Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

Púff.

Djöfullinn maður.
Ég er búinn að fitna svo mikið að ég er orðinn hnattvænn.

Immagaddus segir.......

Síðasta helgi.

Var allt í einu að muna.

Fór á bar fyrir samkynhneigða síðustu helgi.
Einhverra hluta vegna fór ég úr að ofan.
Lesbíur urðu lesbískari og hommar afhommuðust í hrönnum.
Það skýrir þakkabréfið frá Gunnari í Krossinum.
Þar sem hann þakkar bæði mér og Guði fyrir.
Samt meira mér.

Immagaddus segir...........................

mánudagur, nóvember 27, 2006

Spurning dagsins.





Hvort er rétta andlitið?
















Immagaddussegir..................

Mán, u. Dag, ur.

Það er mánudagur í dag.
Og þegar þetta er skrifað er sunnudagsmaturinn að malla í ofninum.
Lambafille með fitu.

Enginn andskotans þverskorinn Ýsa á þessum bæ á mánudegi.
Þarf að muna að fara með 1/2 dilk til Feitabjarnar á morgun.
Sem er efni í blogg hjá honum.
Beggi kom og dró dilk á eftir sér.
Eða þaggnigg.

Skelfilega er samt gaman að fá sér jólabjór á mánudegi.
Að vísu síðasti jólabjórinn í ísskápnum, en samt gaman.
Usual 13 tíma mánudagur hjá mér í vinnu.
Fór samt um 14:30.

Það er samt kalt úti.

Immagaddus segir.........

sunnudagur, nóvember 26, 2006

Saddur.

Fór á jólahlaðborð á Herraford í gær.
Át á mig óþrif.
Ég og Chris fórum niður áGrandrokk eftir borðhald.
Ég var svo saddur að ég fékk mér bara einn bjór, og rétt náði að koma honum niður.
Tók síðan leið sex heim.
Kominn upp í sófa og farinn að dotta fyrir framann imbakassann fyrir klukkann tólf.
Skelfing var ég ánægður í morgun þegar ég vaknaði með enga smiði í hausnum.

Immagaddus segir.......................

laugardagur, nóvember 25, 2006

Litli trommuslagarinn.

Mig langar afskaplega í,
romm, romm, romm,romm.
Því ég á skilið að fá,
romm,romm,romm,romm.
eftir svona vinnuviku,
romm,romm,romm,romm.
Romm,romm,romm,romm.

Skál.





Immagaddus segir..................

Laugardagur.

Jæja.
Laugardagur.
Jólahlaðborðsdagurinn er upp runninn.
Eftir smá át og drykkju, uppurinn.

Var að lesa að kameldýr geta unnið í sjö daga án dess að drekka.
Það er ekkert.
Ég hef drukkið í sjö daga án þess að vinna.
Annað.
Ef sund er svona góð alhliða þjálfun?
Af hverju eru þá hvalir svona feitir?


Immagaddus.........................

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Án titils.


Á síðustu tískuviku í Mílano.
Týndi ein fyrirsætan hausnum á sér.
Hér er mynd af henni þar sem hún leitar að honum.

Eftir að hún hafði fundið höfuðið á sér bar hún af sér allar ásakanir um það að hún væri of grönn.





Immagaddus segir........

Alveg.

Þessi 23 mánaða gamli bandaríski redneck, setti heimsmet í pyluáti á dögunum.
Hann át 47 pylsur á 12 mínútum sléttum.

Verðlaunin voru General Electrick stomackpump 3000.

Hélt síðan upp á það með því á að fara á KFC og kaupa sér fötu af kjúkling.
Þess má geta að mamma hans er svo stolt af honum

Immagaddus segir.........................................


Peysurnar frá Ændhófen.

Jæja.
Nú er ég að gera mig klárann til að fara að sjá Lifrarpoll gegn peysunum frá Ændhófen.
Búinn að fá mér jólabjór.
Tek eitthvað yfir fimmvagninn niður á Grandrokk.

Eins gott að þessir aulabárðar drullist til að vinna í kvella.

Annars á ég nóg af bjór hérna heima, og er einnig áskrifandi að Sýn, þannig að tæknilega er þetta eins og að fara yfir vatnið til þess að ná sér í læk.
En ég hef aldrei verið talinn með skynsamari mönnum, þegar kemur að íþróttaviðburðum sem geta haft bjórdrykkju í för með sér er jamm þið vitið hvað klukkan slær.

Annars er ég farinn að stórefast um að þetta séu íþróttaviðburðir þegar Lifrarpollur er að (keppa.)
Það er aðallega viðburður þegar þeir vinna.
En á fátt skylt við íþróttir.Meira svona " Heppni,,


Immagaddus segir.

mánudagur, nóvember 20, 2006

Nýtt.

Nýi starfsmannainngangurinn þar sem ég vinn.





Immagaddus segir..............

Molbúar.

