Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

laugardagur, september 22, 2007

Loverboy.

Margir
hafa
tekið
eftir
því,
að
Benni
lati, hefur nú látið lita
skeggið á sér svart.
Talsmaður Benna sagði að hann hafði
gert þetta til þess að auðvelda sér að ná
í geitur.


Immagaddus segir..............

föstudagur, september 21, 2007













Ekkert Magnhús.
Hefur ekki staðfest.
Kaup á nýjum framherja.
Óraunhæfar fréttir herma samt.
Að nýr stræker sé að koma til
félagsins.


Immagaddus segir..........

Hilton.

I
have
always
found
Paris
Hilton
being
a
North
end
of
a
South
heading
Ass.


Immagaggus segir.......

Memorandum.

Fyrir ótæknisinnaða lesendur
Immagaddusar.
Öðruvísi litur á letri, gæti
þýtt linkur.



Immagaddus segir...........

vænkast hagur Strympu?

Jibbí!
Kominn
í
frí.







Immagaddus segir.................

Fréttir.












Eftir ítarlega rannsókn, hefur Rannsóknarlögregla Ríkisins,
komist að því að, seglskútan sem var notuð sem smygltæki
fyrir u.þ.b. 60 kíló af Amfetamíni. Sé ekki skúta.
Heldur spíttbátur.


Immagaddus segir............

sunnudagur, september 16, 2007

Hlýnun Jarðar.











Einn af þeim kostum sem virðast gleymast
í umræðunni um hlýnun Jarðar eða " Global Warming ".
Er það að konur fara að nota bikini meira og meira.


Immagaddus segir................











Okkur Liverpoolmönnum er
ekki kalt lengur.
Við erum víst komnir af toppnum.


Immagaddus segir.............

Tónleikar seinni hluti.















Kominn heim af tónleikum með Jethro Tull,sem
haldnir voru í H-skólabíói.
Massívir tónleikar maður.
8,7 í einkunn.

Afsakið myndgæðin. Tekið á síma sem man fífil sinn fegri..

Immagaddus segir.............

laugardagur, september 15, 2007

Tónleikar.











Er að fara á tónleika með Jethro Tull í kvöld.
Eða er kannski ekki að fara með þeim.
Heldur með Aðalsteini Gunnaras stórvesírs.
Vonandi verða þetta góðir tónleikar.

Immagaddus segir.............

föstudagur, september 14, 2007

Ekkert má.




















Rakst á þessa frétt.
Bara sniðugt.

Immagaddus segir......

Kópavogur.














Nokkur skilti sem gætu átt við í Kópavogi.


Immagaddus segir.........

miðvikudagur, september 12, 2007

Stundum.

Þegar
maður
á
ekkert
að
drekka
verður
maður
oft
þorstaheftur.


Immagaddus segir..........

þriðjudagur, september 11, 2007

Bræla.



















Þegar vont er í sjóinn.
Verða smábátar þorskaheftir.


Immagaddus segir...........

sunnudagur, september 09, 2007

Búinn að gleyma.

Var að skima netið og fann þetta.
Skemmtilega hallærisleg auglýsing.

Samt snilld.

Immagaddus segir...........

fimmtudagur, september 06, 2007

Glórulaus.

0 1 2 3 4 5 6 7 8 9 →

Cardinal 5
five
Ordinal 5th
fifth
Numeral system quinary
Factorization prime
Divisors 1, 5
Roman numeral V
Roman numeral (Unicode) Ⅴ, ⅴ
Arabic ٥
Arabic (Urdu) ۵
Bengali ৫
Chinese numeral 五
Devanāgarī ५
Hebrew ה (He)
Khmer ៥
prefixes penta-/pent- (from Greek)

quinque-/quinqu-/quint- (from Latin)

Binary 101
Octal 5
Duodecimal 5
Hexadecimal 5
Vigesimal 5

Þegar að ég varð fimm ára.
Hafði ég ekki hugmynd um allt þetta
fyrir ofan.

Immagaddus segir................

Ádeila.

Alltaf skemmtilegt að heyra ádeilu um ádeilu.

Smelltu hér.

Immagaddus segir..............

miðvikudagur, september 05, 2007

Vont.

Það kemur fyrir að maður lendir
á einhverju sem er vont.

Vont.

Klikka á vont.

Immagaddus segir.........

Fréttir.













