Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

laugardagur, febrúar 24, 2007

The fallen madonna with the big boobies.

Engin er bloggsíða, né fréttatími án þess að minnast á hana Önnu.
Nú er loksins búið að ákveða að hún fái að verða gróðursett á Bahamaeyjum.
Mér finnst það alger snilld að allar helstu fréttastofur í heimi finnist dauði hennar merkilegri en allur barnadauði í heiminum til samans.
Allir sjúkdómar,náttúruhamfarir, og svo mætti lengi telja.
Ég veit fyrir víst að þegar ég kem til með að sparka í fötuna.
( Kick the bucket).
Verður mér bara hent í næsta endurvinnslugám, þar sem ég verð að moltu eftir 6-8 mánuði.
Og eina blaðagreinin um mig verður.

Molta til sölu.

Immagaddus segir.........................

Ísland er land mitt.


Svakalega er fréttaflutningur búinn að vera lasinn í þessari viku.
Við erum byrjuð að velja úr hverjir fái að koma til landsins okkar, það er.
Nú mega menn ekki Wham sitt vita ef þeir vilja koma hingað á skerið.
Þá vil ég að við göngum skrefið til fulls.
Ég vil ekki sjá eitthvað lið úr tónlistabransanum hér. Þvi að með textum sínum er þetta lið að ýta undir eiturlyfjaneyslu,vanvirðiongu við konur,uppreisn gegn foreldrum og kerfinu.
Stórhættulegt er fólk sem kemur hingað frá bílaiðnaðinum. það ýtir undir gróðurhúsaáhrif og ofsaakstur.
Ég vil ekki sjá að fólk komi hingað frá tískubransanum, það ýtir undir anorexíu og endalok ullarinnar/vaðmálsins.
Ég vil heldur ekki fá fólk hingað inn í landið sem hefur aðrar skoðanir en ég á matargerð.
Það ýtir nefnilega undir það fólk hér á landi hættir að borða súrmat,stropuð sjófuglaegg,hákarl,signa grásleppu og hvalkjöt.
Ég vil ekki fá litað fólk til landsins. Það gæti nefnilega ýtt undir fjölmenningu, og guð forði okkur frá því.
Ég vil ekki fá fólk hingað til landsins.

Snúum nú bökum saman.
Brennum alla flugvelli,hafnir og vegi.
Verum bara útaf fyrir okkur og nögum hertann fisk og byggjum okkur síðan nýja og betri torfkofa.
Heimurinn er vondur, við erum góð.
Spillum okkur ekki með utanaðkomandi áhrifum.
Slökkvum ljósin.

Immagaddus segir.........................

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Nýju búðir frh..

Ó þið vantrúuðu!
Við unnum!
Jamm.
Evrópumeistarana á heimavelli.
Meira að segja sannfærandi og verðskuldað.
þ.e.a.s. Í seinnihálfleik.
Og það er saga til næsta bæjar.
Til dæmis frétti eitthvað fótboltalið í Madrid þetta.

Þessi mynd sýnir Bellamy taka golfsveiflu eftir að hafa skorað í kvöld.

Fyndið hvað allir eru alltaf fljótir að afskrifa okkur púllarana.
Ég viðukenni það.
Búið að rota okkur útúr öllur bikarkeppnum á Englandi.
En.
En
Síðast þegar púllararnir voru svona lélegir.
Urðu þeirEvrópumeistarar.
En það er samt fjör.
Og það er fokkíngs afrek að vinna Barselóna á heimavelli.
Geri önnur lið betur.

Jibbííí.
Fullur og fínn..

Immagaddus segir.............................

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Án orða.







Immagaddus segir.......

Það sem misskilst.

Þessi samantekt er ekki tiltæk. Smelltu hér til að skoða færsluna.

Nýju búðir.

Þá er komið að því.
Liverpool gegn Barselóna.
Liverpool spilar átján holur í kvöld.
og verða með tvö mörk í forgjöf.
Ég er nú samt að verða smá smeykur.
Liverpool virðist vera með einhver innanliðsvandamál.
Nema að þau hafi verið skilin eftir í Portúgal, þar sem liðið hreinlega varð portúgalið.
Vonandi hafa þeir rasað út og skilið alla gremju eftir.
Mæta síðan í kvöld fíre og flamme eins og amma sagði aldrei þegar hún bakaði vöfflur á gömlum járnbala út í fjósi við grútartíru og bruggtæki.

En tökum upp léttara tal og tölum um mellur.


Immagaddus segir...................................

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Án titils.

Ef þu heldur að enginn sé ánægður að þú sért á lífi.
Prófaðu þá að borga ekki 4-5 afborganir af lánunum þínum.

Gefðu manni fisk. Og hann er saddur í einn dag.
Kenndu honum á veiða.
Og hann situr í bátnum allann daginn þambandi bjór.

Allir eru eðlilegir.
Þangað til þú kynnist þeim.

Ef þú lánar einhverjum 5000 kr. Og sérð hann aldrei framar.
Hefur það sennilega verið þess virði.

Það eru til tvær aðferðir til þess að rökræða við kvenfólk.
Hvorug virkar.

Immagaddus segir...............

mánudagur, febrúar 19, 2007

Portúgal hann teygaði...

Jæja.
Púllararnir í fréttum.

Bellamy fór á kostum og fékk örn við fyrstu holu.
Arne Riise fékk hinsvegar skolla.

Fowler og Dudek fóru í BDSM og voru leiddir í burtu í járnum.

