ég er alveg brjálaður, og ætla ekkert í bað.


Immagaddus segir.......................................

Welcome to the dark side of the force..

Svolítið scary að einhver er búinn að komast að þeirri niðurstöðu að ég sé hið dimma innra sjálf Feitabjarnar.
Svona eins og að maður færi að pæli í hvor væri annars jing eða jang.
Ef ég er dimma hliðin á Feitabirni, þá þori ég varla að hugsa til þess hvað hann er.
Censored text here:..........................................................................................................
.............................................................................................................................................
............................................................................................................................................
Annars er fookíngs kalt í dag.
Það er greinilega verið að reyna að ræsa snjóblástursvélina hérna sunnanlands, er ekki alveg að komast í gang, en samt tilraun til snjókomu.
Eigið samt góða helgi.
Kem sennilega ekki til með að bulla meira fyrr en á mánudag.


Immagaddus segir............................................................

fimmtudagur, október 27, 2005

Aumingja Morínjó og auðvitað veðrið

Jæja. það voru þá ekki meiri spámenn en Tjsaltonn Aþþlettiks, sem lögðu risanna í Tjélsí.
Mikið er gaman að þeir komi ekki með að hirða allar dollurnar sem eru í boði.
Enda væri það of mikið álag á þann sem fægir silfrið.
Ég er búinn að komast að því af hverju teiknimyndir eru aldrei sendar út í beinni
útsendingu.
Það er vegna of miklis álags á úlnlið teiknarans.
Annars er búið að vera allt of kalt upp á síðkastið.
Það kalt að það mæti halda að það væri kominn vetur.
Æ annars það er kominn vetur.

Immagaddus segir.....................

miðvikudagur, október 26, 2005

Pirrandi fótbolti og önnur general leiðindi

Grr.
Sáuð þið Liverpoolleikinn í gærkvöldi. Guð minn almáttugur hvað þeir sökkuðu.
Þarna voru svo sannarlega 90 mínútur af ævi minni sem ég fæ aldrei aftur. What a wheist.
Eða eins og ég myndi segja það á ensku.
They were the suckiest bunch of suckers that ever sucked.
Perry. kemur ábyggilega með að veðsetja allar eigur sínar til að kaupa nýtt lið í Janúar, þegar félagsliðaglugginn opnar. Og hendir hinu liðinu út um hann.
Eins og margtuggið orðatiltæki segir.
Þeir sáu aldrei til sólar.
Það er ekki með neinu móti að þessir sökkerar geti skorað mörk. Ekki einu sinni fyrir galopnu marki.
Síðan virðast allir markmenn í heimi, hversu lélegir sem þeir eru, eiga leik lífs síns á móti Liverpool.
Ekki gott.
Hvernig væri að Benítes, sem annars siglir hraðbyri í að verða kallaður Ónítes, færi að reyna að kaupa Lása lappalausa sem stræker?
Það er þá allavega ekki eins pirrandi þegar boltinn fer ekki inn í markið.


Immagaddus segir....

þriðjudagur, október 25, 2005

Húrra fyrir tjéllingunum, og sumpart ekki.

Alveg bjargaði það deginum fyrir mér í dag þegar ég hitti Madam XXL þegar ég fór í morgunkaffi í vinnuni í morgun.
Um leið og ég kom inn í kaffistofuna byrjaði hún að jarma.
"Vá hvða voru margir í bænum í gær"
Ég sagði svona kurteislega, og aðallega þó til að loka samræðunum svo ég þyrfti ekki að tala meira við hana, Já ég sá það í blöðunum og fréttunum að það hafði verið um 45000 manns í bænum.
En nei.
Haldið ekki að hún hafi sagt. " 45000 manns, það getur ekki verið, ég taldi miklu fleiri.
Gott að vita að hún hafi betri yfirsýn á þessu en lögregluembættið.
Annars var þessi kvennafrídagur algert flopp.
Leggja niður vinnu klukkan 14:00 hvað.
Ef þær hefðu ekki mætt neitt í vinnu, þá hefði kannski einhver skilaboð komist í gegn.
Ég geri ráð fyrir því að flestar konur vinni frá þetta sjö eða átta á morgnana, þannig að leggja niður vinnu eftir sex tíma vinnudag skiptir raunverulega ekki miklu máli.
Pólskar konur á vinnustað mínum voru nokk sama um þetta brölt kynsystra sinna í gær.
Ekki jörmuðu þær um að fá að fara snemma, enda kannski skildu þær ekki alveg út á hvað þessi dagur gekk.
Eða þeim var kannski bara alveg sama eins og okkur körlunum.
Hvað sem öðru líður á að vera jafnrétti í þjóðfélaginu.
En hvar á þá að byrja.
Það mætti berjast fyrir jafnrétti á miklu fleiri vígsöðvum en bara jafnrétti kvenna.
Til dæmis.
Jafnrétti til Náms,jafnrétti til handa eldriborgurum,öryrkjum,geðsjúkum,fátækum,lituðum,ólituðum og svo lengi mætti telja.
Við búum í ófullkomnum heimi sem er fullur af ófullkomnu fólki.
Þangað til að við lærum að elska og meta hvert annað af verðleikum verður alltaf til óréttlæti og jafnréttishugsjónin fótum troðin. En það er nefnilega það sem er virkilega að.
Eða er það ekki?????




Immagaddus segir........

fimmtudagur, október 20, 2005

Ljóskur og leikföng.

Vá maður.
Það besta við Aktu Taktu í Fellsmúlanum er.
Að maður vill gjarnan taka eina ljóskuna sem er að vinna þar. Og aka síðan í burtu.
Flott vaxin og yfirleitt í sprayon gallabuxum.
Sennilega yrði hún alveg jafn flott í rayon buxum en það verður ekki tíundað hér.
Enda ekki beðið um tíund.
Já svakaflott semsagt.
En djísús kræst.
Þetta er eintak sem á greinilega ekki að tala mikið við. " Bara leika sér "
Maður starir í augun á henni og sér greinilega móta fyrir stillimynd. Og ef það væri nægilega hljótt þarna inn á staðnum myndi maður líka heyra tón frá henni.
Sennilega A. Svona svipaðan og sóninn sem maður heyrir í símtækinu heima hjá sér.
Mæli með því strákar að þið tjékkið á þessu.
Sést að vísu ekki almennilega úr bílalúgunni hvernig hún er vaxin, en það má alveg fórna sér og labba inn fyrir þetta.
Í orðabók menningasjóðs og einnig í orðabók Háskóla Íslands er að finna Ljóska.
Prufið að fletta upp á þessu orði.
Það kemur ekki á óvart en það er skýringarmynd með. Og það er hún.

Annars er alveg æðislegt að rjúpnaskyttur eru farnar að týnast aftur út um allar jarðir.

Immagaddus segir................................

miðvikudagur, október 19, 2005

Tómstundariðja,lyfjavandræði og......

Fór til læknis í gær.
Gamalt hnjask í hné að bögga mig einu sinni enn.
Eftir skoðun og smá spjall, vildi doksi að tæki með mér lyfseðil og ætti að koma aftur eftir tíu daga í segulómun.
Fór í apótekið og keypti pillurnar.
Obbosí, halló og allir hans hásetar.
Haldið ekki að það hafi staðið á glasinu:
Ein tafla þrisvar á dag með mat.
Það gæti nú verið nokkuð snúið.
Miðað við það að ég er í vinnunni sirka 10 - 12 tíma á dag. Og miðað við mötuneytið sem boðið er upp á, þá næ ég aldrei að taka fyrstu tvær pillurnar. Ja ekki nema að koma með mat meðmér að heiman.
Eða éta þrisvar þegar ég kem heim.