Í blöðum og fréttatímum allra fjölmiðla.
"Víetnömsk könguló fannst á Eskifirði"
Vá maður. En sú frétt.

Immagaddus varð að fá frétt.
Immagaddus fékk frétt.

Samkvæmt áræðanlegum heimildarmanni Immagaddusar.
Hefur þessi könguló nú hreiðrað um sig í einum kerskálanum
í álverinu í Reyðarfirði, og selur Íslenskum köngulóm, flugur, eldaðar á
Víetnamska vísu.
Þar á meðal í engifer,sítrónugrasi,hnetusósu,ostrusósu, eða bara bakaðar í álpappír.
Búin að sækja um dvalarleyfi fyrir karlinn sinn, en fær ekki innflutningsleyfi fyrir hann.
Vegna þess að hún ætlar bara að éta hann á meðan á samförum stendur.
En það ku vera bannað innan EES.


Immagaddus segir.........

Þannig er það.




















The vacuum of space is really a tenuous plasma awash with charged particles, electromagnetic fields, and the occasional star.

Þetta er nákvæmlega það sem við meinum þegar.
Eitthvað sökkar feitt.


Immagaddus segir................

Að.


















Pavarotti ku víst vera að syngja sitt síðasta.

Immagaddus segir..........

sjón.





Varð fyrir því óláni að brjóta gleraugun mín
í vinnunni fyrir sirka 18 dögum.
Fór og pantaði mér ný.
Þar sem ég átti engin almennileg varagleraugu,
fyrir utan gömul átthyrnd 37 kílóa stál og glermassa
sem voru næstum einskinsnýt.
Þurfti ég ný.
Það sem er allra ótrúlegast, að ég fúnkeraði næstum í vinnu
án gleraugna, en djöfull var ég þreyttur þegar ég kom heim.
Staulast um, hálf blindur og reyna að einbeita sér.
Og þar sem öllum í vinnunni var sama, fékk ég ekkert breik.
Fékk loksins ný gleraugu.
Búinn að fá sjónina á ný.
Hef heyrt að tryggingarnar í vinnunni komi til með að borga gleraugun.
En ég ætla samt ekki að halda niðrí mér andanum að það gangi átakalaust.

Immagaddus segir...............

Blessuð sagan.


















Fréttamynd.

Þessi fréttamynd, gæti hafa verið tekin í gær, eða jafnvel í dag.
Mynd af nauðungarflutningum og þjóðarmorði.
Svona fréttamynd af því sem er að gerast í kringum Ísrael í dag.
En því miður er þetta aðeins eldri fréttamynd.
En af sama toga og Ísrael er að gera núna.


Immagaddus segir....................

Ekki er?

Þarna
er
mynd
af
steini
sem
veit
ekki
Hvort hann þurfi að fara í próf eða
ekki.

Immagaddus segir..........

Gaman.

Dafydd og Elton.
Bara snilld.

Kerksni á besta veg.


Immagaddus segir....................

Pirringur.

Það
sem
er
aðallega
að
pirra
mig
núna,
er að ég fæ ekki að hafa neitt í friði.



Immagaddus segir....................

Andlát, part ll.

Eins
og
með
Mark
Twain.
Eru
sögur
um
andlát
Kastrós
stórlega
ýktar.
Kastró er nefnilega ekki dauður.
Hann var bara í Bolungarvík.

Immagaddus segir.............

þriðjudagur, september 04, 2007

Greiði.

Vinur minn hestamaðurinn,
hringdi í mig áðan.
Bað mig um að hjálpa sér.

Einn hesturinn hans hafði fótbrotnað, og af því að hann
átti enga byssu, bað hann mig um að koma með
Sakóinn minn.

Ég fór upp í Víðidal til hans.

Hann sýndi mér hestinn, og bað mig um að skjót´ann,
því þetta væri svo ljótt fótbrot.
Óviss. Skaut ég hestinn.

Svo núna er hann fótbrotinn og með skotsár.

Er ekki viss um hvernig það ætti að flýta fyrir batanum,
en ætla að kíkja á hann á morgun, ef hann verður ekki orðinn eitthvað skárri.
Þá skýt ég hann aftur.

Immagaddus segir...................

fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Bændablaðið.