En það er ekkert skrítið.
Tilvera Liverpúl er búin að vera í járnum síðasta og reyndar þetta tímabil.

Lífið er púl.
Annars leggst Barþelónaleikurinn vel í mig.
Þeir voru að spila eins og Lifrarpollur í gær.
Og sökkuðu.
Þannig að þegar að tvö lið sem sökka mætast............
Þá hljóta þau að blóa.

" When to teams that sucks meat, they must blow,,


Immagaddus segir...................

laugardagur, febrúar 17, 2007

Langt síðan.

Stuttu eftir kanaríeyjaferð, þar sem Ég, Ágúst,pabbi og Jón fórum í.

Lentum við Gústi á fylleríi með kallinum.

Þarna er hann að sýna okkur hversu langt fet getur farið.

Bara að nefna það.
maður veit nefnilega aldrei hvenær þessar gagnslausu upplýsingar geta bjargað manni frá líkamsmeiðingum.


Immagaddus segir..........................

Hundar í bílum.

Ef þu ert bíleigandi, og ert að hugsa um að fá þér hund.
Þá er þessi hérna alveg tilvalinn.
Til dæmis í veðurfari eins og hér á Íslandi.
Það er hægt að nota hann til þess að þurrka móðu af bílrúðum,þurrka af olíukvarðanum,nota hann sem bónklút,svo hef ég heyrt að kvenkynsbílstjórum finnst hann afar rakadrægur.

Þetta er hins vegar ekki klámhundur. Eða typical pornodog, eins og Kristján Ólafsson.
Nei þeir eru hinsvegar á leið til landsins með pompi og prakti.
Sennilega verður pompið tekið af þeim í tollinum, þannig að þeir koma bara hingað með prakti.
Femínistar,stígamót og boggi stjóri eru alveg að klepera yfir þessu reðurhúfupakki sem er að koma til landsins og vilja helst setja allt þetta lið í bönd.
En það er einmitt þema nokkura kvokmynda sem þau ætla að gera hér.

Mér finnst þetta allt í lagi.

Fín landkynning. Til dæmis fáum við titla eins og.

Debbí does Dalvík.
(The blue lagoon). Fær nýja merkingu.
Síðasti gaurinn í dalnum.
69. Af stöðinni.
Handjárn undir jökli.
Svo verður Sódóma Reykjavík sennilega endurgerð.

Immagaddus segir..................

Vá!

Í hvert sinn sem ég fer í sund.
Stend á sundlaugarbakkanum og hugsa.
Vá ef ég bara kæmi öllu þessu vatni fyrir í 250 gramma skinkupakka.


Immagaddus segir................

Málamiðlun.

KJötiðnaðarmenn eru nú tilbúnir að brenna alla kvenmenn sem gengu í stéttina eftir 2001.
Það ætti að svala hefndarþorstanum sem markaðurinn bíður eftir.
(Sjá galdrabrennur síðari ára).


Reyndar er erfitt að brenna kjötiðnaðarmenn á báli, vegna þess að þeir hafa ónáttúrulega stjórn á vatni.


Immagaddus segir.............

Gróði.

Á fundi kjötiðnaðarmanna í kvöld, var ákveðið með einróma samþykki allra félagsmanna, að fá umhverfisráðherra til þess að samþykkja að a.m.k. 1/4 af þingvallavatni verði notað í næstu bjúgnalögun, sama hversu lítið kjöt verði notað.


Immagaddus segir..................

föstudagur, febrúar 16, 2007

jæts!

Bandarískir glæpamenn í Texas.
Kunnu víst að vera drulluhræddir við kvenkynsdómarann Constance Harm.

immagaddus segir....

Fór.

Þurfti að skreppa smá stund inn í Kringlu í dag.
Sá þar svo þreytulega konu að.
Fólk örmagnaðist í kring um hana.

immagaddus segir........

Slæmt.

Þetta er orðið rosalegt.
Þar sem ég vinn.
Nú er tölvupóstur á milli fyrirtækis og allra kjötiðnaðarmanna á staðnum.

Fyrirtækið stakk uppá.

Komið með vatn í vinnuna og græðið.

Okkur kjötiðnaðarmönnunum fannst þetta ofsalega spennandi.

Ekki nóg með það að við gætum notað brunaslöngurnar hjá fyrirtækinu til þess að gera úlfalda að mýflugu,Eða heldur stækkað mýfluguna upp í úlfalda, heldur gætum við tekið svínagúllasbita og pumpað það miklu vatni í hann að við gætum selt´ann sem kjúklingabringu.
Sett síðan öll þau E efni sem við gætum fundið hjá Lísu í undralandi, sagt svona nokkurnvegin um uppruna þess sem við erum að selja," meðan að við felum hornin okkar undir hárneti,,
Og vonum að almenningur fatti ekki að við erum kannski/kannski ekki að eitra fyrir þeim.
Nei við kjötiðnaðarmenn vinnum ekki svoleiðis.

Og það er ekki svona.

Immagaddus segir....................

Óvinur fólksins númer eitt.


Jæja.
Ég hélt að ég yrði aldrei í þeirri aðstöðu að vera stimplaður glæpamaður.
En svo er nú raunin.
Ég er nefnilega kjötiðnaðarmaður.
Og þar liggur ástæðan fyrir því að ég er eiginlega ekkert búinn að blogga í vikunni.
Ég er nefnilega búinn að vera að safna rigningarvatni alla vikuna til þess að geta sett það í alla þá kjötvöru sem ég kem höndum yfir.
Ég hef líka verið að safna því vatni sem hefur verið að leysast úr þeim örfáu snjósköflum sem enn leyndust hér á höfuðborgarsvæðinu.
Ég hlakka óskaplega til þess að sjá Kompás á sunnudaginn.
Nú hljóta þeir að stimpla okkur endanlega sem verri menn en barnaníðinga og dópsala.