Annars er það að segja að pabbi gamli er að taka upp siði katta meir og meir.
Til dæmis sefur hann um 18 íma á sólarhring.
Síðan er hann búinn að finna sér nýja tómstundariðju.
Og sú tómstundariðja er að athuga hvað hann getur haldið mér lengi vakandi.
Þetta virkar þannig.
Vegna snemmmætingar minnar í vinnu fer ég yfirleitt að sofa upp úr 10 á kvöldin. Fyrr ef ég þarf að vakna klukkan þrjú.
Þar kikkar kattareðlið inn hjá honum hann leggur sig eftir kvöldfréttir og vaknar síðan um það leitið sem ég er að fara að sofa.
Akkúrat þegar ég er að festa svefn fer hann á veiðar.
Veiðir sér til dæmis lambakótilettur og fer að berja þær til.
Fer inn í pottaskápanna og velur sér innsta potttinn og missir hann gjarnan í gólfið.
Þetta stendur svona í um klukkustund eða þangað til að ég gefst upp og fer fram og fæ mér einn líkkistunagla.
Þá spyr hann sakleysislega. Ha ekki sofa?
Ég klára naglann lít á klukkuna og sé að hún er að verða 23:30.
Er kominn í svefn þegar ég heyri í örbylgjuofninum. Bíbbbíbbbíbb. Bíbbbíbbbíbb. Bíbbbíbbbíbb, sinnum 20. Og auðvitað veður og fréttir klukkan eitt. Kallinn situr inn í eldhúsi með örbylgjuhitað kaffi og spyr einu sinni enn hissari. Ha, ekki sofa?
Hugsa. Mental note. Kaupa koffínlaust kaffi fyrir kallinn og svefnpillur fyrir mig. Hmm eða öfugt.
Fæ mér annann líkkistunagla.
Hlusta á veðrið.
Einhver lægðarpíka sunnan við Hvarf. Lít á klukkuna hún er að verða tvö.
Kallinn segir góða nótt og fer að sofa.
Ég tek þessum fréttum frá honum fegins hendi og hendi mér upp í rúm.
Þarf að vakna klukkan fjögur.
Næ að sofna á einhverjum 10 mínútum og verð að sofa á alveg ógnarhraða til að ná sex til átta tíma svefni.
Draumarnir eru eins og á hraðspólun á vídeótæki.
Vakna klukkan 04:11.
Kallinn vaknar líka.
Auðvitað. það eru veðurfréttir klukkan hálf fimm.


Immagaddus segir.................

þriðjudagur, október 18, 2005

Harrí enginn heimir og fúlt í vinnunni.

Ójá!
Snilld þetta með dönsku söngkonuna: Notaði Harry Potterbók til að smygla hassi.

Snilld nr 1. Bókin hét Harry Potter og leyniklefinn.
Snilld nr 2. Gefur gárungum eins og mér ástæðu til að kalla hann Harry Pothead.
Snilld nr 3. það er engin skeið.

Búin að komast að því að fyrrum starfið mitt er ekki mönnum bjóðandi.
Skrýtið hvernig sumt getur allt í einu breyst frá því að vera hugsað normalt í það að vera ekki mönnum bjóðandi.
Nú þarf allt í einu að fá til aðstoðar þrjá menn til að taka slakann af starfi sem fyrir um einum og hálfum mánuði engum datt til hugar að þyrfti að taka nokkurn slaka af. Kemur sér afar vel fyrir suma. En er auðvitað pjúra aukavinna fyrir aðra.
Sennilega hefur starfið verið pínu erfitt/ósanngjarnt
Það þurfti bara nýtt blóð til að einhver fattaði það.
Eða einhver þurft að borga.

Allavega. Hmmmmm.

Immagaddus segir...............................

mánudagur, október 17, 2005

Fuglaflensa og annað ámóta gáfulegt

Jæja börnin góð.

Nú eru vísindamenn loksins búnir að komast að því hvernig fuglaflensan berst í menn.
Fuglaflensan smitast aðallega þegar menn eru að fá sér eitthvað í gogginn.
sem lýsir sér best í því að mörg afríkuríki eru algerlega laus við fuglaflensu en aftur á móti er dánartíðni vegna hungurs töluvert.

Ég veit ekki alveg af hverju Hornfirðingar eru að kvarta yfir smá vatni.
Ég veit um borg á Ítalíu sem er með miklu meira vatn í kringum húsin sín og græða á tá og fingri á ferðamönnum allann ársins hring.
kommon..Impróvæs fólks.

Leiðrétting:
Í áðurbirtu bloggi kom fram að Össur Skarphépinsson væri geimvera.
Ég biðst afsökunar á þessum leiðu mistökum.
Hið rétta er að hann er marbendill. Sem kemur ekki á óvart eins sjóaður og hann er.


Immagaddus segir........................

Drasl og annað pirr.......

Hafið þið séð íslenska batselortinn.
Guð minn góður en það krapp.
Þeir tóku afspyrnulélegt Ameríst konsept og gerðu það hundrað sinnum verra.
Þátttakendurnir eru. Hmmmm. Greinilega úr neðri stéttum samfélagsins og einnig úr neðri tölum gáfnafars.
Á annars ekki batselorturinn að vera ríkur...Gekk þetta ekki sumpart út á það í Ameríku.
Annars er það að segja að nú er Dabbi farinn og ekki leið á langur tími frá því en að nú mæta þingmenn á Bermúdabuxum og Hawaii skyrtum í pontu niður í alþingishúsi.
Nú er enginn með bein í nefinu til að stjórna þingheimi, og í raun allri þjóðinni.
Það verður engin smá eftirsjá af Dabbaling.
Annars gæti Hilmar tekið á sig rögg og reynt að skikka okkur til en einhvernveginn virkar hann ekki á okkur eins og maðurinn með reglustrikuna.

Immagaddus segir...............

föstudagur, október 14, 2005

Ekkert til að gera veður út af.

Djö maður.
Nú er sumarið orðið það kalt að ég er alveg himinlifandi að hafa farið suður.
Kannski er öllum öðrum hlýtt en mér er allavegana kalt.
Fyrsti vetrardagur er ekki fyrr en 22 okt. en þá byrjar Gormánuður. Sem ætti með réttu að heita hormánuður vegna óstjórnlegs nefrennslis sem skapast af svo glötuðu veðurfari sem hér hefur verið upp á síðkastið.
Ég þurfti að skafa af bílrúðunum í nótt, þegar ég fór til vinnu.
Í skítakulda og trekki. BRRRRR! Og með áherslu á BRRRRR.
Bátarnir liggja tómir við kajann í kinnungunum söng.

Túkallinn: Rúðupiss er ekki endilega, þvag eftir fullann kall sem stendur upp á húddi.

Immagaddus segir................................

fimmtudagur, október 13, 2005

Skúbb!!!!æ....Eða ekki.

Magnús Skarphéðinsson er búinn að komast að því eftir áralangar rannsóknir að, Össur Skarphéðinsson er geimvera.
Kemur þetta svosem ekkert á óvart því enginn normal maður lítur svona asnalega út.
Smá drobakk.
Magnús Skarphéðinnson er geimvera líka.
Kemur frá annari stjörnuþoku langt langt í burtu.
Þeir eru semsagt nokkurskonar krossbríd Ewok og Wookies. Bara verr rakaðir og mun verr máli farnir.

Og náttúrulega set ég þetta blogg alls ekki á ensku því þá þyrfti ég að fá mér lögmann vegna þess að þetta gæti komið sér afar illa fyrir þá utan sólkerfis okkar.

Túkallinn: Allir sökka feitt nema ég, það er allt öllum öðrum að kenna um allt og alla nema mér.

Immagaddus segir.............................

Landsleikir.

Strákarnir okkar bara alveg skínandi ágætir í gær.
Nema hvað það vantar að klára færin og sækja meira.
Ég held að þetta allt skáni ef við losum okkur við liðsprestinn sem fylgir þeim. Hann er greinilega rangur maður.
Okkur vantar góðan sóknarprest með strákunum, þá verða sóknirnar markvissari og allt gengur betur.
Annars tafðist eitthvað að tilkynna sænska byrjunarliðið í gær, og var það vegna þess að það lenti inn í mengi og það tók forever að reikna það út.
Annars stóðu þeir ensku undir væntingum margra og kláruðu sitt dæmi.
Pólverjarnir í vinnunni hálf hundasúrulegir með það.
Jæja best að halda áfram að vinna.
Hamra smjörið meðan það er heitt. Eins og sagt var í Engey forðum daga, eða áður en hún losnaði frá meginlandi Evrópu og rak inn Faxaflóann og steytti á skeri við Kollafjörð.


