Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

mánudagur, janúar 19, 2009

Hvar erum við?

Ekkert gott
væri án ills.

Ást án haturs.

Gleði án sorgar.

Enginn Guð
án Djöfuls.

Stöndum við ein?

Eða er æðri máttur?

Æðri máttur sem
skapaði okkur í sinni mynd?

Auðvitað er Guð til.

En hann er bara ekki
alveg eins og við viljum
hafa hann.

Hann er nefnilega
ekki allur þar
sem hann er séður.




Og hann veit af biturri
reynslu að hann er ekki
alveg fullkominn.

Í reynd er hann bæði Guð og Djöfullinn.

Annað væri aðeins firra.

Hann skapaði okkur í sinni Mynd.
Og þá með öllum þeim annmörkum sem því fylgir.

Guð er ekki sá sem skrifað er um í Biblíunni nema að sumu leiti.
Biblían er trúarrit skrifað og ritskoðað af hinum ýmsum kirkjulegum
deildum gegnum aldirnar, og hefur löngum verið notað sem hrikalegt afl
til stjórnunar á mannfólkinu.

Ýmsar útgáfur eru til af Biblíunni.
Og fer þá eftir hvaða trú maðurinn aðhyllist.

Gyðingar,Múhameðstrúarmenn,Kristnir,Búdda,Hindúar ofl.
Allir trúa.
Allsaðar er gott og illt að berjast.

Allstaðar eru menn sem skýla sér á bak við sína trú.

Menn.

Sem kemur aftur að því sem ég held.

Að Guð og Djöfullinn, eru í reynd sama veran.

Guð gaf okkur frjálsan vilja.
Guði sé lof fyrir það.

Sem skýrir syndafallið að nokkru leiti.

Guð sagði við Adam og Evu í árdaga Edens.
Et eigi af skilningstrénu, því ef þið gerið það,þá
munið þið ekki vera lengur í náðinni hjá mér.

Sem þýðir einfaldlega.
Ég lofa ykkur endalausri hamingju ef þið farið eftir
reglunum sem eru inni í garðinum, en ef þið gerið eitthvað annað,
þá er ekkert víst að grasið sé grænna hinum megin.

En af því að við vorum síðar mynnt á
að við höfum frjálsan vilja þá brutum við reglurnar.

Og komust að því að grasið var ekkert grænna hinum megin.
En þá var það orðið of seint.

Svona sirka sömu reglur og þegar við stofnum til slagsmála á
bar eða borgum ekki reikninginn og förum í straff
og fáum aldrei að koma þangað aftur.

Og enn þann dag í dag höfum við ekkert lært af reynslunni.

Því Guð er í reynd alveg eins og við þegar við
erum upp á okkur versta.

Smásmugulegur,móðgunargjarn,hefnigjarn,tilætlunarsamur og langrækinn.

Samanber Sódómu og Gómorru. Og síðan Flóðinu mikla.

Hann varð virkilega svo pirraður á okkur að hann gerðist
mesti fjöldamorðingi sem sögur fara af.

Ef það er ekki djöfullegt þá veit ég ekki hvað.

Hann skapaði okkur í sinni mynd.

Einhverjir eru enn að reyna að komast inn í Eden.
Restinni er alveg sama um Eden og vilja hafa þennan
yndislega frjálsa vilja og lifa eftir honum.

Af þessu tvennu.
Eru einhverjir sem líta svo á að Guð hafi skapað okkur í sinni mynd.
Og þar af leiðandi er líkami þeirra hof Guðs.
Og Líkami okkar er hof Guðs, því hann skapaði okkur í sinni mynd.
Og þeir sem eru því fylgjandi fara vel með hof Guðs og halda að þeir séu
betri en við hin.

Við hin vitum sjálfsagt að líkami okkar er hof Guðs. en okkur er í sjálfu sér
sama, því við höfum kosið að ganga þannig um hofið, að það er ekki þangað til að
sprungur fara að myndast í því að við förum að spá í að kannski höfum við ekki
alveg viðhaldið því eins og vera ber.

Himmnaríki og Helvíti:

Guð er Djöfullinn.
Eins er Djöfullinn, Guð, sama persónan.

Eins manns Himmnaríki er annars manns Helvíti.
Eins manns Helvíti er annars manns Himmnaríki.

Himmnaríki og Helvíti eru virkilega til.

Þau eru bara hvergi til á korti.

Himmnaríki og Helvíti eru innra með okkur öllum.

Og við höfum val.
Frjálsan vilja.

Við veljum okkar skapadægur.

Og það kemur því ekkert við hvaða trú við aðhyllumst.

Það eru nefnilega til svona almennar reglur.

Dæmi um almennar reglur eru til dæmis boðorðin 10.
Nema kannski þessi fyrsta.

Maður á nefnilega alltaf að hafa hugann opinn.

En restin segir sig sjálf.

Vera góður við mömmu,pabba og vinina.
Ekki stela,ljúgja,drepa,ríða framhjá,éta of mikið,öfundast
og svo framvegis.

Þetta er allt kommon sense, svo ég sletti nú aðeins.

