Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

laugardagur, ágúst 09, 2008

Leiðin heim. Part ll.




















Hérna er mynd tekin á sama síma.
Bara Norðanmeginn.

Venjuleg mynd.

Ekkert pasteldót.

Sem segir mér það að gei præd svæðið nær frá Sunnannverðu
Snæfellsnesi að Dyrhólaey að Vestan.

Allir þeir sem eru frelsaðir ættu að geta því verið óhultir frá
Grundarfirði til norðurs að Kirkjubæjarklaustri í Austri.


Ps.
Það þarf ekki að taka það fram.
Já Snæfellsjökull er virkilega þetta rýr.

Og.

Á mánudaginn kemur.
Kemur Davíð Oddson til
með að tillkynna þjóðinni að þetta er eiginlega
bara skafl.


Immagaddus segir...............

Leiðin heim.




















Veit ekki hvort að það sé vegna gei præd helgarinnar.

En einhverra hluta vegna virðast þessar myndir sem ég tók á
símann minn af Snæfellsjökli.

Vera vatnslitamyndir.


Immagaddus segir........

Óvænt í Reykjavík.

Gýrókompásinn bilaði um borð.

Þannig að ekki var unnt að nota sjálfstýringuna.
Sem er ekki gott nú til dags, því sjómenn nútímans þekkja ekkert annað.

Og margir halda að stóra tréstýrið um borð í skipum.
Sé uppá punt og arfleið gamalla tíma.

En nóg um það.

Við vorum í vondum málum.
Tralla .lalla.la

Og þurftum að sigla bátnum suður.
Upp á gamla mátan.
Þ.e.a.s.

Handstýra.

Eftir að hafa farið þessa frægðarför á handstýrinu
einu saman. sigldum við inn í Reykjarvíkurhöfn.

Beint í flasið á Gay Pride.


Immagaddus segir.........................

mánudagur, ágúst 04, 2008

Verzlunarmannahelgi.




















Í kvöld.

Grillveisla hjá Chris.

Smá pöbba innkikk, með Bjössa.

Fór heim áður en sagan endurtekur sig.

Vonandi gasalega gaman samt í bænum.


Immagaddus segir............

laugardagur, ágúst 02, 2008

Fréttir.
















Endrum og eins sjáum við í fréttum.
Maður lifði af 6 metra fall.
Kona lifði af 11 metra fall.
Strelpa lifir af 18 metra fall.

Þetta er ekkert merkilegt.

Það geta allir lifað fallið af.

Það er lendingin sem er erftiðust.



Immagaddus segir.......................

Enginn húmor.


















Verzlunarmannahelgin að vakna.

Klukkan að verða 21:32.

Ég vel símanúmer til þess að hringja á
leigubíl.

Ég þarf að komast eitthvað, en er ekki
fær um það nema að kaupa mér bílfar.

Hringi í Ræfil.

Það hringir út.

Hringi í Ræfil aftur.
Það hlýtur að vera opið.

Fæ.

Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.
( Flytjandi Leo Sawer )

Ásamt þeim verstu hljómgæðum í heimi..

Skyndilega!

Lesið af snældu hjá leigubílakompaníi.

Þú ert kominn í samband við einhvern sem á bíl.

Símtölum verður raðað eftir Gregórískum smákökum,
ef húsrúm leifir.

Vinsamlegast bíðið.

Og ég beið.

Og já:

Skyndilega:

Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.

En núna með þessum sem var drepinn í 7-11 verzlunninni,
í Smallville Idaho, eftir að hafa séð Waldo í frystinum.
Var ég alveg að fríka út.

Ásamt þeim verstu hljómgæðum í heimi..

Og aftur.

Lesið af snældu hjá leigubílakompaníi.

Þú ert kominn í samband við einhvern sem á bíl.

Símtölum verður raðað eftir Gregórískum smákökum,
ef húsrúm leifir.

Vinsamlegast bíðið.

Eftir um það bil 116. mínútur,
fékk ég loksins samband.

Ræfill góða kvöldið, get ég aðstoðað?

Ég orðinn smá pirraður eftir allt þetta.

Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.
Da,da,da,daradda,da,da,da.

Ásamt þeim verstu hljómgæðum í heimi..

Svo ég sagði.

Í bríaríi auðvitað.

Ég ætla að fá pizzu með lauk,pepperoni,grænni papriku,skinku,sveppum og tómat.
framan á Skania Vabis vörubíl frá 1975.
Og hann verður að vera appelsínugulur.

Ég meina það.

Eftir að hafa haldið mér í símanum í að ganga 20 mínútur.
Hefði maður haldið að símastúlka undir álagi hefði fundist ég vera fyndinn.

Hvet alla landsmenn til þess að hringja inn á leigubílsstöðvarnar núna yfir helgina
til þess að panta sér Pizzur.
Eða bara hvað sem er.


Immagaddus segir..................................

föstudagur, ágúst 01, 2008

Sólarlag á E-6.



