Kannski eru þeir með tálbeitur.
Hringja inn í kjötvinnslur og segjast eiga 19 tonn af vatni á góðu verði.........og svo framvegis.

Ps.
Myndin hér fyrir ofan er af vatnsmólikúli.



Immagaddus segir..................

Frjáls.

Jæja.
Klukkan orðin næstum 18.00.
Föstudagur.
Helgin er framundan.
Var farinn að syngja. " Day is never finished, massa got me working.
Somday massa set me free.
Svo gerðist það barassta.
Free! Free! Thank god I´m free at last.
Djöfulli leiðinlegur dagur í vinnunni.


En ligga ligga lá.
Semsagt kominn helgarhugur í mannskapinn.


Immagaddus segir........

mánudagur, febrúar 12, 2007

Án titils...

Er kannski ekki að segja að gyðingar séu heimskir.
En.
Þeir þrömmuðu eyðimörkina þvera og endilanga í 40 ár. Og drulluðust ekki einu sinni til þess að finna olíu.

En svona fyrir utan það.
Djöfull sökkuðu púllararnir um helgina.
Það er bara eins og allur vindur sé úr þeim.
Ein gott að þeir geri betur þegar þeir mæta Barca.

Mér var skapi næst að skipta anfield miðunum mínum fyrir. All you can eat bangers and mash dinner.


Immagaddus segir.......

laugardagur, febrúar 10, 2007

Jibíí!




Fyrsta markið í dag komið frá Bellamy.
Vonandi tekst púllurunum þetta nú.

Immagaddus segir.....................

fimmtudagur, febrúar 08, 2007

Spadsetur.

Samkvæmt læknisráði á ég að labba meira.
Þannig að akkúrat núna er ég að fara að gera mig klárann til þess að fara í smá spadsetúr.
Ef hinsvegar svo óheppilega að ég skildi rölta framhjá Ölver á ferðum mínum.
Þá verður bara að hafa það þótt ég fái mér bjór.
Doksi tilgreindi nefnilega ekkert um það, hvert maður skildi ganga.
Og, allir sem nenna yfirleitt að fara útfyrir hússins dyr í þessum kulda.
Eiga skilið að fá Thule.

Immagaddus segir...........................

þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Nei.


Nei!

Interpol er ekki starfsmannaleiga, sem getur útvegað pólverja hvaðanæva um heiminn.

Ég er viss um að þeir eru virkilega sorrí yfir þessu villandi nafni á stofnuninni.

Immagaddus segir............

Kommon!!!!!















Vaknaði grútþunnur á sunnudagsmorgunin.
Settist niður og byrjaði að flett ákveðnu blaði.
Titrandi með afréttunarbjór.

ER ÞETTA VIRKILEGA EITTHVAÐ SEM ÉG SEM KARLMANNI LANGAR TIL AÐ VITA?

þar sem ég sit þunnur inn í eldhúsi.
Gefið okkur smá breik.
Við hötum nú þegar dömubindaauglýsingarnar.
Haldiði virkilega að okkur langi til að fá þessa viðbót.

Djísús kræst maður.

Immagaddus segir........................

Nei.

Það var ekki þessi Gillette sem keypti Liverpool.










Immagaddus segir.................

Loksins.

Það var mikið.
Loksins hefur bæði hin almenna deild innan lögreglunnar og fíkniefnadeildin, ákveðið að beita sér gegn gróðurhúsaáhrifum á Íslandi.



Immagaddus segir........................

Jæts!


Þegar að Mæja Skelfiskur skrifaði söguna af Frankenstein, hinum vitfirrta prófessor og "skrímslinu,, sem hann skóp, renndi hana ekki í grun hvaða áhrif þessi saga myndi hafa á heimsbókmenntir og síðar kvikmynda og sjónvarpsgeirann.

En það er aðeins smámál miðað við sumar kerlingarnar sem ég hef vaknað hjá.


Immagaddus segir......

Stórfréttir.

Jæja þá er búið að selja Liverpoolliðið.
Amerískur athafnamaður og sætkikkið hans keyptu liðið.
Þetta er annars fengið að láni frá liverpool.is.

Þeir George Gillett og Tom Hicks sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í dag varðandi kaup sín á Liverpool F.C. Yfirlýsingin er svona.

"Liverpool er frábært félag sem á sér stórmerkilega sögu og eldheita aðdáendur. Við gerum okkur fulla grein fyrir hinni einstöku arfleifð og hinni miklu sögu sem Liverpool á. Við ætlum okkur að virða þessa arfleifð í framtíðinni.

Bæði Hicks fjölskyldan og Gillett fjölskyldan eru gríðarlega spenntar fyrir því að viðhalda arfleifð félagsins og hefðum þess. Við erum sérlega ánægðir með að þeir David Moores og Rick Parry munu halda áfram að starfa fyrir félagið. Við teljum að samfella og stöðugleiki sé lykillinn að framtíðinni

Hef svolitlar áhyggjur af þessu þarna með samfelluna.
Hver af lykilmönnum Liverpoolliðsins, kemur til með að leika í samfellu.

Immagaddus segir...............

fimmtudagur, febrúar 01, 2007

Ísland = bananalýðveldi.