Þær stéttir sem hafa síðan haft með það að gera hafa í aldanna rás.
Breytt þeim ritningum sem fjöldinn á að fara eftir.

Tökum til dæmis frjásemisguðinn Pan.

Hálf geit hálfur maður.
Satan er skuggalega líkur Pan.

Það voru jú til myndir af Guði.
Því ekki að taka eitthvað líkneski og búa til
algera andstæðu við það himmneska.

Einhvern með horn,klaufir,hala.
Og eftir nokkurn tíma varð til Djöfull.

Sem er í reynd svolítið fyndið því upphaflega var Pan.
Tilbeðinn sem guð frjósemis og ástar.

En það er manninum líkt að í valdi sínu og til þess að
hafa stjórn á lýðnum, að hagræða aðeins,búa til og falsa.
Að koma ár sinni það vel fyrir borð að enginn annar komist að.

En síðan er til Guð þegar hann er í virkilega góðu skapi.

Tek sem dæmi.

Þegar hann tekur sig til og málar hin fullkomnustu sólsetur og
sólarupprásir.
Það er alveg sama hversu mörg svoleiðis málverk frá honum ég hef séð,
Ég verð aldrei leiður á þeim.

Lætur lítið barn brosa í fyrsta skipti framann í heiminn.
Ekkert fallegra til.

Læknar og líknar þjáðum sálum, og lætur lækna og vísindamenn
standa eftir agndofa.

Og síðast en ekki síst, lætur okkur líða vel augnabliki áður en við förum til hans.

Mín barátta:


Guð og Djöfullinn berjast um mig daglega.
Og ég tala daglega við þá báða.

Yfirleitt vinnur Guð. sem betur fer.
En stundum vinnur Djöfullinn.
Og þá er ég nokkurn tíma að sleikja sárin.
Og fer í sjálfsskoðun.

En það er sennilega vegna þess að ég leyfi honum að vinna.

Ekki einu sinni Guð getur sigrað Djöfullinn í sjálfum mér
þegar ég ljæ Djöflinum liðs.

Guð hefur gefið mér frjálsan vilja.
Guð hefur sýnt mér fram á hvað ég get gert.

Djöfullinn hefur gefið mér frjálsan vilja.
Sú leið sem hann sýnir mér er ekki eins túristavæn,
en á tímum fer ég hana samt.

En þegar ég er orðinn leiður á þeim holótta innantóma vegi.
Fer ég inn á slétta kaflann aftur og vona að skemmdirnar
á sálartetrinu og hofinu séu ekki of miklar.

Ég á eftir að berjast mörgum sinnum aftur á þessari ævi minni.

Þakka þeim báðum þegar það er vopnahlé.

Annars myndi ég ekki lifa þetta af.


Immagaddus segir..............

Í kvöld.



















Jæja þá ræðst það víst í kvöld hvort Liverpool nær toppsætinu aftur.




Immagaddus segir.................

mánudagur, desember 29, 2008

Þá bregðast krosstré sem önnur tré.











Þá er hann fangelsaður.

Usss!




Immagaddus segir................

sunnudagur, desember 28, 2008

Áramótadrykkurinn.

Hér er uppskrift af fínum áramótakokkteil.

Birt áður einhverntímann fyrir löngu.


Góð skvetta af Jagermeister.
Plómugin. 5.cl.
Triple-sec. 4. cl.
Quadruple-sec. 2.cl.
Vogrís úr hundsauga. 1 mg.
Absolut pickle. 5.cl.
Rauða röndin af Colgate tannkremi. 2.cm.
Eitur úr Labóto náttfiðrildinu frá Loisiana. 3.dropar.

Þetta er hrært út með þungunarprófi
þangað til að það verður jákvætt.
þá er mulnum ís bætt út í og sett í
long,long drink glas og hringt á sjúkrabíl.


Immagaddus segir...................

Jólahugleiðing. Part lll.

Skyldi Franskur koss, bara vera kallaður koss í Frakklandi?

Af hverju sér maður aldrei fyrirsögnina: Skyggn manneskja vinnur í Lottó?

Af hverju er skammstöfun, svona langt orð?

Af hverju er hnefaleikahringurinn ferhyrndur.

Af hverju eru sumir ávaxtasafar framleiddir úr gerfiefnum
en uppþvottalögur úr alvöru eplum,sítrónum o.s.f.v?

Af hverju er ekki til kattamatur með músabragði?

Af hverju geta konur ekki sett á sig maskara án þess að opna munninn?

Af hverju geta konur ekki opnað munninn án þess að segja einhverja
bölvaða vitleysu?

Ef hverju geta karlmenn ekki lokað munninum eftir að kona er
búinn að segja einhverja tóma vitleysu.



Immagaddus segir.........................

Jólahugleiðing. Part ll.










Hef verið að spá svolítið í tannburstaauglýsingar.

Núverið er keppst við að auglýsa.

Só and só Tannburstinn.
Nú með nýju og betra gripi.

Kommon!

Hversu mikið grip þarf maður til þess að tannbursta sig?