Við
fáum
Bændablaðið
alltaf
sent
í
vinnuna.
Brilljant!
Gaman
að fá loksins blað þar sem ekki er minnst
á sóðaskap kringum skemtistaði,ölvunarakstur,akstur undir áhrifum
vímuefna,barsmíðar í miðbænum,Aron Pálma og fleiri hermdarverk.
Þarna sest maður niður með blað, les um nýjustu mörkin á lömbum,
nyt í kúm, ( Eða beljum sem ekki kunna að beygja kýr),

Þarna Fáum að sjá myndir af verðlaunahrútum í staðinn fyrir myndir af drykkjurútum.

Og smáauglýsingarnar eru alveg æðislegar.
Ekki eintómar auglýsingar um símasex.
Heldur um alvöru hluti.

Eins og til dæmis.

Einn í vandræðum.
Notað diskaherfi óskast strax.
Má þarfnast lagfæringar.

Upplifir maður það besta.

Fjölskyldur sem virka.
Hannyrðir,hreppamót,sýsluríg,skáldskap og önnur mannleg samskipti, án þess þó að allt þurfi að vera undir 163 desibela tónlist.
Fæst af því sem fer fram í sveitum þessa stórkostlega lands.
Nær aldrei í blöðin.
Þökkum guði fyrir það.



Immagaddus segir.

mánudagur, ágúst 27, 2007

Kerlingar spila ekki á rafgítar.

Ágætis myndband.
Fullt af silúettum.


Halló.

Klikkið á hallóið.

Immagaddus segir........

laugardagur, ágúst 25, 2007

Stuð.

Alltaf
fjör
hjá
mér.
Fór
hjólandi
áðan
frá ölver
af
sigurleik
Liverpool
upp
í
10-11 búðina í Glæsibæ.
Spurði afgreiðsluungling.
" eru þið með rafhlöður?,,
Ég veit ekki var svarið.
Jibbí.
Sannaði auglýsinguna, fór í 10-11 og var snöggur af því.
Hjólaði í Olís í Álfheimum.
Ekki til rafhlöður þar.
Kommon. Ef þú færð ekki rafhlöður á bensínstöð!!!!!!!...
Hjólaði þaðan sem leið liggur að Hagkaup Skeifunni.
Og af því að ég var með 7 Thule í maganum, nennti ég ekki að rassgatast útum alla búð, svo ég innti starfsmanni sem nýlega hafði losnað við bleyjubruna, eftir rafhlöðum.
Og ÚPS!
Hvað eru rafhlöður?
Ha. Sagði ég. Ég er að spyrja hvar geymið þið rafhlöðurnar.
Aftur.
Hvað eru rafhlöður.
Sjö bjórar og sigurleikur LFC, kikkuðu inn.
Það eru svona rafmögnuð hús, þar sem bændur láta þurrkað gras í og geyma yfir veturinn
svo dýrin þeirra hafa eitthvað að borða.
Ha? Hváði Hagkaupspeysan.
Nei bara að grínast.
Er að spyrja um kubba sem þú setur til dæmis í ýmis tæki svo þau virka.
Ó!
Meinaru batterí.
Ég hvíli töskuna mína.
Elti smábarnið.
Kaupi batteríin.
Og hjóla heim.

Immagaddus segir...................

Kúba.










Hvað verður nú um Kúbu?
Er bróðirinn með nægilegan styrk.
Verður blóðug bylting?
Eða verður bylting kennd við
flauel?

Og.
Hverfur hafnar og viðskiptabannið?

Hmmmm?

Immagaddus segir...............

Andlát.

Fidel
Castro.
Er
Látinn.
Hann
ku
vera
síðasti
skipsverji
Nóa
sem
enn
var
á
Lífi.
Hann
andaðist
í hárri elli, eftir stormasama ævi.

Blessuð sé minning hans.

Immagaddus segir.........................

miðvikudagur, ágúst 22, 2007

Local humor.









Ef þið vissuð það ekki.
Þá þarf að adda æjurnar
minnst tvisvar á dag.

Immagaddus segir.....................

föstudagur, ágúst 17, 2007

Leiðrétting.

Nifteind
Eiginleikar
Massi 939,6 MeV/c²
Rafhleðsla 0 C
Spuni ½
Kvarkasamsetning 2 Niður, 1 Upp
Flokkun
Öreind
Oddskiptaeind
Sterkeind
Þungeind
Kjarneind
Nifteind

Staðreind er hinsvegar
rosalega löt eðlisfræðileg ögn.

Immagaddus segir.........

Staðreind.
























Lík forn Egypta voru ekki smurð
til þess að þau gengu betur.