Ætlaði að fá mér mynd af Íslenskum peningum á Wikipetia, sem er alfræðiorðabók á netinu.

Þegar ég sló inn Íslandi komu bara upp Brasilískir peníngar.
( Ég veit. Brot á ng og nk reglunni). Ef einhver er ósáttur.
Fari þá hinn sami og veri.
En.
Ríkisstjórnin er búin að vera að ljúga að okkur öll þessi ár.
Krónan er virkilega einskis virði.

Immagaddus segir.........................

Samkeppni.

Ef þetta væri í alvörunni.
Þá væri alveg á tæru hjá mér, með hvoru flugfélaginu ég flygi.


Immagaddus segir..................

Í Hálsaskógi.

Annar dagur í veikindum hjá mér.
Vöðvabólga búin að vera að safnast upp í herðum og hálsi þangað til að ég gat hvorki litið til hægri né vinstri.
Hef ekki einu sinni getað sofið almennilega fyrir þessu.
Fór til Saxa læknis í morgun.
Hann gaf mér pillur, eða kannski ekki gaf mér þær.
Ég þurfti að borga fyrir þær í apatekinu.
Svona Voltaren fyrir kanínur.
Voltaren Rapid.


Æðislegt að væflast svona í aumingjaskap heima hjá sér.

Immagaddus segir............................

þriðjudagur, janúar 30, 2007

Persónuleiki.

Sedrusviður - Sjálfstraust
09.02-18.02 & 14.08-23.08


Manneskjan býr yfir sjaldséðri fegurð og mikilli aðlögunarhæfni. Hún kýs að lifa í vellystingum, er hraust og örugg með sjálfa sig, ákveðin og oft á tíðum óþolinmóð, en hættir til að líta niður á aðra.

Það er ekki hægt að segja að manneskjan sé feimin, enda sækist hún stöðugt eftir viðurkenningu annarra. Hún á líka auðveldara með það en margur annar, því hún er bæði hæfileikarík og iðjusöm, er fljót að hugsa og lítur björtum augum á lífið. Manneskjan trúir á hina einu sönnu ást og finnur hana stundum.


Þetta fann ég um mig inn á spámaður .is( spamadur.is).
Og ku vera um persónuleika þeirra sem eru fæddir jú eins og segir hér fyrir ofan.
Eftir að hafa, að vísu þurft að velja fæðingarár og allt það.

Dæmi nú hver fyrir sig.


Immagaddus segir...................

Boltadagur.

Jæja.
Þá er það dagurinn.
Ísland gegn Liverpool og Danmörk gegn Westham united.
Eða var það Island/Danmörk.
Westham/Liverpool.
Það kemur út á hið sama.
Eftir 6-8 bjóra rennur þetta allt saman anyhow.
En samt.
Nú lemur það loks í kjós hvort þetta verða strákarnir okkar, eða bara þeir.
Ef srákarnir okkar tapa verða þeir, þeir.
En ef þeir vinna verða þeir strákarnir okkar.
Milið djöfulli vona ég að Eiður byrji inná.

Immagaddus segir.................

laugardagur, janúar 27, 2007

Landsins forni fjandi.

Hafís er nú landfastur við Arnarfjörð.
Fleiri hundruð tonn af honum.

Nei kæru íbúar þessa lands.
Ekki sleppa ykkur og æða vestur á firði.

Ykkur hefur sennilega misheyrst.






Þetta var ekki skafís sem rak á land.

Heldur hafís fíflin ykkar.

Þeir sem eru farnir af stað geta hinsvegar.










Pulsað sig niður í Staðarskála áður en þeir halda hnípnir heim.

Munið.


Hafís er rekís frá Grænlandi, fullur af pcb,salti og ísbjrnarhlandi.

Skafís er hinsvegar fullur af verksmiðjuframleiddu undanrennudufti íslenzku vatni,ljúffengum gerfibragðefnum,E- númerum,næloni og áttahundruðogníutíuföldum ráðlögðum ársskammti af sykri.

Namm! Namm!.
Það keppir enginn við það.

Immagaddus segir..........

Munum fyrsta mars.

Fyrsti mars ætlar að verða mjög góð mánaðarmót í sögunni.
Bjórinn leyfður.
Matvælaverð lækkar.

Bara allt gott við þessa dagsetningu.
Hér fyrir neðan er svo skýringarmynd af neytenda að verjast hækkunum á matvælum og vöxtum bankanna.











Immagaddus segir.....................................

Bein þýðing.

Bara í Vatnaskógi.


















Immagaddus segir.......

Páskafrí.

Búið að bóka.
Jibbííí!
Ég og Chris, sem er einn feðra fánans í samnefndri kvikmynd spaghettívestrakonungsins Clint Eastwood, erum að fara til London.
Ætlum að skoða þar öll söfnin og merkar brýr sem kunnast að leynast víða yfir sprænuna sem klífur höfuðborgina í marga parta.
Fyrir mína parta er það bara gott.
Ég þarf frá frá Pabba og vinnunni, og Chris þarf hvíld frá eldhúsinu hans Mike.
Ætlunin er einnig að fara með bussinum eða treininu til Lifrarpolls.
En Lifrarpollur er einmitt menningarborg Evrópu þetta árið.
Það ætlum við að horfa á Liverpool gegn Marlboro.
Reykja Middlesboro og hafa það næs.
Okkur er strax farið að hlakka til.
Erum búnir að fá miða á leikinn og allt.
Gistum í Liverpoolborg eina nótt eftir leikinn.
Þá aftur til London til þess að klára að skoða þau söfn sem við náðum ekki að skoða fyrr í vikunni.
Yeah right!!!!
Ps.
Þar sem þetta er íþrótta og tómstundaferð verður ekki haft neitt áfengi um hönd.


