Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

laugardagur, október 21, 2006

Í Fréttum er þetta helst.



Jæja. Þá eru hvalveiðar hafnar að níu.

Fátt er betra, til þess að vekja upp stolt og þjóðerniskennd. Þjappa þjóðinni saman og vekja upp almenna vellíðan, en að hefja veiðar á stærstu spendýrum jarðar. Yfir 90% Íslendinga eru meðfylgjandi hvalveiðum. En aðeins 10 % munu nokkrum sinnum koma til með að éta þetta ógeð.

Og það eru þeir sem eru á móti hvalveiðum.

Karlmönnum er skítsama hvort kvenmenn fái fullnægingu.

Mottóið okkar er " Fyrstir koma, fyrstir fá.,,

Þar hafiði það.

Ég þekki mann sem er búinn að vera pirraður svo lengi að hann er orðinn langreiður.

Má skjótann??

Immagaddus segir........................

föstudagur, október 13, 2006

Margt smærra.

Stílisti = Maður/kona, sem setur verkjalyf í anal.
Stílhreinn = Maður/kona, sem hefur ekki fengið stíl í anal um nokkurt skeið.
Ríkislögreglustjóri hefur nú látið fara fram rannsókn á því Hvort Geiri á Maxíms eigi einhverra hagsmuna að gæta í Eldey.
En eins og menn vita er Eldey stærsti súlustaður í heimi.
Einnig er farin af stað rannsókn á því hvaða örvita maður lét hlera símann hjá Jóni Baldvini.
Hafiði heyrt manninn tala?
Nokkuð viss um að síminn hans hafi verið hleraður af the Central Boring Agency.
Þessi maður getur talað svo mikið um ekki neitt, að ég er viss um að ef að það yrði kveikt í upptökunum núna, myndu þær brenna til ársins 2014, og verða að svo miklu báli að enginn kæmist yfir það nema fuglinn flúgandi.
Eða Sjálfstæðisfálkinn alias. Fuglinn ljúgandi.
En það er allt önnur Ella.

Ekki það að þið sem lesið þetta séu nokkuð vísari. Jafnvel aðeins heimskari eftir að hafa slysast til að lesa þetta en.
Sådan er lived Jensen.


Immagaddus segir........................

Frí.



Er búinn að vera í smá fríi.

Og hef aðallega verið að nota það til þess að athuga hversu mikið áfengi lifrin í mér getur þolað. Það sem af er hefur hún bara sagt. " Bring it on.,,

Þess á milli hef ég verið að kynna mér kjarnorkuáætlun Norður kóreu. Á meðfylgjandi mynd, sést einn færast kjarnorkuvísindamaður þeirra. Kom Big Bang.

Skv. Honum standa Kóreumenn núna á þröskuldi þess að vera kjarnorkuveldi. það eina sem stendur hinsvegar í veg fyrir því að þeir verði alvöru kjarnorkuveldi er það að þeir sprengdu einu kjarnorkusprengjuna sem þeir áttu.

Hversu pirrandi er það?

Immagaddus segir..........................

þriðjudagur, október 10, 2006

Innsláttarvilla.

Þar sem ég sat í morgun, allsber upp í sófa drekkandi bjór og étandi nachos.
Fletti ég í gegnum sjónvarpsrásirnar þar til ég stoppaði við Omega.
Þar var einn af þrumupredikurum landsins að predika.
Hann sagði.
"Ertu einmanna? Situr þú kannski allber upp í sófa étandi nachos, drekkandi bjór?.,,
Ég hugsaði.
"Vá hann er góður.,,
Hann aftur.
" Er klukkan bara 08:30, og þú ert orðinn fullur því sál þín er tóm.,,
Ég hika en segi svo, með titrandi röddu.
"Ertu að tala við mig?,,
Hann.
"Finnuru hjá þér þörf til að gefa 5000 kr til Guðs?,,
Ég.
Sjúkk maður, ég hélt þú værir að tala við mig.
Rétt slapp fyrir horn þarna maður.
Setti á karton netwörk og fíraði í einni feitri.