Immagaddus segir.................

Til áréttunar.









Múmínálfarnir sáu ekki um að smyrja lík forn Egypta,
né grafa þau.

Immagaddus segir.............



















Svona getur sólarupprás í Síðumúlanum verið skemmtileg.

Immagaddus segir.....

Fattlaus.

Er
stundum
ekki
að
fatta
hann
föður
minn.
Kom heim áðan.
Eftir 14 stunda vinnudag.
Búið að vera brjálað að gera.
Allir froskar í heimi vilja vera með í að kaupa
ódýrt svínakjöt.
Hvaða há sem er.
Kom heim.
Hálffullt eldhúsborð af bjór og ýmsum vörum.
Karlinn vippaði sér í flísjakka og heimtaði að ég færi með hann í
Smáralindarbankann.
Jibbííí!!
Akkúrat sem ég þarf eftir svona martraðarviku í vinnunni.
Biðum í eina og hálfa eilífð.
Karlinn komst að og heimtaði 10.000 krónur út af bókinni sinni.
Þegar komið var út í bíl lét hann mig fá 3000 krónur.
Takk pabbi. En. máttu þessu ríkidæmi afmælisgjafar ekki bíða aðeins.


Immagaddus segir.............................

mánudagur, ágúst 13, 2007

Ekki satt?

Þegar tvö svona
merki eru nálægt
hvort
öðru.
Þýðir það vanalega.
Ætla að hrynja í það,
og keyra fullur heim.




Immagaddus segir....................

Af hverju ekki.



Af hverju eru Eyjamenn ekki
búnir að fatta,að þetta
er skiltið til eyja?.





Og að þeir fá ekki svona skilti.
Immagaddus segir...............

Of mikið?

















Extreme Rope joga.

Immagaddus segir............................

föstudagur, ágúst 10, 2007

Skil ekki.
















Fatta ekki afhverju að fólk sem aðhyllist
nasisma nú til dags eru kallað " Nýnasistar ".
Ætti ekki að bara að kalla það " Nasista "
Nýnasistarnir voru jú uppi fyrir um og rúmum 60 árum síðan.
Þá var það jú. Nýtt.


Immagaddus segir..................

Þoli ekki.











Ég er farinn að hata brauðristina mína.
Hún lýgur að mér.
Til dæmis:
Er með stillingar frá einum og upp í sex.
Sem þýðir auðvitað að meðalristað brauð
á að vera á þremur.
ég set brauðið í brauðristina og set takkan niður.
Fer að lesa blaðið, gjóa augum á apparatið.
Les aðeins meira.
Kíki á hvað er að gerast.
Stend upp og byrja að ganga um gólf.
Í hringi í eldhúsinu.
Í hverjum hring athuga ég hvernig gengur.
Brauðsneiðin hoppar upp.
Um leið slæ ég takkanum niður aftur, því brauðið er ekki tilbúið
fyrr en eftir fjóra til fimm hringi í viðbót.
Borða sneiðina.
Langar í aðra.
Af fenginni reynslu, stilli ég á fjóra.
Sest niður og fer að lesa blaðið.
Hætti að gjóa augum á brauðristina.
Sigurviss.
Brauðsneiðin hoppar upp.
Brennd.
Ég stend þreytulega upp.
Opna eldhússkúffuna og næ mér í smjörhníf.
Byrja að skafa sneiðina.
Skafa þangað til að ég sé næstum því í gegnum hana.
Hendi brauðsneiðinni.
Set aðra brauðsneið í brauðristina.
Ofur,ofur,ofur varlega, stilli ég, svona eins og þegar innbrotsþjófur er að reyna að hlusta
eftir, hvenær klikkið kemur í peningaskápnum sem hann er að reyna að opna.
Stilli ég snúningstakkan á brauðristinni á milli þremur og fjórum.
Set brauðið í brauðristina.
Stend vakt.
Sé þegar allir vírarnir byrja að glóa.
Þeir glóa.
Byrja að telja víranna.
Var sirka hálfnaður þegar brauðið hoppar upp.
Set takkann niður aftur og klára að telja.
Brauðið hoppar uppúr.
Að hætti Jóhönnu af Örk.
Brennt til ösku.
Fékk mér flatbrauð með hangikjöti og kláraði að lesa blaðið.

Immagaddus segir.................

Framhaldsnám. part ll.













Og auðvitað.
Þar sem eru veggir...............