Immagaddus segir...................

föstudagur, janúar 26, 2007

Dýralíf í kjallaraíbúðum.

Vá maður.
Mér brá ekkert smá í nótt þegar ég vaknaði til að fara í vinnuna.
Haldið að það hafi ekki verið könguló sitjandi á sænginni þegar ég vaknaði.
Aðeins tæft hálft fet frá andlitinu á mér.
Ég teygði mig í símann minn og tók þessa mynd af henni.
Athugið að þegar þetta gerðist var stærðin á köngulónni svona á við meðalstórann Japanskan jeppa, en eftir að hjartslátturinn var aftur kominn niður í um 85 slög á mínútu, var hún aðeins á stærð við Fiat punto.

Samt.
Mér brá.

Immagaddus segir..........

Fyrirtíðarbrandari.

Svona nokkuð kemur verðlaunaskápurinn hjá tjélskí til með að hafa eftir þetta tímabil.




















Immagaddus segir..................

fimmtudagur, janúar 25, 2007

Skokkarar.

Eins og alþjóð veit.
Elska ég skokkhópa.

Var að labba heim af Ölver.
Gert það stundum.
Mæti skokkhópi.
Geri það stundum.

Núna var ég í nokkuð góðu skapi þegar ég nokkuð hífaður gekk fram á skokkhóp sem var eitthvað að flíta sér. Með ufsilon íi, því það á að skrifa flýta sér en ekki flíta sér.
En hvað um það.
Ég miðaði á síðustu persónuna í hópnum.
Minnugur þess að ég hafði keypt BBQ sósu í 10-11 rétt áður.
Jibbííí.
Síðasi skokkarinn var kona.
Ég stoppaði hana og spurði.
Í staðinn fyrir að að reyna að ná hópnum, kemur þú þá bara ekki heim með mér og ég ber á þig BBQ sósu, og við spinnum eitthvað út frá því. Og lyfti upp BBQ sósuflöskunni.
Hræðslusvipurinn á stelpugreyinu var óborganlegur.
Ég elska skokkhópa.
Verst við það.
Að skokkhópar virðast ekki hafa neinn húmor.
Sérstaklega ef þeir eru einir og sér.


Immagaddus segir........

Ó nei!

Mikið svakalega eiga Pólverjarnir eftir að vera óþolandi í vinnunni á morgun.
Þeir voru að vinna okkur í fótbolta þar sem mátti bara nota hendurnar.

En.

Mikið svakalega verða þeir fúlir um næstu mánaðarmót þegar þeir komast að því að við verkstjórarnir/ sem einnig kvitta fyrir vinnuframlagi þeirra, snuðum þá um hálfs árs laun á næstu þremur mánuðum.


Immagaddus segir........

miðvikudagur, janúar 24, 2007

Ó sú náð.

Nú eru það strákarnir okkar.


Immagaddus segir.....................

Ég vil.

Nú er svo komið að ég er orðinn þreyttur.
Allir eru að jarma um jarma um jarðgöng.
Jarðgöng,jarðgöng,jarðgöng.
Jarðgöng. Smjarðgöng.
Jafna hlutskipti fólks til samgangna, hvað?
Vestmanneyingar og annað landsbyggðar fólk er alltaf jarmandi út af þessu.
Nú segi ég stopp.
Ég vil hinsvegar leggöng inn á hvert heimili til að jafna hlutskipti allra einhleyptra til kynlífs í landinu.

Immagaddus segir..............................

mánudagur, janúar 22, 2007

Djöfuls vesen.

Ég er orðinn það feitur að ég þarf að fara inn í Sóltún til þess að fara í bað.
Borga að vísu enn fólksbílaverð en samt................
Komst að því áðan að gæjonum þarna á þvottastöðinni finnst ekki nærri því eins gaman og mér þegar heita bónið kemur.

Ef þetta blogg kemur ekki til með að halda vöku fyrir einhverjum er ég illa svikinn.



Immagaddus segir..............................

Andlát.

Dr. fun er látinn.
Sjá nánar Liverpool .is


Immagaddus segir.........

Ljós í myrkri.

Lenti í því í gær að það sló alltaf út rafmagninu hjá mér á baðinu og í svefnherberginu.
Hmm.
Einmitt í þeim herbergjum sem ég er einna fáklæddastur.
Gæti þetta verið tilviljun?
Gæti verið.

En semsagt.
Ég reif öll ljós í sundur, ekkert að sjá, enda myrkur.
Tók allar rafmagnsdósir svo og tengidósir.
Ekkert að.
Skipti um slökkvara á tveimur stöðum og eina tengidós.
Ekkert gerðist.
Nú var svo komið að ég var ekki að kveikja.
Og þvísíður að hafa hugmynd um hvað væri að.
Hringdi á Rafvirkja sem þjónar okkur niður í vinnu
Hann kom á staðinn.
Eftir miklar pælingar þurfti hann að rífa rafmagnstöfluna í sundur.
Fann þar einhvern gulan vír sem var tengdur norður og niður.
Aftengdi hann.
Og viti menn það varð ljós.
Sennilega er einhver víetnami neðar í götunni þá hættur að fá frítt rafmagn.


Immagaddus segir..........................

laugardagur, janúar 20, 2007

Ó nei.