Immagaddus segir..........................

miðvikudagur, október 12, 2005

Heygðu mitt hjarta við undað hné.

Jæja.
Landsleikjahrina í dag.
Djöbbi væri gaman að Pólland myndi vinna England.
Enski sjúklingurinn yrði ekkert smá pirraður.
Ekki þorir maður að gera neinar kröfur til okkar manna, því svíar verða með 11 grýlur inn á vellinum, en okkar menn eru soddann dúkkulísur að þeir tapa þessu örugglega niður í algera sneypu.
Annars er ég að drepast í hnénu einu sinni enn.
Og mér er alveg sama þá að læknirinn minn segi að þetta sé bara aldurinn að segja til sín.
Það er bull. Hitt hnéð á mér er jafngamallt og mér er ekkert íllt í því. ( Áður sagt og meint)

Eftir smá hugsun er ég búinn að komast að því að 38,7 prósent vinnufærra manna á Íslandi hefur einhverntíma á lífsleiðinni unnið hjá Ferskum Kjötvörum. 7,9 prósent ef við tökum Evrópu alla.
For god seik, thats a lot of pípúl.
Síðan ef við förum nánar út í þetta þá vinna ekki nema um 24 prósent af þeim vinnufæru mönnum sem eru hjá Ferskum í vinnutímanum.

Túkallinn: Gamalt fólk sökkar í öllu sem það tekur sér fyrir hendur. Sérstaklega í umferðinni.

Immagaddus segir.........................

Árla dags og hálf kalt...

Vá maður! Rússar alltaf frumlegir og langt á undan.
Nú þegar afmæli Johns Lennons er að bresta á, tóku sig til nokkrir ungir rússar og smíðuðu gulan kafbát úr gosdósum vodkaflöskum og gömlum Lödum sem komu frá Íslandi fyrir nokkrum árum. Óafvitandi að það er búinn að vera gulur kafbátur skammt frá Albert docks í Liverpoolborg í mörg ár.
Miklu flottari. Því hann er smíðaður úr niðursuðudósum utanaf Steak and kidney pie, gömlum olíumettuðum dagblöðum utanaf fish and chips og úrkasti frá British Leyland.

Æðislega nenni ég ekki meira í bili.


Annars er Lási lappalausi enn alveg laus við Finnsk áhrif.

Immagaddus segir....................................

laugardagur, október 08, 2005

Kafteinn Morgan. Dreitill sökkar feitt.

Mikið assgoti er brjóstamjólkin í fallegum umbúðum.

Jæja nú er komið að því að fara að fara að fara að fá sér bjórdreitil.
En sá dreitill er miklu skemmtilegri en hvíta fíflið sem söng í auglýsingunum fyrir nokk löngu síðan.
Síðan ætla ég að mæla mér mót við kaftein nokkurn kenndan við Morgan og athuga hvort það sé ekki kominn tími á rúllubaggana hjá honum.
Er búinn að vera að reyna að ná sambandi við feitabjörn, en hann er sennilega að kenna leikfimi einhvernstaðar upp í sveit.
Er það ekki skrítið að þeir í kléntbergsskóla hafi beðið leikstjóra að kenna leikfimi.
Er eitthvað samband þar á milli.
Muna að taka heymæðispillurnar mínar ef ég ætla að heimsækja pjakk.
Var næstum dauður síðast.

Immagaddus segir.....................................

Pælingar..Ekki á tönkum.

Var að spöklera.
Eftir að gei umræðan varð svona mikil er eiginlega komin önnur merking í Íslenzka orðið.
"Strákapör"
Eða finnst ykkur það ekki. Sem minnir mig á það að.
Ég hef verið svo frægur að búa eitt ár á Kópaskeri. Vann þar hjá alveg fyrirtaks fyrirtæki sem heitir Fjallalamb.
Og þar þögnuðu lömbin.
En nóg um það.
Á þessum tíma sem ég bjó þarna sem var á seinni hluta síðustu aldar.
Var fátt annað að gera en að vinna,ríða og drekka brennivín.
Og ekki endilega í þessari röð.
Eitt sinn, þegar ég var búinn að drekka svolítið brennivín. Fór ég ekki að vinna, enda komið kvöld, fékk mér ekki að ríða, því stelpan sem bjó þarna var í heimsókn hjá Ömmu sinni inn á Akureyri. Datt mér í hug að fremja smá strákapör.

Sem fólst í því að taka niður fánann hjá landsbankanum, og setja hann á Rarik fánastöngina og öfugt. Síðan setti ég Essófánann á Olísfánastöngina og öfugt.
Semsagt það er eitthvað öfugt við strákapör.
Nei annars.
Fólkið í þorpinu varð alveg steinhlessa á þessu öllusaman og upphófust miklar umræður um það hvernig þetta hefði nú gerst, og hver gerði þetta.
Einhvernveginn féll grunur á mig. Saklausan aðkomumanninn.
Hmmmmmmm!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Ég heimsótti pleisið síðan 12 árum eftir að ég fór þaðan og fólk er enn að tala um þetta.
Talandi um boring life from hell.

Immagaddus segir.............................

Ýmsar hræringar á geði.

Skiluru?
Ætlaði að fara að blogga á ensku en.......
Hugsaði aðeins málið.
Nei best að gera það ekki.
Lási lappalausi gæti orðið brjálaður og farið í meiðyrðamál við mig.
Það gæti nefnilega skaðað í mynd hans á erlendum grundvelli.
Sérstaklega þá í London og New york, þar sem hann hefur unnið fyrir sér sem marathonhlaupari til margra ára.
Lögfræðingar mínir lögðu það til að ég héldi mig bara við íslenzkuna.
Nýjar og ókræsilegar fréttir af Madam XXL.
Kom niður í búningskklefa um daginn.
Sat þá ekki Maddaman á hækjum sér og var að reyna opna einn skápinn með skrjúfjárni. ( þá þið lásuð rétt. "Skrjúfjárni"). Ég slengdi á hana. Hvað ertu að brjótast inn í annara manna skápa?
Ég hélt hún myndi plotsa maður. Ég sá samstundis eftir því að hafa spurt fíflið því ég fékk 125897 orða skýringu á því af hverju hún var að þessu.

Annars.
Landafundirnir miklu.
Fullt af mönnum á mislélegum tréskipum finna fullt af landa og fara á fyllerí.
Skrifa síðan einhverja bullshit sögu um hvað þeir áttu að hafa fundið á meðan túrnum stóð yfir.
Þá aðallega drykkjutúrnum.

Túkallinn: Hvor fíkniefnamálin fara hraðar í gegnum kerfið?
Þau sem fjalla um spítt?
Eða þau sem fjalla um hass?

Ég segi spítt.


Immagaddus segir...........................

fimmtudagur, október 06, 2005

Rafmagnslaust taka tvö.

Mikið assgoti hefur Páll Magnússon hlegið mikið í gærkveldi.
Stöð tvö gat ekki komist í loftið vegna smá straumhnykks og fréttatíminn tafðist um einhverjar mínútur.
Og ekkert smá um afsakanir maður lifandi.
Vá maður allar tölvur opnar í fyrirtækinu.
Sennilega vegna þess að það varð straumhnykkur einhversstaðar einhverntíma aftur í reykjavíkurborg.
En getið þið sagt mér hver gengur þarna niður austurstrætið í ótrúlegum bónusskóm.
Og ætlaði að kjaftí yfirvaldið en en barði bandvitlausan lóm.

Nú er Bónína Jen alveg fallinn í ónáð hjá öllum og ekki lengur neinn púls hjá henni.


Verst var að hún sparkaði í Lása lappalausa þegar hann komst ekki á göngubrettið hjá henni.

Immagaddus segir..............

Rafmagnslaust, og fleiri tilbuðir.