Miklir andskotans bjánar geta menn verið.
Herinn farinn.
Þá halda menn að þeir þurfa ekki að kynda íbúðarblokkirnar og það húsnæði sem Bandaríski herinn hafði til umráða meðan hann var hér.

Fyrsta alvöru kuldakastið.

Allir voru að spara kyndinguna, og hvað gerðist.?

Auðvitað sprakk vatnið í leiðslunum og milljarða tjón varð.

Djöfulsins molbúar erum við.

Við getum ekki einu sinni haldið við tómum íbúbðarblokkum með heitu vatni.

Kommon.
Við erum ekki enn kominn úr vaðmálinu og sauðskinnskónum.

Djöfuls aumingjaskapur.......

Immagaddus segir........

Til.

Fór til læknis í dag eftir vinnu.

Var búinn að bíða í smá stund, en svo var ég kallaður inn.
Töluðum smá saman,... En allt í einu stakk hann einum fingri upp í rassgatið á mér.
Smá stund leið.
Þá sagði hann mér að hann hafði fundið eitthvað.
Ha?! Sagði ég.
Ég vissi ekki einu sinni að þú værir að leita að einhverju.

Ég segi ykkur það.

Þetta er einn versti tannlæknir sem ég hef á ævinni hitt.


Imagaddus segir........

sunnudagur, nóvember 19, 2006

Hvenær?.

Hvenær er maður búinn að ganga of langt?.
Jú svarið er.
Eins og Bandaríkin eru búinn að gera.

Það er orðið helvíti hart.
Þegar Þjóðverjar eru farnir að ásaka aðrar þjóðir um stríðsglæpi.
Því ásamt kaþólsku kirkjunni, fundu þeir upp stríðsglæpi.

Passaðu þig á auga mars.


Immagaddus.....................................

Gaman.

Nú ætti að verða gaman í vinnunni.
Eftir síðustu viku fór ég til geðlæknisins míns.
Og hann skrifaði uppá geðlyfið.
Repressitol.
Sem kemur sennilega til að virka vel.
En til að vera alveg öruggur.
Lét hann mig fá systurlyfið, Focusin.
Svo ég virkaði nú í vinnunni.

Eiginlega sagð´ann.
Beisíkklí Beggi.
" You´re skrewed.,,.

Imagaddus segir.........................

Án tilgangs.

Heimsmeistarakeppnin í Úllenn,dúllenn,doff, var haldin á dögunum.
Þessi árlega keppni var nú haldin í krummaskuði norður á landi.
Aðalverðlaun kvöldins var forláta luftgítar sem Jhonny Triumph spilaði einu sinni með Sykurmolunum, þegar þau voru enn að spila í Festi.

Allur ágóði af keppninni rann til lesenda Immagaddusar.

Þrisvar.

Jibbííí!.

Karlinn vakti mig þrisvar sinnum í nótt.

Fyrsta skipti.
Bank,bank ,bank.
Ha!. Ha!. Ha!.
Kom inn og dró frá glugganum.
Og syndi mér snjóinn.
Ókei.
Ég fór að sofa aftur. Ekki svo upphrifinn af þessum upplýsingum.

ZZZZZZZZZZZZZZZ.

Bank,bank,bank.
"Djööullsinns sjáðu.,,.
Dró aftur frá glugganum.
Ég enn liggjandi. " Er farið að leysa?,,.
" Ha?.,,.
" Er ennþá snjór.?,,.
" Já.,,.
" Mér er sama.,,.
" Ókey.,,.

ZZZZZZZZZZZZZZZZZZ

Bank,bank,bank,
" Andskotinn. Komdu:,,2
"hvað.,,.
"komdu.,,..
Ég fór með honum. Hann opnaði útidyrahurðina og sýndi mér snjóinn í tröppunum.

Þið verðið að virða þrautseigjuna.


Ps.
Miðað við það að hann er með 95 til 97 prósent málstol.
Hvernig stendur þá á því að hann getur bölvað með 142 blótsyrðum á þremur tungumálum.
En átt í erfiðleikum að segja nafnið sitt.


Immagaddus segir....................................

Hvíta duftið.

Andskotans.!!!!..
Nú er hvítaduftið búið að hertaka höfuðborgina.
Sem sumpart ágætt.
Því þetta er eina hvíta duftið sem ríka fólkið hatar að lenda í.


Já.
Það hafa margir farið illa á hvíta duftinu.

Immagaddus segir.........

laugardagur, nóvember 18, 2006

Án titils.

Hitti stelpu frá Kúbu í gærkveldi.
ágætlega sæt, en lyktaði eins og svínaflói.

Vissuð þið það að Pönduporn er mjög svipað okkar porni.
Nema það er í svarthvítu.

Immagaddus segir.......

föstudagur, nóvember 17, 2006

Ja hérnasta.

É... Fnhh! Bhúinn a dreka þrjá lítra af skjólaflór.
O setja í þrjár Feitar . Vá maður.













Immagaddus segir..........