MBL í dag.
Það ku vera komið nýtt lyf á markað sem getur bjargað sjón.
En það er bannað hér á landi.
Svo nú verður Sjón líklega að fara úr landi til að bjargast.
Annars vissi ég ekki að það þyrfti að bjarga honum.

Immagaddus segir..............

Harry Kewell.

Fyrirsögn á Liverpool.is í dag.
Harry Kewell snýr aftur.

Það verður meiriháttar í öðrum hálfleiknum.
Fer eftir því hvernig hann snýr í byrjun.
Vonandi snýr hann ekki aftur í fyrri hálfleik.
Þegar við þurfum að hann snúi fram.


Immagaddus segir................

Hæ!Hó!

Jabbarassta.
Hæ,hó og lengi lifi Pennannt.
Fyrsta markið hjá Púllurunum mínum var bara kjút.
En seinna markið hjá Pennannt var megasystemgeðveiktflott.
Loksins,loksins.
Púllararnir mínir voru að spila alvöru fótbolta.
Ef þeir spila svona gegn Barþelona, geta þeir geta alveg orðið evrópumeistarar aftur og einu sinni enn. *****

Sem þeir verða ábyggilega.
Aníhá.
er að fara á fyllerí með Gústa.
Sjáums á grand.
Vantar té í sjáumst.
Á líka að vera stórt gjé í Grand.


Immagaddus segir................

Cervesa del dia.

Er að fara gera mig ferðbúinn á Ölver að horfa á Liverpool tjélskí.
Ef Púllararnir tapa þessu verð ég alveg brjálaður og kem til með að drekkja sorgum mínum í bjór eitthvað frameftir degi.
Ef hinsvegar Púllararnir vinna.
Kem ég til með að fagna með bjór í hönd eitthvað frameftir degi.

Hvernig sem fer.
Kemur bjór við sögu.

Immagaddus segir........................

föstudagur, janúar 19, 2007

Án titils.

Það kom til mín veikur draugur um daginn.
Ég læknaði hana.
Nú á að kæra mig fyrir skottulækningar.

Ef kringumstæður væru aðrar.
Væri ég 195 cm á hæð,85 kíló.
Og ætti skrilljónir af péníngum.

Hvernig væri upplit á fólki ef ég færi nú út í garð með benzínsláttuvélina mína og byrjaði að slá?
Djöfull væri það fyndið.
Í þeim töluðu orðum heyrist. Pzzzzzzt og Budvar læðist inn á svið.
Glug,glug,glug.
Formlegt hálfsdags vetrarfrí byrjað.
Ætla í augnháralitun,skeggsnyrtingu,brasilíst vax og rassháraplokkun.
Nei annars, held ég sleppi skeggsnyrtingunni.
Síðan ætla ég í fitusog. Það er, ætla að fá mér súrt hvalsrengi.
Það heyrist nefnilega svona hljúpp! Þegar maður lætur það renna upp í sig.
Súr hvalur,maltbjór og bóndadagsfyllerí.
Hvað er betra en í 8 stiga gaddi í Reykjavík en að verða hífaður?
Auðvitað að verða hífaður í Reykjavík í 28 stiga hita, en það er við hliðina á bendið.(beside the point).


Immagaddus segir.......................

Opinber aftaka.

Nú þegar endanlega er búið að taka Guðmund í Byrginu af lífi opinberlega, eyðileggja fjölskylduna hans og alla framtíð þessa manns.
Óska ég okkur öllum til hamingju.

Ég var alveg gersamlega búinn að gleyma því að ég væri syndlaus þegar ég aðstoðaði við að henda steinum í þennann mann.
Þar á meðal í því, að óhugsuðu máli að detta inn í miður góðar umræður um manninn, sem ég þekki ekki neitt, og minna til verka hans.
Veit bara það að allt það góða starf sem hann innti af hendi verður aldrei af honum tekið.
Og það er það fyrsta sem gleymist.
Myndbönd,myndir,hljóðupptökur.
Ókey.
Látum það liggja milli hluta aðeins.
Smá peningar sem misfarasti í bókhaldslegum skilningi.
Þessi maður er búinn að bjarga fullt af mannslífum líka.
Og þegar á botninn er hvolft. ( Ég veit. slæm myndlíking).
En þegar á botninn er hvolft.
Telur það ekki eitthvað líka?

Dæmum ekki svona fljótt.
Munum.
Maður er saklaus uns sekur fundinn.
Og jafnvel, saklaus þó sekur fundinn.

Immagaddus segir.................

Vetrarfrí.

Mætti nokkuð snemma í vinnunna í dag.
Gerði það sem þurfti að gera, eða allavega það sem ég þurfti að gera.
Fór síðan inn á skrifstofu, þar sem arðræninginn situr og hlær, því línuritið sýnir betri sölu í dag en í gær.
Aha ha ha ha.
Þúsund gúllas á færibandinu þokast nær.
Hvaða há sem er.
Þá vældi ég út 1/2 frídag vegna þess að það er skíturinn úr Jack að gera.
Það er farinn saurhleðsla ( shittload), af kjöti út og ég farinn í smá bjórfrí.
Eftir svona viku á ég nefnileg skilið að fá Thule.

Kannski meira en bara thule.

Immagaddus segir........................

fimmtudagur, janúar 18, 2007

Nám.

Ætlaði að fara í fjarnám á vorönn.
Setti kommu óvart yfir a.
það komu einhverjir kallar og tóku alla peningana mína.

Immagaddus segir................

Skóli.

Ætlaði að fara í fjarnám núna á vorönn.
En nennti því ekki.
Alltof langt í skólann.