Vá hvað maður getur verið skemmdur stundum.
Nýkominn heim úr vinnunni í gær. Settist aðeins fyrir framan sjónvarpið og ætlaði að horfa á American Chopper á Diskoverí.
Allt í einu og fyrirvaralaust. Alger almyrkvi á sól.
Ég smá pirraður.....,Sérstaklega á þögninni sem fyrst fylgir á eftir svona rafmagnsleysi,
En jafnaði mig síðan og hugsaði. Jæja fyrst ég get ekki horft á sjónvarp þá er best bara að fara að elda.
DOH!
Rafmagnslaust maður.
Átti bakterísútvarp og kveikti á því.
Rafmagnslaust víða á höfuðborgarsvæðinu.
Ég hugsaði eins og skot.
Þetta er helvítis múslimunum að kenna. Sennilega hafa þeir flogið flugdreka á spennuvirki fyrir álverið.
Síðan kom á daginn að þetta voru fallistar úr Fellaskóla sem kveiktu í kofa Tómasar frænda og hljóp glóð maraþonhlaup í einhvern spennuskúr og brenndi hann til ösku.

Samkvæmt frétt sem ég las í DV um daginn, er ég sjálfhverfur.
Sem hefur ekkert skylt við sandhverfur, en þær eru botnfiskar sem hafa undir í lífinu og marflatar með útsræð augu, svona eins og fyrsta kærastan mín, áður en hún fór í hundanna.
En það er önnur,lengri og sorglegri saga að segja frá.


Immagaddus segir..................

þriðjudagur, september 27, 2005

Sápuópera frá helvíti og margt annað leiðinlegt.

Jæja.
Þá er Jónína Ben búinn að láta fjarlægja báða baugfingurna á sér. Fannst henni það mikill bónus því þá er ekki hægt að bendla hana við Bónus.
Jón Ergó Sullenormur er orðaður við að hafa sullað einhverju saman við alla sem viðkoma Baugi groupsex og þetta fjölmiðlaklám ætlar engann endi að taka.
Er virkilega ekkert annað að gerast í heiminum en þetta.
HMMMMM!
Þetta efnahagslögsögubaugsríkisrannsóknarabull er algerlega út í hött. Eða jafn mikið út í hött og orðið. Efnahagslögsögubaugsríkisrannsóknarabull.

Að léttari fréttum.
Þasð látast að meðaltali 250.000 Bandaríkjamenn úr reykingum á ári. Og þá er ekki talið þeir sem reykja undir stýri og deyja í umferðaslysum, því dánartíðni þeirra er talin til umferðaóhappa.
Þeir sem deyja síðan af óbeinum reykingum eru sárafáir og teljast því ekki með því þeir geta fallið í hvaða flokk sem er.

Til baka að Baugsmálinu.
Mér finnst planið sem þetta er komið á alveg til fyrirmyndar.
Gamlar kerlingar eru farnar að fylgjast með þessu eins og hverri annari sápuóperu og eu aðeins að bíða eftir vandræðalegu þögnunum og nærmyndunum.

Djöfull hlakka ég til með að sjá áramótaskaupið í ár. Það er alveg skothelt búið að redda því.
Það besta við þetta alltsaman að bónusfeðgarnir eru einu sigurvegararnir í þessu öllusaman.

Immagaddus segir..............

mánudagur, september 26, 2005

Brrrrr,flensur og frábært.........

Hæ elskurnar mínar.
Það er meira hvað erlendir bloggarar,sem ekki getað lesið íslensku geta verið að kommentera á þessa blessuðu síðu.
Jibbí. Í flestum tilfellum er þetta eitthvað sem þeir eru ekki að leita eftir. Sorrí gæjs.
Annars er ég búinn að vera liggjandi í flenskuskít alla síðustu viku,með hita og hausverk.
Afrekaði það helst að smita pabba minn af þessu, blessaðann kallinn.
Fór á bikarleik fram og Vals á laugardaginn. Djöfull var kalt mar.
Þessi leikur fór bara ágætlega fram og var val á leikmönnum til fyrirmuyndar.
Því miður var ekki hægt að fara fram á meira.
Púllararnir geta ekki púllað sig uppúr meðalmennskunni ennþá, það er með ólíkindum hvað þeir eru slappir þegar þeir eru á Englandi og þurfa að spila enskann bolta.
Gæti þetta verið tungumálaörðuleikar????????
Frábært annars að vera kominn til heilsu aftur og vera farinn að þykjast vinna í vinnunni..

Fékk.
Fékk mér aðeins neðaníðí um helgina.
Ekki það að það sé svo merkilegt. Nema fyrir þær sakir að ég held að ég hafi aldrei drukkið svona lítið yfir eina helgi síðan ég var 11 ára gamall. eða var það 12 ára.
Hvað veit ég svosem um það. Löngu búinn að drekka frá mér bernskuminningarnar.

Annars sorgleg sagan af Lása lappalausa, þegar hann fékk ekki að keppa í 100 metra spretthlaupi.

Immagaddus segir..........................

fimmtudagur, september 15, 2005

Bóhannes,Lási og þingmaður......

Eins og einhversstaðar hefur komið fram.
Í gær var ég í kringlunni, og sá þá kerlingu með svo stórt rassgat að það hafði sinn eiginn kjördæmakostna þingmann.
Djísús. Engin smá læti á kaffihúsinu undir rúllustiganum.
Ég var með kaffi í bolla sem var á borðinu, og ég sver að þetta var eins og í jú rassinn park.
Höggbylgjur komu í kaffið í bollanum.
Annars er ég ekki enn búinn að fá mér tölvu, sem þýðir að enn er Immagaddus svolítið stopull.

Ég held annars að Liverpool verði evrópumeistarar, annað árið í röð.
Ég vona bara að Liverpoolliðið haldi það sama.

Svakalega mikið búið að vera mikið að gera í vinnunni þannig að mikið af mínum tíma hefur farið í að vera mikið í vinnunni. Það mikið að mikið af mínum vinum hafa sagt það við mig að það hafi ekki sést mikið af mér þessa dagana. Mikið þykir mér það miður.

Haustið búið að stimpla sig inn, og sést það helst á hvítum toppi Esjunar, offlæði af innmat úr sauðfénaði og launahækkunum hjá tekjuhæðstu ráðamönnum þjóðarinnar.

Mikið er ég ánægður að þeir séu loksins að fá almennilegar launahækkanir. Þeir þurfa á þeim að halda.
Þeir eru svo góðu vanir að þeir verða að halda uppi lifistandardinum.
Við hin sem erum síðan vön að lepja dauðann úr skel, þurfum ekki eins miklar hækkanir og þeir því við erum hvort sem er engu góðu vön. Og bíðum þessvegna bara eftir því að Bóhannes í Jónus lækki verðið ennþá meira á kartöflum,korktöflum og kúskús.


Annars er hún súrsæt sagan af Lása lappalausa, þegar hann fékk engann Finna.


Immagaddus segir........

laugardagur, september 03, 2005

Gaman að vera þekktur fyrir að vera heimskur eða hvað

Viku eftir að ég tók gáfnaprófið, bauðst mér 18 únsur af sumarbústaðarlandi í Svínahrauni fyrir 12 milljónir króna. Auðvitað lét ekki ginnast af því það vita allir al land er ekki selt í únsum heldur í böllum eins og baðmull.

Annars erf gaman að fá að vita og staðfest að hasshausar og apótekarasynir í Ameríku lesa bloggið mitt.

Ekki enn kominn með eigin tölvu. Mín með terminal deseace,

Annars er Lási lappalausi nýbúinn að koma undir sig fótunum í Ástralíu.

Immagaddus segir................

sunnudagur, ágúst 21, 2005

Mig er lifandi

Jæja elskurnar mínar. Ég er lifandi.

Er að pikka þetta inn hjá. Feitabirni.

Muna www.feitibjorn.blogspot,com.

Djísús maður lifandi, Flott fokkíng flugeldasýning, vildi að ég hefði verið á góðu E þegar ég horfði á hana, þangað til að það byrjaði að rigna. Þá óskaði ég mér að ég hefði verið á góðum bát.