Við vorum að mæla eina nóttina þegar sólin kíkti í heimsókn.

Já óþarft að benda á það að taka mynd á móti sól o.s.f.v.

Kom samt skemmtilega út.


Immagaddus segir....................

Ekki gleyma.

Bara næs.



Immagaddus segir.................

Spandex.





















Þetta er sirka vöxturinn fyrir spandex.

Ef þú ert eins og Zeppelin í laginu.

Á spandex ekki að vera á innkaupalistanum hjá þér.

Svo.

Það er búið að vera heitt í henni Reykjavík undanfarið.

Og ég búinn að vera að ferðast hjólandi.

Þá.

Gerðist hið óhjákvæmilega.

Mikil kona framundan.

ARRRRRRRRRRG!

Mikil kona framundan í Hvítu spandexi.
Strunsandi um með barnavagn fullann
af Mc´ nuggets og öðrum transfitusýru
tengdum hlutum.

Og þegar svona sjón blasir við gerist eitthvað
í hausnum á þér.

Þú getur ekki hætt að horfa.

Ekki frekar en þegar api gleypir handsprengju.

Síðan verður maður vondur.
Mjög vondur.

Ég brjálaðist alveg.

Öskraði.

ARRRGGG!

Spandex was never designed for that!

Hugsandi fórnarkostnaðinn.

Ég rauk að næsta tré, braut þykka grein af því.
Hljóp að konunni.
Og byrjaði að berja hana
hægt til dauða með greininni, þannig að
laufin fóru næstum af.

Sum rifnuðu jú af eftir nokkrar mínútur.

En það voru líka bara aumingjalauf.

Ekki sterk eins og við hin.
Ekki nógu sterk til að sjá
blóðbaðið.

Eftir smá tíma fór að safnast þarna að fólk.
Sumir hneykslaðir, einhverjir að taka þetta
upp á gemsan sinn, sumir horfðu á í smá stund
en stundu síðan " Agalegt er að sjá þetta "
Og fóru.

Þrír hringdu í DV og sögðust hafa séð Ísbjörn
berja rostung við Álfheimanna.

58. manns breiddu úr teppum og fengu sér samloku.

Einhver hafði samt hringt í lögguna.

Og Ég var orðinn býsna þreyttur í höndunum
þegar að löggan kom, þannig að Ég stoppaði,
og gaf Mér á tal við þá.
Þegar ég hafði útskýrt mál Mitt og þeir
séð alvarleika málsins.
Aðstoðuðu Þeir mig við að berja hana
aðeins lengur.

Enda eins og kom fram áður.

Var ég orðinn þreyttur í höndunum.


Immagaddus segir.........................

Séð hann einhversstaðar áður.

Seeking Information Against International Terrorism

Wanted Terrorists


Photo of Jamal Mohammad al-Badawi Photo of Fahd Mohammed Ahmed al-Quso Photo of Umar Patek Photo of Usama bin Ladin Photo of Saif al-Adel
Jamal Mohammad al-Badawi Fahd Mohammed Ahmed al-Quso Umar Patek Usama bin Ladin Saif al-Adel
Photo of Adnan G. el Shukrijumah Photo of Ayman al-Zawahiri Photo of Abdullah Ahmed Abdullah Photo of Ahmed Mohamed Hamed Ali Photo of Anas al-Liby
Adnan G. el Shukrijumah Ayman al-Zawahiri Abdullah Ahmed Abdullah Ahmed Mohamed Hamed Ali Anas al-Liby
Photo of Abderraouf Ben Habib Jdey Photo of Faker Ben Abdelaziz Boussora Photo of Adam Yahiye Gadahn Photo of Fazul Abdullah Mohammed Photo of Fahid Mohammed Ally Msalam
Abderraouf Ben Habib Jdey Faker Ben Abdelaziz Boussora Adam Yahiye Gadahn Fazul Abdullah Mohammed Fahid Mohammed Ally Msalam
Photo of Sheikh Ahmed Salim Swedan Photo of Ali Atwa Photo of Hasan Izz-al-Din Photo of Abdul Rahman Yasin Photo of Ahmad Ibrahim al-Mughassil
Sheikh Ahmed Salim Swedan Ali Atwa Hasan Izz-al-Din Abdul Rahman Yasin Ahmad Ibrahim al-Mughassil
Photo of Abdelkarim Hussein Mohamed al-Nasser Photo of Ibrahim Salih Mohammed al-Yacoub Photo of Ali Saed bin Ali el-Hoorie Photo of Jaber A. Elbaneh Photo of Ali Sayyid Muhamed Mustafa al-Bakri
Abdelkarim Hussein Mohamed al-Nasser Ibrahim Salih Mohammed al-Yacoub Ali Saed bin Ali el-Hoorie Jaber A. Elbaneh Ali Sayyid Muhamed Mustafa al-Bakri
Photo of Midhat Mursi al-Sayid Umar Photo of Dulmatin Photo of Atiyah Abd al-Rahman Photo of Isnilon Hapilon Photo of Abu Jihad al Masri
Midhat Mursi al-Sayid Umar Dulmatin Atiyah Abd al-Rahman Isnilon Hapilon Abu Jihad al Masri
Photo of Ramadan Abdullah Mohammad Shallah Photo of Mohammed Ali Hamadei Photo of Zulkifli bin Hir Photo of Zulkarnaen Photo of Noordin Mohammad Top
Ramadan Abdullah Mohammad Shallah Mohammed Ali Hamadei Zulkifli bin Hir Zulkarnaen Noordin Mohammad Top
Photo of Qari Mohammad Zafar Photo of Mullah Omar
Qari Mohammad Zafa