Immagaddus segir...................

Svolítið fyndið.

Mér er illt í hnénu.

Immagaddus segir................

Ekki fyndið.

Mér er svo illt í hnénu að það er ekki fyndið.


Immagaddus segir..............................

laugardagur, janúar 13, 2007

Meðal annars.

Ég þoli ekki hvernig ég stama.
Annaðhvort þagna ég í miðri setningu eins og það hafi lokast fyrir orðaforðann, og ég byrja að leita í samheitaorðabókinni, bara til þess að uppgötva að henni hefur verið lokað líka.
Eða þá það að ég tala á 16 snúningum. ( Lægsti hraði á plötuspilurum í gamla daga.)
Þegar ég tala á 16 snúningum er það eins og hljóðið heyrist þegar eitthvað er sýnt í slow motion.
Ekki bara pirrandi fyrir mig, heldur líka fyrir fólkið sem ég er að tala við. Sérstaklega ef ég eða það er að flýta sér.
Sjáið þið það ekki fyrir ykkur.
Ég segi til dæmis. " Heyrðu, ég er að flýta mér, og má ekki vera að þessu."
Tveggja mínútu þögn......meðan ég að alefli leita að orðum. Þegar ég svo finn þau er ég aðrar 2-5 mínútur að koma þeim til skila.
Og allir löngu farnir.

Komst ekki í X factor í þetta skiptið.
Kemst hinsvegar í annann þátt.
XXL factor.
Verð að fara í megrun.

Var að horfa á fullorðinsmyndina. Titty,Titty gangbang.
Enginn fljúgandi bíll.
Bara grímulaust klám.

Vandinn með nýju kærustuna mína er sá að hún vill bara trúboðsstellinguna.
Svo nú löbbum við húsa á milli og bönkum á dyr og gerum það fyrir framan fólk, meðan við reynum að sannfæra það að þetta sé eina rétta stellingin.



Immagaddus segir........

Import part 2.

Verður þessi fluttur inn líka?


Immagaddus segir............

Import.

Er þetta ekki óþarfa innflutningur?



Immagaddus segir....................

Lifur í matinn

Jæja.
Púllararnir mínir unnu sannfærandi sigur á Watford í dag.
Watford var hinsvegar....Like a candle in the wind.
Eltann Jón hlýtur að vera fúll.
Nú er bara að bíða og sjá hvað manjú og tjélskí gera.
Vonandi gera tjelskí í buxurnar.

Immagaddus segir.................

Allt í lagi.

Ruddir gangstígar bjór og sigurleikur.
Er hægt að biðja um betra?


Immagaddus segir............

þriðjudagur, janúar 09, 2007

Það fór nú svo.

Þessi maður sem þarna fórnar höndum er sá sem er búinn að fá á sig 9 mörk í tveimur leikjum.
Geri aðrir betur.
Liverpool tók á móti Arsenal áðan.
Þeir voru ágætir fyrstu 20 mínúturnar.
Síðan tók að síga á ógæfuhliðina.
Ég hef barasta ekki séð aðra eins nauðgun síðan ég sá myndina. The accused.
Ekki nóg með það að Arsenal valtaði yfir Liverpool, heldur bökkuðu þeir smá og völtuðu svo yfir þá aftur, og aftur,og aftur...oo svo framvegis.
Ég þakka bara guði fyrir það að Arsenal telfdi ekki fram sínu sterkasta liði.
Þá hefðum við eflaust fengið að sjá handboltatölur í þessum leik.

The liverpool team were the suckiest bunch of suckers that ever sucked.
They plain sucked.
Tveir helvítis leikir og fá á sig markatöluna 9-4.
Grr ég er brjálaður.............

Bíð rosaspenntur eftir Barcelona leiknum.

Immagaddus segir...................

föstudagur, janúar 05, 2007

Tungumál.

Þar sem ég vinn á fjölþjóðlegum vinnustað, held ég að ég megi þetta.
Ég held að bretar séu akkúrat eins og frakkar.
Þeir vilja bara tala eitt tungumál.
Enskan þeirra er ekki einu sinni eins og enskan sem er töluð í Ameríku.
En það er önnur saga.
Tvítyngdur breti.
óhugsandi.
Hinn almenni breti hugsar sennilega þannig.
Tvö tungumál í einum heila. Það er óhugsandi.
Enginn getur lifað á þeim hraða.

Hollendingar hinsvegar geta talað 4 tungumál og reykt marijuana.
En það er önnur saga.
Þetta byrjaði afar snemma hjá bretum.
Um leið og einhver gat smíðað bát.
Fór hann á eins marga staði og hann gat til að kenna öðrum að tala ensku.
Því ef hann þyrfti að fara þangað aftur.
Gat hann talað og skilið fólkið á þeim útnára hann kom við síðast.
Síðan smíðaði bretinn stærri bát, og tók vini sína með sér, því það gekk svo helvíti illa að kenna öðrum ensku.
Þetta endaði með því að bretinn þurfti að smíða svo stóra báta, að þeir urðu að kalla þá skip.
Því það þurfti orðið æði marga til þess að neyða enskunni upp á þá útnáramenn.
Bretinn þurfi loksins að smíða það stór skip að þau þurftu að vera með fallbyssur og hermenn, til að kenna þessu útnárafólki að tala ensku.
Og þeir eru ennþá að. ( Sjá sjónvarpsþátt. Little Britain). Og slatti af Harrierþotum.
Any how.
Early lesson í heimsvaldastefnu.