Fréttir:
Ísraelsstjórn hefur nú ákveðið að snúa sér til kanslara þýskalands um aðstoð við að flytja landnema af Gaza svæðinu. Vegna fyrri reynslu við að flytja gyðinga nauðuga viljuga frá einum stað til annars.

Fréttir:
Vísindamönnum hefur tekist að finna nýtt vopn gegn eyðni.
Er þar vísað til Ástralskrar rannsóknar á krókódílum.
Það vill svo vel til að efni unninn úr blóðrauða þeirra geta drepið bæði krabbameinsfrumur jafnt sem HIV veiruna.
Ok. Hendum sjúklingunum ofaní gryfjuna.
Lækningin betri eða verri en sjúkdómurinn?
Spyrjum að leikslokum.
Annars vita allir að krókódílar geta drepið flest allt sem þeim dettur í hug, án þess að fella tár.
Milljón ára þróun sýnir það.
Þeir eru eitt elsta óbreytta lífsformið á jörðinni í dag. Og eru sennilega búnir að sjá eftir nokkrum tegundum drepast úr sjúkdómum sem viðkoma kynlífi við apa.
Þessvegna hafa þeir ekki haft áhuga áð ríða neinu með heitt blóð, eða svona svipað og að enginn hefur ennþá reynt að ríða borgarstjóranum okkar.

Annars er alveg til í að verða milligöngumaður um að Leon C fari í næsta Eurovision.
Við höfum hvort eð ekki haft gott sjóf þar síðan Páll Óskar brilleraði.

Síðan er hún góð sagan af Lása lappalausa þegar hann gekk í kommúnistaflokkinn......


Immagaddus segir..........................

fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Dragsjó,áfengi,drykkjuskapur og töf

í sambandi við dragkeppnina.
Byrjaði sumarfríið á því að fara til afars góðs vinar til að tilkeyra whiskyflösku. Írska. Einnar möltuð. Plús kippu af Bavaria sem er sennilega sá alversti bjór sem bruggaður hefur verið.
Ergó.
Missti þar af leiðandi af dragkeppninni.
En plís farið á feitabjörn aftur.
Einn töffaðasti köttur í heimi er að horfa á mig núna , en bara með öðru auganu, hitt missti hann eftir einhver átök sem aldrei verða tíunduð hér þannig a' ég er óver and át.



Immagadus segir..............

miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Sommerferjé..bjór og drag.

Jæja síðasti dagurinn í vinnunni í fjórar vikur.
Gamann að eyða honum svona í fíflaskap.
Ætla að kíkja á dragið í kveld. Feitibjorn er víst með puttana í þessu.
Síðan ætla ég að reyna að gera við tolvuskrattann minn svo ég get farið að bulla eitthvað aftur.


Immagaddus segir..................

föstudagur, júlí 29, 2005

seríúst.....

Strákar.

Ekki gera það sama við eiginkonur/kærustur ykkar og þið gerið við tölvurnar ykkar.

það er, að stækka innra minnið.

Það er innipúkinn þessa helgi.

Er í annara manna tölvu sem er ekki eins gott og að vera í annara manna jússu en.

talvan/tölvan mín siglir nú hraðbyri í að vera tólf kílóa bréfapressa.

Annars ágæt sagan þegar Lási lappalausi félkk viðurnefnið " Flækjufótur "

Immagaddus segir...................

mánudagur, júlí 25, 2005

Óþekktarormur.

Þar sem einhver óþekktarormur hefur tekið sér bólfestu í vélinni minni.
Verður eitthvað lítið um blogg um sinn.

Þið verðið bara að sæta ykkur við það um sinn.




Immagaddus segir...............

föstudagur, júlí 08, 2005

Overkill....

Ég skal ekki segja.

En.

Allur hinn vestræni heimur er í tætlum.
Nema bretinn.
Sem er svo vanur að vera sprengdur upp af miklu vanari mönnum, sem hata þá miklu meira,
Kippa sér vart upp við þetta.
"It was a minor unconviniece, really"
Oh! some disgruntal Arabs you say? I ´d really don´t want to go down that road.

En.

Ég skal ekki segja.

En.

En.

Hefur þú einhverntímann gert þig að algeru fífli?

Ef ekki.

Prófaðu það.
Það getur verið afar frelsandi.


Immagaddus segir............

Er það ekki?

Er það ekki yndislegt að blogga svo ofur yfir allri heilbrigðri áfengisneyslu að þegar þú lest bloggið seinna hugsar þú.
Hverju var ég að reyna að koma til skila.
Síðustu tvö blogg mín gefa það til kynna.

Reyndar eru þessi tvö blogg núna á DVD disknum. " Hvernig á ekki að blogga 101"
Einnig að finna í kilju frá Al Anon. Ekki blogga fullur.
Síðast en ekki síst. Stuttmyndin. "This is your brain on drugs"

Immagaddus segir.......................

sunnudagur, júlí 03, 2005

Ég hef sitið og hugsað,..............

Lenti í smá væringjum á Parvda.
Keypti fullt af drali til þess að það yrði gaman.
Ó hverssu rangt það var hjá mér.
otffarifu sólbrúni gaurinn sem var smátt og smátt að missa sig°.
Án grín.What about joe.
snilldin var á
Fínar stelpur á svæðinum
Dúndruðust mér og einum öðrum.
En Allt í einuaðtlar álets að fara að skipa, hvernig ættti að niður virt borðin sem vorusem

Laus helgi...................

Var vísað á eða...................................
Var að fara að makee a move.
Já anners var vísad út vegna
Hann rakst utan í mig, með fullt fang af Wotkum og sígarrettulofordum
Sýndist vera OK en samt ekki.
Ætlaði auðvitað að fara heim, enda búinn á því.

Allt í einu og fyrirvaralaust.
Alger almyrkvi á jörð.

laugardagur, júlí 02, 2005

Auðvitað.......

Kæra þjóð.

Ekki vera svona sár.
Þingmennirnir okkar þurfa 143 daga sumarfrí frá þingstörfum.
Þeir þurfa að fara heim á bæina sína.
Bera á túnin, tæma haughúsið, grafa undan grindum í fjárhúsunum, girða upp á nýtt, svo að blessaðar ærnar fari ekki upp á þjóðvegina okkar með lömbin sín.
Síðan þarf að fara að huga að slætti, slá og fá mannskap í heyskap, bíða eftir veðri svo hægt sé að heya, ef grasið er ekki sprottið þá þarf að dytta að ýmislegu, eins og til dæmis. Mála fjósið eða fjárhúsin, sækja um styrki frá hinu opinbera, rukka bílstjóra sem keyra á lömb og svo lengi mætti telja.

Með sama hætti. Ætti skóli ekki að byrja fyrr en seinnipart september, því eins og að alþjóð veit fara öll börn á grunnskólaaldri í leitir og göngur á þeim tíma.
Sum ánetjast víst kynlífi og eiturlyfjum, en það eru kallaðar ógöngur og enda oft með því að það þarf að leita að þeim.


Annars góð sagan af Lása lappalausa þegar hann hlóp á sig.

Immagaddus segir.......................

föstudagur, júlí 01, 2005

Já afsakið..............

plink.

Bara til að vera viss.

Dæmisagan hér á undan þarf ekki endilega að vera Sjóvá Almennar.
Biðst afsökunar á því ef ég hef móðgað, eða skaðað einhvern.
Tók bara Sjóvá Almennar, Því það er flottasta tryggingarfyrirtækið og mest þekkt og er til þess valið perfect í brandara.

HMMMMMMMM!

Bráluð vinnuvika liðinn.
Nú veit ég hvernig flötu Coka Cola líður þegar því er hellt niður vaskinn.




Immagaddus segir............................

Nú má Ég

Shit.

