Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

laugardagur, júlí 07, 2007

Við og um okkur.

Búinn
að
komast
að því.
Mannkynið
er eins
og
eldur.

Og þegar
við erum búin að éta.
Er ekkert eftir.


Immagaddus................................

Toga.




Af sögum,af eyjunni Toga.
Kölluðu Bandaríkjamenn
hana.
Vinalegu eyjuna.
Þess vegna,
hlýtur að vera
rökrétt.
Að sprengja
djöfulluinn.
Úr eyju,
sem,
heitir,
því,
aðlaðandi
nafni
Bikini.


Immagaddus segir..................

Síðasta vika..

Á þessum heitustu dögum
síðustu viku,
Varð ég pirraður.
Ég lokaður inni, og þurfti að
vinna.
Og á þessum heitustu dögum
Síðustu viku,
Hataði ég útigangsmenn,
heimilislausa, atvinnuleysingja,
iðjuleysingja,og sérstaklega þá sem voru í sumarfríi.
Af hverju leysir þetta. "Pakk", mig ekki af á meðan veðrið er svona gott.
Heimilislausir og útigangsmenn vilja komast inn, ég vil komast út.
þarf að skýra þetta eitthvað meir?


Ps.
Ég hata líka túrista.
Koma hingað og njóta góða veðursins á meðan ég þarf að vinna.
Drullist hingað á veturna.
Þá getum við hent í ykkur snjóboltum og sagt ykkur.
Svona er Ísland í dag.
Fávitarnir ykkar.

"Yes I came to Iceland. And it was so warm."
Jahh! Eins og þetta sé alltaf svona.


Immagaddus segir.

mánudagur, júlí 02, 2007

Gróðrahugmynd.

Er að spá í að setja af stað
raunveruleikaþátt.
Þar sem fjórir Ítalskir
prestar, sitjandi í vanillubúðing.
Ræða ótímabærar barneignir
hjá frumbyggjum í mið Átralíu.



Immagaddus segir.....................

Skýring.

Fyrir þá sem eru nýkomnir að teikniborðinu.
Er myndin fyrir neðan,
af fitufrumu.

Immagaddus segir.............

Ég veit.

Ég er búinn að
komast að því,
Af hverju,
ég er of
feitur.

Ég er með of
margar,
of aldar,
svona
frumur
í
likamanum.

Og þær eru alltaf
annaðhvort skakkar eða fullar.

Immagaddus segir........................

laugardagur, júní 30, 2007

Lóð á vogarskál.


Er búinn
með
minn skammt af
því að vera umhvervisvænn í dag.
Setti mitt lóð á vogarskálarnar og fór í sólbað.
Við það
endurkastaðist það mikið
af sólarljósi aftur út í geiminn,
að það kemur til með að hindra hnatthitun um eina nanósekúndu.

Bara svona í framhjáhaldi.

Hvernig væri að skyndibitakeðjur færi að ( Kolefnisjafna) feitt fólk?
Allt feitt fólk úr að ofan, og endurkastið af því myndi jafnvel sólbrenna plútó.
( Nei ekki hundinn hans Mikka). The former planet called Pluto.

Immagaddus segir............

Eilífar kvartanir.

Eins og allflestum,
sem búa a.m.k.
Við Rauðagerðið er kunnt.
Er sól og hiti í dag.
Ég dreif mig út í garð.
Fór úr að ofan og lét sólina
framleiða fyrir mig D- vítamín.
Var búinn að vera þar í álitlegan tíma.
Þegar ég fékk símtal,
frá flugumferðarstjórn.
Ég truflaði víst allt sjónflug til landsins.

Ætla í megrun á morgun.


Immagaddus segir.........................

Læknar.

Fór til læknis.
Illt í löpp.
Lyfseðillinn
var svo
illa skrifaður
að
Verkjataflan
lítur svona út.

Og ég á að borða þrjár á dag!!!


Immagaddus segir............

Einhverntímann allt fyrst.

Skemmtilegar fréttir.
Lögreglan á Hólmavík var að
handtaka sinn fyrsta fíkniefnasala í bænum.
Já enginn er óhultur lengur.
Bæjarbúar eru flemtri slegnir.
Aðalega þó af fíkniefnasalanum sem gekk víst um
bæinn með flemtur og sló til manna með því.

Fíkniefnasalinn var yfirbugaður í hverfi
sem allrajafna er
kallað rauðahverfið á Hólmavík.
En þar ku víst krárnar og súlustaðirnir vera til húsa.
Mikið er um ferðamenn á svæðinu núna sem
gæti skýrt eitthvað af þessu.

Loksins.

Jæja.
Þá
eru
Bandaríkjamenn
loksins
hættir
að leita af gjöreyðingarvopnum í írak.
Án þess þó að hafa fundið nein.
Kannski geta þeir þá farið að einbeita sér af annaðhvort að gjöreyða írak.
Eða gjöreyðileggja vopn í Írak.
Hvernig sem fer.
Þá ættu þeir samt að fara að leita af skiltum sem vísar þeim vegin út úr Írak og til síns heima.