Immagaddus segir..................

fimmtudagur, janúar 04, 2007

Pirringur en annars allt gott.

Er svolítið pirraður yfir allavegana tvennu til þrennu.
Náttúrugripasafn þjóðarinnar er í bráðri hættu, aðallega vegna þess að árið 2007 er hvorki hipp né kúl að halda upp á eitthvað náttúrugripasafn.
Fyrir svo utan það að það segir enginn hip og kúl lengur.
Það ætti að fara á Náttúrugripasafnið.
Annars hversu margar þjóðargersamar eru að fara til andskotans vegna þess að enginn vill ljá þeim aura lengur.
Listasafn Einars Jónnsonar eru til dæmis geymdar/ gleymdar í óupphituðum bílskúr.
höggmyndir, málverk, og bókles.
Ókey eftir einhver ár, þegar málverkin og bóklesið er orðið ónýtt.
Er hann þá bara Einar Jónsson. Brjálæðingur sem fyllti bílskúrinn sinn af höggmyndum svo enginn sæu þær.
Því auðvitað afbakast sagan ef við höldum ekki utanum hana.

Í Öðrum fréttum:
Þennann dag árið 1521. Var Marteinn Lúther bannfærður.
Og smokkaframleiðendur um allann heim, þakka guði fyrir þann dag.

Seinni fréttir..
Farið inn á kvikmynd.is.
Smellið á myndbandið með Celine Dion, syngja You shook me up all night long.
Kæru landsmenn.
Celine Dion.
Er loksins búin að fá að ríða.
Hélduð þið virkilega að hún myndi fara að vinna í Las Vegas og ríða ekki framhjá Renee gamla.
Þið sjáið það best á því að hún er hætt að hreyfa sig monografískt.
Tékkiði á myndbandinu.

Immagaddus segir................................


miðvikudagur, janúar 03, 2007

Án titils.

Já það er ekkert grín að vera svín.
Og vera étinn á jólunum.
En það er ekki málið.

Eru pörupiltar kallaðir pörupiltar að því að þeir eru með svo ljóta húð?

Immagaddus segir..................

Ha! Ha!

Hrefnusteik með piparsósu
Aðalréttur fyrir fjóra

800 g hrefnukjöt, kjötið þarf að þiðna áður en það er steikt
Grill- og steikarolía , sítrónupipar.

Hrefnukjötið er skorið í 1 sm þykkar sneiðar. Þeim er dýft í steikarolíu
og síðan settar á þurra og snarpheita pönnuna.
Buffin eru steikt í 37 sekúndur á fyrri hlið og 36 sekúndur á seinni hlið.
Kryddað með sítrónupipar.

Piparsósa
250 ml mjólk
250 ml rjómi
smjörbolla - eða sósuþykknir í pakka
4 steiktir sveppir, settir út í sósuna
2 tsk kjötkraftur
2 dl sherrý
1 tsk sítrónupipar
1 tsk svartur pipar, mulinn


Og þarna er hún uppskriftin af Bónussíðunni.
Var bara að pæla í því.
Vegna þess að Baugur group var að fordæma hvalveiðar.
Kannski væri skynsamlegra að tala við alla grúppuna?
Bara svona uppá það að gera, Hey!! Strákar erum við nokkuð að selja hvalafurðir, áður en við fordæmum hvalveiðar.

Ps.

Annars er súra rengið alltaf djéskoti gott.


Immagaddus segir........................

Óknyttir.

Nú er sá tími að sprengingar heyrast um stræti og torg.
Í dag sá Mogginn sig knúinn að vera með smáfrétt um að einhverjir óknyttastrákar, væru í því að henda kínverjum fyrir fætur fólks.
Með þeim afleiðingum að þeir brotna illa eða togna.
Hefur þetta haft í för með sér að eldhús sem sérhæfa sig í austurlenskum mat eru að verða óstarfhæf vegna manneklu.
Athugið samt að myndinn af kínverjunum hérna á ekkert skilt við bullið í mér.


Immagaddus segir.........................

mánudagur, janúar 01, 2007

Við.


Við sem eigum ekkert.
Engann konung,enga drottningu,prinsa,prinsessur, og svo framvegis.
Gefum samt orður.
Fálkaorðuna.
Núna fór hún til 15 manns.
Næstum allar orðurnar fóru til fólks sem var hvort sem er að vinna vinnuna sína.
Skv. Þessu ætti ég að fá stórriddarakrossinn fyrir óborgaða yfirvinnu.
Ég meina það.
Fálkaorðan er orðinn máttlaus.
Það er stundum verið að slá fólk til riddara sem, jú hefur nennt að mæta í vinnuna sína í einhvern árafjölda, gert sæmilegustu hluti, en.
Við erum öll að gera sæmilegustu hluti.
Kommon. Kerling fær tign bara að því að hún vann á sama stað í einhver ár og var góð við alla.
Karlfauskur fær tign að því að hann nennti að vinna vinnuna sína í þau ár sem hann vann hjá ríkinu án þess að fara framúr fjárframlögum deildarinnar hans, þangað til að hann var orðinn einn eftir.
Hættum þessari sýndarmennsku.
Öðlum fólk sem hefur afrekað eitthavð.
Og þá í formi lista og eða mannúðarmála.
Ekki bara að því að ég hef verið kjötiðnaðarmaður í 40 ár, og hef stuðlað að því að fólk fái að borða.

Immagaddus segir..........

Áramót

Immagaddus segir..... Gleðilegt Ár.
















Immagaddus segir.................................