Var að prufukeyra nýjann mestmegnis benz.....
Geheðveikt flottur.
Aksturstölva. Keyrð á Windows.
Var á 378 km hraða á bílaplaninu við borgarspítalann, þegar gamall kall með blómvönd gékk út á götuna.
Ég steig á bremsuna. Og þá kom upp. " Do you wan´t to brake " Ég haldandi dauðahaldi í stýrið með vinstri hendi, stimplaði inn já með hægri hendi.
Þá kom upp. " This forward moevement has been interuppted by an unexpected program. Do you wan´t to continue? "
Ég stimplaði inn. " Yes "
þá kom upp.
Do you wan´t to brake?
Ég enn haldandi í stýrið með vinstri hendi, stimplaði inn. " YES "
Upp kom. Synthax error. Change letter size.

Kjartan Helgason.
Lést við Borgarspítalann.
Dánarörsök.
Skv. Sjává Almennum.
Hemlunarbúnaður.


Immagadus segir............

Lengi lifi dómskerfið...............

Æðislegt.
Opið skotleyfi á kerlingar.
Jamm.
Ofbeldisfullir heimilisfeður með minnimáttarkomplex.

Til hamingju.

Frétt.

Nú má berja eiginkonu sína / sambýliskonu.

Nú má berja kerlingarnar.................Alveg þangað til að það fer að sjást..........
STRÁKAR!!!!!!!
Maður sleppur nebblega ef kellíngin er með áverka undir þeim stöðlum sem rétturinn ákveður hverju sinni, plús það að ef við kallarnir berjum þær nógu mikið að þær hafa ekki rænu á að hafa " Réttargæslumann " þegar þær rakna úr rotinu til að kæra okkur þá sleppum við............

HVERS KONAR DJÖ...............................RÉTTARKERFI ER ÞAÐ?

Jú.
Mike´s Tysons kind of society.


Immagaddus segir................................

föstudagur, júní 24, 2005

Mér langar svolítið í þágufall.
Kynntist því um daginn og er orðinn sjúkur.

Fer bráðum í meðferð gegn þágufalli.
Eins og einhver sagði.
Frændi minn var svo þágufallssjúkur að hann þurfti að nota umferðareyjarsveppi til að geta reimað á sig skóna.

En það er náttúrulega bara sillí.

Enginn veit af hverju Svala Björgvins er talin til tónlistarmanna.
Og músíkspekúlantar víða um heim langar afskaplega mikið að svala forvitni sinni á henni.

Mamma var vön að segja.

Beggi minn. Ef hún er ljóshærð og getur sungið, þá er það, það eina sem hún getur gert.
Þessvegna hef ég haldið mig við stelpur sem eru annaðhvort rauðhærðar eða sköllóttar.
Sköllóttar vegna þess að þær eru með krabbamein og eru á síðasta snúningi. Og vá þvílíkt skemmtilegt samlíf.
Skamm. Þetta var ljótt.
Ég ætla samt ekki að delíta þessu. Of latur.

Anyhow.

Lási lappalausi er orðinn nokkuð pissed yfir því að fá aldrei neitt í skóinn.

Immagaddus segir.........................

Karlmenn ofl........

Ætla aðeins að stela frá feitabirni:

Þessi saga gerðist fyrir um 10 árum síðan.

Mikael Jackson and Samuel L Jackson were on a boyscout meeting, when the clubhouse suddenly cought fire.
SLJ: Shouted. Lets get the hell out of here!
MJ: Said what about the boy? We have to save them.
SLJ: Shouted. FUCK THE BOYS.
MJ: Replied. Do we have the time?

Ef ég væri með hatt. Tæki ég hann ofan.
Gæji í vinnunni.
Er búinn að vera að sverma fyrir einni pólskri.
Bauðst til að keyra henni heim í gær.
Ók henni síðan bak við gám í Bílanaust og smellti í hana.
Var síðan svo vitlaus að hringja í vinnufélaga og segja frá sigrinum.
Sagan var akkúrat 0,0021357 sékúndur að breiðast útum fyrirtækið.
Seinna hleraði ég inn í sal. sem er fullur af kerlingum að hún hafi virkilega treyst honum til þess að segja ekki frá.
Kommon stelpur.................................
Það skiptir ekki máli þó svo að við segjumst ekki ætla að kjafta frá.
Það vorum við strákarnir sem fundum upp.
Ég tek hann út áður en ég kem...............
Þarf ég að segja meira.
Stelpur. Þið eruð nú meiri bjánarnir.
Frasi sem yfirvélstjórinn á Sjómælingabátnum Baldri notaði yfir okkur strákanna, svona yfirleitt.
Áður en hann þreyttist.

Annars skemmtileg sagan af Lása lappalausa þegar hann var kominn með annann fótinn inn hjá
samfylkingunni.


Immagaddus segir...............................

miðvikudagur, júní 22, 2005

Sveitamennska, rollur & E-pillur.

Var annars að þvælast aðeins í miðborginni um miðnætti 17 júní.
Mikið djöfulli var miðborgin ógeðsleg. Pappír og flöskubrot útum allt.
Töluvert var víst um að kettir og rottur urðu að leita sér læknishjálpar vegna ótral skurða á loppum.
Mér finnst það alltaf jafn mikið snilld að við mörlandinn getum aldrei látið tómar flöskur niður nema á um 150 kílómetra hraða þegar við erum útidyra.
Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar á alla mína aðdáun skilið. Bæði fyrir hraða og vandvirkni.
Aðeins að allir opinberir starfsmenn skiluðu annari eins skilvirkni.
DV í dag.
Mourinho kaupir 17 ára ungling..............Svo var verið að andskotast í Mikael Jacksyni.

Nú þyrfti maður að koma sér upp litlu og sætu krabbameini.
Nýjar rannsóknir sýna að E-pillur geta stöðvað vöxt krabbameinsfrumna.
Djísús. Væri maður glaður í svoleiðis meðferð?.........????????...
Mikið getum við annars verið miklir sveitalubbar á stundum.
Nú er einhver gönguflokkur brjálaður yfir því að Clintarinn sé að taka upp mynd á Krýsuvíkursvæðinu og vill helst ekki að fólk sé að þvælast fyrir á meðan tökum á Iwo Jima myndinni hans fer fram.
NEEEEHEIIIIIII.
Göngugarpaliðið fer að grenja og........Við erum sko vön að ganga þarna um svæðið þegar okkur sýnist. " BUUUHUUU!!!! Við eigum þetta svæði enginn má vera þarna nema við.
Geri´ði það fyrir mig fólk.
Fullorðnist.
Það er ekki eins og það sé ekki nægt landrými á Íslandi.
Labbið bara eitthvað annað á meðan.
Það er ekki eins og hann verði þarna til eilífðarnóns. Svo er hann líka að leita eftir staðgenlum, svo þið getið labbað þarna um eins og lið í sprengjusjokki, og fengið ykkar skammt af illa uppgræddum svörtum mel.
Fucking rednecks.

Nú er Efling líka að verða vitlaus vegna innflutnings á Pólverjum til iðnaðarstarfa.
Og skiptir þá engu hvort þeir séu frá Norður eða Suðurpólnum.

25 ára maður ók á kind sem drapst. Sem sýnir að ef hún hefði verið í bílbelti, hefði hún ef til vill aðeins slasast.

Annars varð uppi fótur og fit þegar Lási lappalausi fór inn í Hvannbergsbræður.


Immagaddus segir..........

föstudagur, júní 17, 2005

Seinni slætti lokið í Rauðagerði ásamt hæ hó og 17 júní.

Drattaðist ekki almennilega á lappir fyrr en um 10 leitið.
Opnaði annað augað og horfði með ógeði á hversu góður dagur þetta yrði.
Labbaði fram á klósett og pissaði.
Tók síðan strætó inn í eldhús og fékk mér að reykja.
Opnaði síðan hitt augað og fékk mér bjór.
Var fyrir löngu búinn að ákveða það með sjálfum mér að slá garðinn svo ekki var um annað að ræða en að gera það.
NOTA BENE:
Ég hata garðvinnu.
Og allir rosa hissa því ég bý í húsi með nokkuð stórum garði.
Það er bara eitthvað við það að þegar maður er með brjálað frjókornaofnæmi er maður ekkert rosalega viljugur að vera nálægt ofnæmisuppsprettunni.
Ætla nú að fá mér meiri bjór og fara að grilla.
Gústi vinur minn. Þessi sem átti Birtu. Er á leiðinni og þá verður bjór og dart.