Munið þið ekki eftir því?
Fyrir svona 15 árum eða svo.
Voru til bikini úr skeljum.
Ég féll nemmlig smá flashback.

Var einu sinni að labba niður strönd, þegar ég sá stelpu í svona bikiní.
Og ég segi ykkur.
Ef þið takið svona stelpu upp, og haldið henni að eyranu á ykkur.
Getiði heyrt hana öskra.

Immagaddus segir..........

laugardagur, október 07, 2006

Leiðrétting.


Gamli kallinn talaði vimmmig.
Sagði að fyrri mynd hafi verið ónákvæm.

Svona gerðist þetta.
Dagsatt.
Tíu fingur upp til.......

Immagaddus segir.....

Til hamingju.


Mbl.is í dag.

Talað um innflutning og framleiðslu á fíkniefnum.

Ekki orðrétt, en meiningin í greininni

Löggan segir. " Við erum að ná tökum áþessu,,

Síðan kemur þessi fréttarskýringarmynd.

Allir þeir sem hafa neytt ólöglegra efna, vita að þessi mynd gefur ekki alveg rétta mynd af ástandinu.

Er ekki Löggan á villigötum, samanber myndina?

Immagaddus segir.....................

Olé,ólé,ólé,ólé!



Leikskipulag Íslenska landsliðsins í dag var Opið kvótakerfi, það fór bókstaflega all í netið.
Og vegna þess að við vorum ekki ein af þeim fyrstu til að viðurkenna sjálfstæði þeirra.
Rassskelltu þeir okkur á fótboltavellinum.
Ég vona bara að Guðjón bíti það ekki í sig að fara frá skipaskagamannamönnunum, til þess að fara að þjálfa landsliðið

Immagaddus segir..................

Bónus.

Skemmtilegt fólk.
Fór með kallinn í verslunarferð á fimtudag.
Þar á meðal í Bónus Skútuvogi.
Vorum búnir að velja það sem við ætluðum að kaupa.
Það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að kössunum í Bónus Skútuvogi er að labba framhjá sælgætishillunum.
Karlinn stoppaði.
Leitaði og leitaði.
Kallaði á mig.
Lét mig leita.
Ekkert fannst.
Fórum í röðina við kassann.
Allt í einu togaði karlinn í næsta mann.

" Heyrðu,, ( Eitt af orðunum sem hann getur sagt)
Síðan byrjaði hann að hella úr skálum reiði sinnar.
Hann er nefnilega ekki eins vitlaus og margir vilja veraláta.
Karlinn kvartaði þarna beint við Jóhannes sjálfan í Bónus.
Sem var næsti maður í röðinni.

Samtalið var einhvernveginn svona.
Gísli: Heyrðu....babababababa, ba,ba. Ba! Bababa! Baba........svona.
Bent með vísifingri vinstri handar.
SVONA!.
Ba,ba,ba,ba,ba,ba,ba,ba,ba.
Jóhannes stóð þarna undir þessu öllu.
Ég aftur á móti þurfti að fara á næsta gang, bak við hrísgrjónin til að springa úr hlátri.
Eftir 3-4 mínútna, ba,ba,ba.
Skakkaði ég leikinn.
Og lét Jóhannes vita að karlinn væri í uppnámi yfir því að þetta væri í þriðja skiptið sem hann kæmi í Skútuvoginn. Og það værru ekki til fílakarmellur.
Eftir að friður var kominn á og allir voru orðnir vinir sagði Jóhannes.
Þessi maður þarf ekki að borga það sem er í innkaupakerrunni.

Karlinn var samt ekki ánægður.
Heldur lét hann mig keyra sig í gripið og greitt og keypti sér 5 kílóa poka með fílakarmellum.