Immagaddus segir....................

Hundspott.

Ég ætla nú ekki að fara að bera í yfirfullann bætiflákann með því að segja.
" Að ef highlætið á fréttum vikunar verður minningarathöfn um kínverskan pönkhund, þá er eitthvað að."
Til dæmis hef ég aldrei séð jafnmarga safnast saman með blóm og kransæðakökur á jafn stuttum tíma og það tók að skipuleggja þessa minningarathöfn.
Ef leyfi hefði náðst í tíma hefði sjálfsagt líka verið kertafleyting á tjörninni.
En djísúss. Ef þessi frétt hefði verið frá Ameríku hefðum við öll hlegið.
Ekki svo að þetta sé ekki harmleikur fyrir eigandann en.........
Við erum til dæmis ekki svona rögg og tilfinningasöm, þegar heilu fjölskyldurnar þurrkast út í bíl og sjóslysum.
En þegar einn kínveskur hundur kaupir bújörð norður í landi, þá verður allt vitlaust.
Meira að segja hundur sem heitir Dog Pow á öllum kínverskum matseðlum.

Ég votta samt eigandanum samúð mína, og bendi henni á Sirrí.
Hún ku jú vera með þátt sem heitir Örlagadagurinn.

Vonandi fyrirgefa lesendur mínir mér fyrir það að hafa ekki átt betri mynd af hundinum.

Immagaddus segir..........................

þriðjudagur, júní 26, 2007

Víkingur, Skagamannanes.

Veit ekki alveg hvað gerðist.
En Skagamannamennirnir skoruðu mörkin.
Og skítvingur víktapaði.

Veðrið í Fossvoginum er allavega gott.
GRRRRRRR!!!!!


Immagaddus segir....................

mánudagur, júní 25, 2007

Landbrotsmenn.

Við erum
svo langt
kominn
í því að
leggja
landið
okkar í auðn.
Að eftir
Nokkur ár
getum við ekki
Notið náttúrunar nema að kaupa okkur svona
hamstrahjól úr grasi.

Immagaddus segir...............

Náttúruvernd.

Í fréttum í kvöld.

Buhuu!
Eina/besta leiðin til þessað hefta sand/moldarfok er ekki að reyna að græða upp landið. Heldur sökkva því.
Meira að segja Landvernd er búin að segja.
Gerum stærra uppistöðulón við Hagavatn til þess að það sé þá komið vatn til að virkja, og ehemm þá fýkur ekki sandur og mold suður til Reykjavíkur.
Jibbííí!
Landvernd vill semsagt bjarga landinu okkar frá því að fjúka á haf út með því að búa til nógu mikið af uppistöðulónum.
En eins og allir vita er uppistaðan af lónum vatn.
Ætlum við þá að hafa uppistöðuna af almenningi í landinu undir vatni, þannig að almenningur í landinu geti sagt komandi kynslóðum.
þetta var nú ekki alltaf svona. Stundum var smá ryk í augunum okkar, en þegar álverin komu, sáum við strax betur.

Nokkur ár líða.
Nú er uppistaðan af öllu sem græða má á, vatnsbúskapur og þær hræður sem ennþá nenna og getað búið hér löngu búnar að naga gat á bæði handarbökin yfir því að hafa ekki nennt að hafa hlustað á Ómar.
Og það ómar í mörg ár fyrir eyrunum á þeim.
Nú á meira að segja að fara að eyðileggja Urriðafoss fyrir nokkrar krónur.
Guði sé lof fyrir frábært safn að ljósmyndum af Íslenskri náttúru.
Þær eru það eina sen við eigum eftir.

Immagaddus segir................



Immagaddus segir.................

Snilld.












Immagaddus segir...............

Bara í Ameríku.











Immagaddus segir................

Að eiga allt.

Jamm.
Eitt
af því
fáa
sem hægt
er að
kaupa
ef þú
hefur
ekkert
við
peningana
þína að gera.

Immagaddus segir............

Sumt.

Var að rífast við
Hindúa um
Þetta skilti.
Hann var
mér ekki
sammála.
En hann um
Það.

Immagaddus segir..................

Gróðurhúsaáhrif.

Jæja gott fólk.
Loksins ágætis veður.
Fór út í garð um 17:45. Klæddur aðeins í Liverpoolbúning. ( Þegiðu Feitibjörn).
Þ.e. Í stuttbuxum og LFC treyju. ( þegiðu Feitibjörn)
Fór strax úr treyjunni. ( Þegiðu Feitibjörn)
Og stuðlaði þar með að áhrifaríku endukasti sólarljóss frá jörðu.
Feitur karl útí garði, skjannahvítur. Ég er viss um að bæði Tunglið og Sólin sólbrunnu í dag.
Lögreglan gaf úr orðsendingu að allir þeir sem ætluðu að keyra Miklubrautina og um smáíbúðahverfið þyrftu að vera með rafsuðuhjálm til að blindast ekki.
Og á meðan ég er þar, er ekki öll nótt úti enn.


Immagaddus segir...............