Immagaddus segir..................................

Framhaldsnám.














Það eina sem fornleifafræðingar hafa uppgötvað er.
Að það voru til veggir í fyrnindi.


Immagaddus segir.............................

Ginkeypt. part lll.















Kemur Nóa ekkert við.
Keypti mér eina gin áðan.
Milljónir af Pólverjum geta ekki haft rangt fyrir sér.
Þeir byrja daginn á því.

Gin dobre.


Immagaddus segir................

Ginkeypt. part ll.



















Þetta með Nóa.
Í Hamaganginum og úrfellinu.
Gleymdi hann Gíröffunum.
En náttúran sér um sína, og þessvegna
uxu hálsarnir svona ofboðslega mikið á þeim
á meðan á flóðinu stóð, einmitt til þess að
þeir gætu andað.

Auðvitað hefði þeir auðveldlega getað keypt sér snorkel
og verið áfram með stuttan háls.
En vegna þess að það voru margar aldir í það að snorkelið
væri fundið upp, fóru þeir þessa leið.

Dagsatt.


Immagaddus segir.......................

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Buhu!








Af hverju gráta karlmenn þegar
þeir skera lauk?

Jú.
Þeir eru búnir að komast að því
að þeir eru að vinna í
eldhúsinu.
En það er kvenmannsverk.

Immagaddus segir........................

Havað?
















Hvað er þetta með okkur kjötiðnaðarmenn og stafsetningu?


Immagaddus segir....................

mánudagur, ágúst 06, 2007

Gott hjá mér.

Blindfullur
og
vitlaus.
Afrekaði
ég
það
í
kvöld,
að
koma
úlfalda
í
gegnum
nálarauga.

Þannig að.
Nú þarf ég bara að gerast ríkur, til að komast til himna.


Immagaddus segir................

Við.

Þetta með neysluþjóðfélagið.
Er það sem við þurfum?
Eða það sem þarf?

Immagaddus segir..................

Ginkeypt.

það
er
alveg
makalaust
hverju
sumir
eru
tilbúnir
að
trúa.
Tökum
sem,
kaf
og
jafet,
dæmi
um það.
Drottinn. Sagði við Nóa í hálfkæringi, að hann væri að spá í að drekkja jörðinni.
Og heimtaði að hann smíðaði bát á stærð við flugmóðurskip til þess að geta seivað nokkrum dísænum af dýrum sem hann hafði skapað.
Svakalega sniðugt, því að Nói bjó í eyðimörk.
" Veit samt ekki hvað er merkilegt við þessa Biblíkusögu" því síðasta sumar ringdi í Reykjavík
í 48. daga samfleytt. ( Með áherslu á fleytt.).
Hvaða há sem er. ( e. anyhow).

Einhverra hluta vegna er rifrildi Nóa við endurnar ekki í Biblíunni.
Nói. Var að enda við að smala seinustu pörunum um borð í örkina.
Þegar hann sá andapar rétt hjá.
Hann fór og talaði við stegginn og sagði. " Það er að koma alveg multí, mega fokkíngs flóð, og Gubbi ætlar að drekkja öllu á jörðinni sem ekki á snorkel". Gubbi, en það var gælunafnið sem Nói notaði á Guð,
En bæði Nói og steggurinn voru heyrnadaufir þannig að þeir byrjuðu að smíða risastórt orgel.
Það var ekki fyrr en það byrjaði að rigna að þeir föttuðu að smíða bát.
En aftur að rifrildinu á milli Nóa og andanna.
Gubbi, sagði Nóa að smala saman tveimur pörum af hverri dýrategund og geyma hana í lestinni..
Ímelda Markos gerði svipaðan hlut. Lét gera skópör úr hverri dýrategund fyrir sig.
Og geyma þá hjá restinni
Hvaða há sem er..
Nói fór að rífast við andapar.
Þið verðið að koma um borð. Gubbi ætlar að láta rigna í 40 daga og 40 nætur.
Þið drukknið ef þið verið ekki memm.
Steggurinn orðinn svolítið pirraður segir.
Hei!
Ef þú hefur ekki fattað það, þá kunnum við að synda, en ef þetta skiftir svona miklu máli fyrir þig, talaðu þá við dúfurnar, við hjónin erum nokkuð viss um að þegar fer að fjara út finnur dúfan Ítalíu og kemur með ólífugrein til baka.

Immagaddus segir.......................