Er þessi neðsti til vinstri ekki
Vegavinnukarlinn
sem er á þríhyrnda
skiltinu?


Immagaddus segir............
Mullah Omar









Sér hver?

Morð.

Þetta orð getur vakið upp ýmsar hugsanir.

Ég er að spá í.

Einhver drepur mann.

Hinn seki fer í fangelsi í vissann tíma eftir hversu hrottalegt það var.
Afplánar dóminn sinn innann um nauðgara,barnaníðinga,dópsala og
annara misindismanna.

Einhver drepur tvo menn.

Hinn seki fær sjálfvirkt lífstíðarfangelsi.
Sumstaðar tekin af lífi.
Afplánar dóminn sinn innann um nauðgara,barnaníðinga,dópsala og
annara misindismanna.

Einhver drepur fjóra til tuttugu manns.

Fer annaðhvort á réttargæsluheimili fyrir ósakhæfa, eða er settur
í einangrun.
Dómur sennilega þrefaldur lífstíðadómur án möguleika á náðun.
Sumstaðar dauðarefsing.

En svo kemur það skrítna.

Einhver drepur 250.000. manns eða meira.
Við fáum daglega fréttir af því hvernig honum gengur,
nýjustu tölur fallina og hvernig þeir voru drepnir.
En á meðan að það kemur okkur ekki beint við,
leifum við þessu að haldfa áfram.

Við stöndum ráðalaus.

Stundum koma upp menn sem drepa heilu þjóðirnar.

Og hvað gerum við?

Við stöndum og göpum.
Það er eins og við ráðum ekki við að einhver geti verið svona
illur.

Og ef og þegar við bregðumst við

Best að setja hann í stofufangelsi einhversstaðarí Frakklandi
þangað til að hann deyr af náttúrulegum orsökum.
Þambandi kampavín úr hauskúpu.


Immagaddus segir...................

miðvikudagur, júlí 30, 2008

Jæja.
























Þá erum við offissíalt orðnir varðskip.

Veiiiii!

Bylgja og ótakmarkaður fögnuður.



Immagaddus segir..................
























Baldur að leggja úr höfn á Flateyri.


Immagaddus segir..........

Margt að sjá.
























Þetta skilti er á Flateyri.


Immagaddus segir...........

Í brúnni.



















Kampakátur daginn fyrir landlegu.


Immagaddus segir....................

Ættjörð.

Stundum á vöktum út á sjó fjarri GSM, útvarpi
og öðrum " lífsins gæðum ".

Kemur manni smá kveðskapur í hug.

Veit ekki hvort ég ætti að kalla þetta kvæði
þjóðarrembing eða ættjarðarást, svo.


Ættjarðarást.

Í hafróti hugans, Ég hugsa til þín,
þú fallega ástmögur, veitir mér sýn.
Á sumarnótt bjartri sem vetrarnótt dimm,
nærgætin gætir oss þó él séu grimm.
Mín ástkæra fósturjörð berð okkur öll,
vogskorin ströndin, tindar og fjöll.
Vötnin og lækirnir, árnar og foss,
þetta allt gafst´okkur þvílíka hnoss.

Hafið sem lífgjafi,tekur í senn,
mölbrýtur skipin og fullvaxta menn.
Gælir svo blíðlegt við vog og við strönd,
upphefur andann og styrkir vor bönd.
Með eldinn og ísinn,þær andstæður tvær,
og þjóð eina litla sem lífróður rær.
Hver einasta sál sem að Guð setti hér,
á Íslandi er hérna, sem henni ber.

Í nístandi norðanátt frosin og fá,
ertu fögur að líta og vekur upp þrá.
Eftir vorblænum ljúfa með fuglum og söng,
og lífi og litum öll sóldægrin löng.
Því þrengingar dvína og drungaleg ský,
víkja og hverfa er þú vaknar á ný.
Eins og ástin sem kviknar hjá hal og hjá sprund,
ertu eilíf í hjarta mér Íslenska grund.


Höfundur.
Bergvin Gíslason.



Immagaddus segir.............

föstudagur, júlí 11, 2008