Annars fín sagan af Lása lappalausa þegar hann vaknaði en komst ekki á fætur.

Immagaddus segir.............

miðvikudagur, júní 15, 2005

Jökla og svo framvegis........

Einu sinni, þegar ég bjó í Fellabænum kom í fréttum að Þýsk ferðakona hefði dottið í Jöklu.
Leit var þegar gerð að henni og fannst hún tveimur dögum seinna á eyrunum.
Hmmmm?
Á eyrunum?
Datt hún þá í´ða eftir að hún skreyddist á land?
Djöfuls alkar, alltaf til vandræða. ( Takes one to know one ).
Fáir vita annarsvegar að ég hef spilað á vekjaraklukku í félagsheimilinu á Eskifirði.
Munið þetta þegar næsta þáttaröð af popppunkti byrjar og spurt er.
Hver spilaði á vekjaraklukku með hljómsveitinni ökklabandinu.
Ég hef líka spilað rassinn úr buxunum, en það er lengri og mun leiðinlegri saga.

Vertíðalok eru mismunandi.

Og fara þau aðallega eftir stærð skipa.
Það þýðir til dæmis ekki að nota sama vertíðalok á 70 tonna snurvoðabát og 4000 tonna ísfisktogara.
Þau einfaldlega passa ekki.
Auk þess sem vertíðalokin á snurvoðabátunum eru endurlokanleg, og gegnsæ.

Annars er hún ágæt sagan af Lása lappalausa þegar hann fór í göngur.


Immagaddus segir.......................

þriðjudagur, júní 14, 2005

Þar sem f, ríkum finnst að versla...

Stóð í röð í hagkaup áðan.
Frábært eintak af svona fertugri húsmóðir í spray on gallabuxum fyrir framan mig.
Hugsaði síðan.
Djísús kræst maður.
Þeir eru alveg hættir að smíða svona í dag.
Vöxturinn og allt.
MMMMMMMMMMMMMMMM..........Kynlíf. ( Sagt með rödd Hómers Simpsons)
Moveing on.
Gaman að fara með gamla manninn í búðir ( Stundum).(þe pabba)
Nokkuð þétt af fólki í Hagkaup Skeifunni.
Hann vopnaður innkaupakerru óð í gegn um mannþröngina eins og sjöunda skriðdrekafylki
Rommels við El Alamein. Og ekki með minni hávaða heldur.
Ýtti öðrum innkaupakerrum til hliðar með sinni og ef einhver stóð í vegi fyrir honum og tafð´ann ýtti hann við viðkomandi með kerrunni.
Það besta við það að ef einhver röflaði í honum vegna einhvers skorts á háttvísi, sagð´ann bara. Ba. Ba.Ba.Ba.Ba.Ba.
Sem er allger snilld. Af manni sem fékk 98 % málstol eftir erfitt Heilablóðfall fyrir um 5 árum.
Hvernig á fólk að kópera?
Það ætlar að fara að rífast. Fattar síðan að maðurinn er fatlaður og segir bara Ba.Ba.Ba.Ba.Ba.
Auðvitað ætti maður bara að nota þetta á allt og alla þegar maður verður pirraður.
Til dæmis. hefði ég ekki móðgað næstum jafn marga á Ölveri sl. föstudagskvöld, ef ég hefði aðeins sagt. Ba.Ba.Ba.Ba.Ba.Ba.
En svo lærir sem lifir.
Fjölskylda Halldórs Ásgrímssonar græddi víst um 88 kúlur á einkavæðingu Búnaðarbankans.
Það er samt ekki nógur peningur til þess að senda kallinn í lýtaaðgerð til að feika á hann bros.
MJ var sýknaður í gær.
Sem þýðir að hann er annar svertinginn sem getur keypt sig frjálsann. Hinn var OJ.
Saksóknaranum hefði sennilega gengið miklu betur ef réttarhöldin hefðu verið í Mississippi.
Þegar kviðdómurinn las upp sýknudóminn af öllum atriðum lögsóknarinnar, varð Mikael Jackson að sitja á strák sínum til að fela tilfinningarnar.

Annars er hún svolítið slöpp sagan af Lása Lappalausa þegar hann hljóp á sig.


Immagaddus segir..........................

laugardagur, júní 11, 2005

ó mæ god hvað ég er þunnur part lll The return of the beer.

Var að spöklera.

Þá þurfti Guð endilega að tala við mig.
Röflaði eitthvað um að ég þyrfti að leiða fullt af gyðingum útúr Egyptalandi.
Djöfull er ég að verða pirraður á honum.
Ég sagði gaurnum náttlea að það væru sárafáir eftir þarna, og líka það að ´ann væri að ruglast á mér og einhverjum öðrum einu sinni fokkíng enn og að tímaskinið hjá honum sökkaði.

Í guðanna bænum farið á feitibjorn.blogspot.com.
Smá snilld.

Er á 5 bjór. 19 stiga hiti úti og þynnkan farinn. Sjálfsagt til að pirra einhvern annann.
Nenni ekki meiru í augenblikket.


Jú annars.
Frábær sagan af Lása lappalausa þegar hann var tekinn fullur á reiðhjóli.


Immagaddus segir............................

Ó mæ god hvað ér er þunnur. Part II. The hangover strikes back.

Onaði fyrir sjónvarpið áðan.
Djísús.
Nei annars.
Kveikti á sjónvarpinu áðan.
Stillti á Eurosport.
Hmmm!
Strandblak kvenna. Jamm þar var eitthvað að horfa á.
Maður getur gjörsamlega týnt sér í að horfa á strandblak kvenna. Og það kemur íþróttinni ekkert við.
Ég hélt með liðinu sem var í minnsta búningnum.
MMMMMMMMMMMM. Kvennablak. ( Sagt með rödd Hómers Simpsonar)
Er að reyna að rifja upp það sem gerðist fyrir um 9 tímum.
Hamborgaragæji að ulla uppí pólska stelpu. Pólskar kerlingar sem líta út fyrir að vera skipasmíðastöðvar, en það er aðeins vegna þess að þær eru allar með ryðrautt hár.
Ókei það er vöxturinn líka.
Vissuð þið það að rúmlega helmingur af rúmlegusjúklingum taka rúmlega helming af öllu plássi á spítölum. Það er rúmlega áætlað af rúmlega öllum sérfræðingum sem sérhæfa sig í rúmlega öllu sem okkur kemur ekkert við. Samt er rúmlega helmingur af af þeim rúmlegusjúklingum sem gætu rúmlega komist fyrir í rúmum, rúmlega fjórðungur af þeim rúmlegusjúklingum sem fá aldrei legusár.
Moveing on.
Djöfull er ég annars þunnur í dag.
( sjá eldra blogg)
Enskur sjúklingur er að fara að koma í heimsókn til mín að því að hann gleymdi einhverju in his locker í gærkvöldi.
Mikið vona ég að það sé ekki eitt run.
Það gæti nefnilega verið slæmt. u.þ.b. 250 bakkar af hakki.

En.
Moveing on.

Guð talaði við mig rétt áðan og bað mig að borða alls ekki epli.
Varð smá pirraður og sagði að hann væri enn einu sinni að rugla mér saman við Adam.
Hann baðst afsökunar og gaf mér eplasnafs, fór síðan niðrá bryggju að veiða marhnút.

Annars er hún nokkuð smellin sagan af Lása lappalausa þegar hann fékk ekkert í skóinn.


Immagaddus segir.......

Ó mæ god hvað ér er þunnur.