Resprektið fer samt til Jóa.
Óánægður viðskiptavinur.
Hann lagaði það.
Kannski verða til fílakarmellur í Bónus Skútuvogi aftur.

Immagaddus segir..................

Umferðarátak.

Umferðarátak gegn yngstu ökumönnunum.
Það ætti að kalla þetta umferðarátakanlegt.
Þetta er ekki að virka.

Ég man eftir því þegar ég var unglingur.
Að vísu voru bara til hundasleðar og hestvagnar þá.
En seríöst.
Ég man eftir því þegar ég var á táningsárum. Þessa æðislegu tilfinningu.
ÉG ER ÓDREPANDI.
Þessi fílingur eltir mann stundum upp í hálf þrítugt.
Aðalatriðið er að koma þeim skilaboðum á framfæri að bílar drepa hraðar en tóbak.
Átak gegn reykingum virkar svo illa vegna þess að við erum marga áratugi að drepa okkur á því.
Setjum umferðina í rétt samhengi og sýnum ungum ökumönnum það.
Umferðin drepur þig í dag!

Immagaddus segir...............................

Án inntaks.

.Samheiti.
Slöngutemjari. Maður sem vinnur á pylsuskammtara.
Ég er að pæla í að stofna atvinnumiðlun fyrir konur á milli 45-67 ára.
Nota slagorð Brimborgar.

Betri notaðir bílar.
Þá verður þetta svona.

Atvinnimiðlun Bergvins.
Betri notaðar konur.

Haldið ekki að það virki?

Immagaddus segir.............

Genesis.


Já þetta er akkúrat eins og allt byrjaði.

Einu sinni var gamall kall sem sgði verði ljós.
Síðan gerðist ekkert markvert fyrr en einhver stal frá honum eplum.
Aftur ekkert markvert fyrr en hann plataði Gyðingastelpu upp úr kjólnum.
Nú eru að verða vel rúm 2000 ár síðan.

Getum við ekki farið að skipta um umræðuefni í kirkjum landsins??

Immagaddus segir.......................

Konungsfjölskyldan.



Þá er það opinberað.

Camilla er byrjuð að drekka.

Immagaddus segir.............

Maður fyrir róða.

Það besta við það að vita ekki hvert maður ætlar.
Er það að það leiðir mann þangað sem maður hefur aldrei verið áður.

Landsleikur í dag.
Jibbí.
Fer til Chris í grill og bjór.
Bjössi mætir og Rósa.
Ég vona að þetta verði ekki það sem ég hélt í fyrstu þegar Chris sagði.
"Come over on saturday. I want to show you my meatballs.,,
En svo mundi ég það að hann gerir æðislegar kjötbollur.

Immagaddus segir............

Hún er undarleg.

Spaghetti.
Hvaða fávita fannst það vera snilldarhugmynd að hafa matvæli með þessa lögun?
Kommon.
Það er enginn matur 0,1 mm í þvermál og 30-40 cm langur.
Maður gerir bara ekki svoleiðis.
Djöfuls asnaskapur alltaf í þessu erlenda fólki.
Það sjá allir vitibornir menn að það er miklu betra að það er miklu betra að sjóða til helvítis hina ýmsu óætu
hluta sauðkindarinnar, og geyma síðan í aukaafurð af ostagerð í 4-8 mánuði.
Jafnvel árum saman.

Nú á að fara að framleiða nýja Rockymynd.
Rocky Vll. Adrians revenge.
Og fjallar hún um það að, Adrian hafi allan þennann tíma raunverulega verið Mr T.

Strákar. Hér er pikkupplína sem virkar ekki.
Hæ. Má ekki bjóða þér eitthvað?
Það síðasta sem ég keypti fyrir konu var líkkista.

Hvað gerir maður, þegar maður stígur á jarðsprengju?
Maður byrjar á því að kasta sér 3-5 metra upp í loftið, síðan dreifir maður sér yfir svona sirka 4-8 fermetra.

Hversu fyndnir eru Teletubbies, þegar maður er skakkur?

Immagaddus segir..........................

laugardagur, september 30, 2006

Mér.

Jæja.
Púllararnir mínir töpuðu í dag gegn Bolton Vandræðis.
Þeir voru alveg úti að skíta allan leikinn.
Og það endaði með því að þeir skitu á sig.

Anyhow.

Newsflash: No. Jellyfish are in no way related to Gummibears..

Forsaga: Föstudagskvöld hafði pabbi tekið út skötu, án minnar vitundar, sem átti að elda á laugardaginn.

Aðfaranótt laugardags.
Kom heim alveg blindfullur.
Sofnaði í sófanum inn í stofu.
Vaknaði við smá þrusk.
Vissi ekki alveg hvar ég var þessar sekúndur þegar heilinn er að taka yfir brennivínsdoðann.
Fann þessa líka svakalegu lykt.
Var ekki búinn að opna augun ennþá, og bað til Guðs að þetta væri lykt af skötu en ekki að kvenmanni sem ég hafði pikkað upp.

Það er til guð.

Annars langaði mig til að læra spegilskrift.
En hef ekki efni á því.
Grammið af Kókaíni er of dýrt.

immagaddus segir......

mánudagur, september 25, 2006

ilibrtitadet?

BRATS!

Immagaddus segir.....

laugardagur, september 23, 2006

Veit ekki.

Ég veit ekki með ykkur. En.

Ég er búinn að fá súpernóg af Magna.

Immagaddus segir......................

Af hverju?

Af hverju er búið að skrifa svona mikið um Þessalóníkumenn, en ekkert um hinalóníkumennina?
Af hverju er var gerð kvikmynd um Metropolis, en ekki hetropolis?
Af hverju er það að við getum komið fólki til tunglsins,sent tæki og tól til Mars, en það er ekki hægt að láta sokkana mína halda góðri lykt í 12-14 tíma?
Af hverju er hárið á mér farið að þynnast á hvirflinum, en snar aukast á hinum ólíklegustu stöðum líkamans í staðinn?
Ég meina það. Hárspretta í eyrum og nösum eru að verða ridikkilös.
Akkúrat þegar maður er að komast á þann aldur að maður hefur efni á góðu kókaíni, er nefið á manni farið að fyllast af hárum.
Akkúrat þegar heyrnin er að fara að daprast fyllast eyrun af hárum, sem virka eins og ónáttúrulegar heyrnahlífar.
OG hvað er díllinn með að fá öll þessi hár á bakið?
Verður manni kaldara á bakinu með árunum.
Er þetta náttúran að segja.
Hmmm.
Látum karlmenn fá hár á bakið eftir fertugt, og skrúfum fyrir blóðstreymið þangað.
Allt í einu var ég að fatta!!!!
Var að komast að þessu.
Auðvitað verður náttúran að gefa karlmönnum yfir fertugu hárfeld yfir allann líkamann.
Því annars frjósum við í hel þegar okkur stendur.
Allt blóðstreymið á einum stað.
Meiks sens.

Immagaddus segir.....................

Tottar eða ekki.



Jæja Púllaraleikur á eftir.
Er að fara að gera mig klárann í slaginn.
farinn að hita upp.
PZZZTTTT!!!!!
Opinn bjór og retta.
Blogg og hó.
Víkingsleikur á eftir.
Spila við Skipaskagamennina.
Vona að Púllararnir og Víkingarnir totti ekki mjög súrt í dag.
Eftir þessi tvö ósköp verður síðan Manjúleikur.
Þeir mega hinsvegar totta eins súrt og brotið sem fýlupúkinn er alltaf í.

Immagaddus segir......................

Spurningar..


















Eru þessar myndir jafn sexí?
Ef svo er þá afhverju.

Immagaddus segir........................