Grillveisla.
Það var víst grillveisla í Ferskum í gærkvöldi.
Tækið splæsti fullt af bjór og grillmat.
Einhverra hluta vegna lenti ég í því að grilla.
Og grillið glamrar,grillið glamrar,grillið glamrar. ( Grimlið gramlar)
Nei annars grillið glamraði ekki neitt. Það hafði einfaldlega ekki tíma til þess.
Allt þetta fór afar vel fram, eða kr, starfsmenn nöguðu matinn og drukku bjór fram eftir kvöldi, allt fram að því að ég gerðist þágufallsjúkur og talaði eintóma steypu og stakk upp á því að allir færu í karaókí niðrí Ölver.
Þar tók ég Midnight special með CCR og náttlega You never walk alone, í tilefni þess að LFC grenjaði sig í meistaradeildina. Aðrir sökkuðu feitt. (Já)
Reifst við Grímseyjarkellinguna og sagði að hún væri KRAPP. Maðurinn hennar reyndi að koma henni til aðstoðar og niðurstaðan af því var sú að hann er KRAPP líka.
Semsagt Grímsey gæti verið kölluð Krapplagtistan ef Rússar ættana.
Góði bangsímonin kom í grillveisluna líka, en það er gæinn sem sér um framleiðsluna.
Hann kemur svo úr sumarfríi á þriðjudag,
Og honum er auðvitað boðið til starfa með þökkum.
Var ég annars búinn að segja ykkur hvað ég er þunnur?
Ég er það þunnur að þynnkan nær alveg frá póstnúmeri 108 til 101. Og fólk á vesturgötunni er nú farið að hringja í mig og biðja mig um að hætta að vera svona þunnur. þynnkan er farinn að trufla umferð á mótum Garðastrætis og Vesturgötu.

Arí dú arí dú ra rei. Arí dú Ari er dáinn.
Sem kemur náttlega engu máli við.

Á rölti mínu heim af Ölveri í gær talaði guð við mig.
Hann sagði að hann hefði kosið mig til að leiða Frakka til sigurs gegn Englendingum. Ég varð pínulítið pirraður og sagði honum að hann hefði einu sinni enn ruglast á mér og Jóhönnu, og væri obbulítið ruglaður á tímaskeiðinu.
Hann var ekkert smá mökkaður kallinn og gaf mér smá sopa að peijótinu sínu.
Annars var ´ann bara fínn. Ný rakaður og öpp to deit.
Samt. Boginn og með laptoppin á bakinu, vælandi og sýnið mér smá vægð.
Söng spáðu í mig og ég skal spá í þig, spáðu í mig og ég skal spá í þig.

Var farinn að leiðast þetta þóf, enda Esjan orðin sjúkleg, svo ég reddað ´enni læknavakt.

Akkúrat þegar þetta er skrifað er þynnkan farin, að vísu með aðstoð Egils sterka sem minn maður frá Færeyjum laumaði að mér.
Svo tæknilega séð er ég orðinn fullur aftur.

Annars er skondin sagan af Lása lappalausa þegar ´ann fór í áheyrnarprufu fyrir Riverdance flokkinn.


Immagaddus segir...................

laugardagur, júní 04, 2005

Í stríði falla óbreyttir borgarar.
Þeir sem ég þekki og ekki síst þeir sem þekkja mig, eru búnir að sjá þetta fyrir sér, sem ég set nú hér á prent. Þið hin. ( Bear with me). Eða bjór með mér.
Já. Óbreyttir borgarar.
Það eru alltaf óbreyttir borgarar sem bera skaða af öllum stríðum.
Þá skiptir endu hvort þu sért hamborgari eða borgari.
Ef þú ert svo óheppin/n að vera borgari í landi þar sem stríð geisar, þá taparðu.
Ef þú ert hamborgari í stríði,þá taparðu líka því þá er bætt vatni og jurtapróteini út í við þig. þig.
Og tæknilega þá máttu ekki hamborgari.

En það kemur sögunni ekkert við.

Fór í ríkið í dag. Og vá þvílíkar biðraðir.
" Dadda radda ra."
Fór í eina af sjö röðum sem voru á staðnum. Með 8 Stella Artois og 6 Egill sterkur.
Og beið........Og beið..............Og beið....................Og beið.
A-4 blað upp við kassann.
Við biðjumst afsökunar á þeim töfum sem geta myndast. En vegna bilunar í Reiknistofnun bankanna, ganga kortaviðskipti afar hægt fyrir sig.

KOMM´ON.
ÉG VAR ÞARNA ÞAÐ LENGI AÐ ÉG SÁ ÞRJÁR KYNSLÓÐIR AF ÍSLENDINGUM VAXA ÚR GRASI. OG TÓK ÞÁTT Í 147 JARÐARFÖRUM.

FRÁ ÞVÍ AÐ ÉG BYRJAÐI Í RÖÐINNI VAR 19 SINNUM SKIPT UM STRAFSMANN.
Og þegar ég komst svo loksins heim var búið að endurskipuleggja hverfið þar sem ég bjó í og þar er nú kominn alþjóðaflugvöllur með aðreinum sem liggja allar í átt að Gróttu.l
Og ég bý í SOGAMÝRINNI.

Annars.

Var að horfa á þátt á skjá einum.
Sjáumsst. Með Silvíu nótt.
Gargandi snilld.!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Svona sambland af. Aliciu Silverstone, í Clueless og ljósku frá helvíti.
Deffenetly whatcable. Bæði hún og þátturinn.

Lási lappalausi loksins farinn á vog................................Hann vó 57 kíló.


Immagaddus segir.............


miðvikudagur, júní 01, 2005

Gay Pride, Vala Matt og þorramatur........

Newsflash!!!
Geitungar munu ekki taka þátt í næsta Gay pride degi á Íslandi, því yfir 80% geitungabúa á Íslandi náðu ekki að framleiða neinar drottningar á síðasta sumri.

DJÖ.....Maður.
Í gær var síðasti þáttur Völu Matt á Skjá einum eða Innlit útlit. Og þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég varð svekktur þegar ég komst að því að hún var ekki drepin í lok þáttarins.
Yfirleitt er það þannig að þegar þáttaröð líkur drepst aðalpersónan........En, neeeeiííí.
Það kemur feit kiðfætt belja í staðinn fyrir hana og hún er með dýpri nafla en rassgat. JÆTS!!!!!!!

Ha!Ha!Ha!.
Indlandsforseti er 10.cm lærri en Mússójeppinn hans Óla Ragg.
Að vísu var Mússójeppinn á 8.cm hælum en samt..................
Hann er svo lágvaxinn að þegar það byrjaði að rigna, þegar hann var á þingvöllum,var hann sá síðasti sem varð var við það.

Tveir menn hafa nú látist af völdum hermannaveiki á Íslandi. Sem vekur upp þá spurningu.
Voru þeir skotnir eða sprengdir upp?

Ég þekki mann með fæðingarþunglyndi. Hann er búinn að vera þunglyndur síðan hann fæddist.

ÁTS!!!
Vaknaði upp í fyrrinótt af geðveikri martröð.
Dreymdi að ég hefði drukkið heimsins stærstu margarítu.
Og þegar ég vaknaði sá ég að það var saltrönd á klósettbarminum.

STELPUR.
Aðalástæða þess að við karlmenn erum alltaf með hendurnar í klofinu er vegna þess að.
HANN ER ÞARNA.
Svo sættið ykkur bara við það.
Þið getið prísað ykkur sælar. því. Ef við gætum það, myndum við gera eins og hundarnir og sleikja okkur þarna líka.

Ef sú saga yrði endurskrifuð af Landsímamönnum. Byrjaði hún svona.
" This was the winther of disconnect "

Munið þið myndina 9 og 1/2 vika. Með Mickey Rourke og Kim Basinger?
Ég hitti stelpu sem var til í svona senu með mat og fíneríi.
Minn klikkaði smá. Kom með þorramat og sviðahaus. Djöfull drap það niður mómentið.
Hugsaði eftirá.....OH! ég gleymdi rófustöppuni.

Sat einu sinni við hliðina á kerlinguí flugi frá Egilsöðum til Reykjavíkur, þegar hún spurði mig allt í einu. " Ef annar hreyfillinn bilar, hversu langt heldur þú að við komumst þá á einum hreyfli?"
Og ég eins og asni svara. " Alveg að brotlendingarstaðnum."

Immagaddus segir..................