Það er ekki eins og maður hafi verið að fjárfesta
í Formúlu eitt keppnisbíl.

Hefur þetta einhverntímann verið vandamál.

Buhu!! Ég er aumingi. Get ekki haldið á tannbursta.

Ég gæti skilið auglýsingar frá fyrirtækjum sem framleiða
til dæmis logsuðutæki, að auglýsa nýtt og betra grip.

Ég meina.
Hversu mörg slys má rekja til þess að einhver hafi
misst gripið á tannburstanum sínum og valdið slysi?

Ég meina.

Frétt:
Loka þurfti Central Park í 23 mínútur á meðan
fljúgandi tannburstar frá nálægum háhýsum rigndi niður
um opna glugga.


Ég meina það.


Immagaddus segir..................

Jólahugleiðing.

Árásum Ísraela víða mótmælt

Erlent 28. des. 2008 15:30

Árásum Ísraela víða mótmælt

Mikil reiðialda fer um hinn arabíska heim vegna fordæmalausra loftárása Ísraelshers á Gaza í gær og í dag.

Hafið þið tekið eftir hvernig þjóðarleiðtogar láta
þegar þeir eru í þann mund að fara í stríð við
aðrar þjóðir.

Gömul saga og ný.

Setja upp samkomur víðsvegar og reyna
að höfða til stríðsrómantíkinnar.

Kyssa börn og brjóta brauð með almúganum.

En svo einhvernveginn deyr fjörið út, þegar
líkpokarnir koma í flugvélaförmum heim og
fréttamyndir af sundurskotnum konum og
börnum fylla sjónvarpsskjáinn.

Á þessum tímum er alveg ótrúlegt hvað er
hægt að fá fólk til að hata hvort annað í nafni trúar
og eða stjórnmálaskoðanna.

Fólk fórnar sér enn á altari tilbúins málstaðar manna,
sem eru tilbúnir að drepa heilu þjóðirnar til þess eins
að hafa völd yfir fólki sem þeir fyrirlíta og hneppa vilja
í þrældóm, vegna skoðanna sinna.

Og á meðan við keppumst við að drepa þá sem
við eigum ekkert sökótt við.

Drepum við okkur sjálf smátt og smátt.

Gleðilega Ljósahátíð Ísraelsmenn..


Immagaddus segir......................

miðvikudagur, desember 24, 2008

Glaðileg Jól.













Fór í dag í afmæliskaffi hjá Mömmu.

Eftir tragteringarnar lét hún mig meðal
annars fá innrammaða Skírnarmynd af Jóni
bróður heinum.

Fannst svolítið táknrækt.

En við feðgarnir höfðum það allir fínt.

Óska ykkur öllum Gleðilegra Jóla
og farsældar á komandi árum.


Immagaddus segir...............

laugardagur, desember 20, 2008

Í góðu gamni.

Útrásarvíkingarnir komu Íslensku þjóðinni
að barmi hengiflugsins.

En það voru stjórnvöld sem stigu skrefinu lengra.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.......................



Immagaddus segir................

föstudagur, desember 19, 2008

Tapað / Fundið.







Dagblaðið Financial Times komst yfir leynilega skýrslu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna um að yfir eitt þúsund kjarnorkuvopn eða hluta úr slíkum vopnum sem Bandaríkjaher hefur til umráða. Hefur Herinn ekki hugmynd um hvar eru niðurkomin.......................


Og okkur er hætta búin af hverjum??????????????


Ps.

Þegar einhver þjóð á yfir það mörgum kjarnorkuvopnum að ráða.
Er þá ekki kominn tími til að setja reglu.

Regla nr 1.
Ef þú átt eina eða fleiri kjarnorkusprengjur.
Verður þú að vita hvar þær eru.


Þetta er ekki eins og að tína vettlingi.





Immagaddus segir....................

Kreppa.















Innbrotum og þjófnuðum er að fjölga!

Við vissum þetta náttúrulega með þjófnaðinn,
en núna er semsagt innbrotum að fjölga líka.

Ég spái því að þessi innbrotaalda standi hinsvegar stutt
yfir. Innbrotsþjófar gefast nefnilega mun fyrr upp, þegar þeir
komast að því að það er þegar búið að stela öllu steini léttara
af hverju einasta heimili í landinu.



Immagaddus segir......................

Ég bara spyr.

Björgunarskipið Ingibjörg
Björgunarskipið Ingibjörg
Innlent | mbl.is | 19.12.2008 | 14:22

Björgunarskipi stolið


Björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Höfn í Hornafirði, Ingibjörgu, var stolið í morgun.




Það fyndna í þessari frétt er að í áraraðir hafa einungis færustu sjófarendum verið kleift að sigla þarna inn og út.

Síðan kemur einhver ógæfumaður og siglir skipinu út, fer í smá sightseeing og inn aftur, eftir að búið er að gefa út að það sé of hættulegt að fara þarna um.

Án þess að hann hafi kveikt á stýrisvélinni.
Og þar af leiðandi með óvirkt stýri.
Ha! Ha! HA! Ha! Ha! Ha!

Hversu erfiður getur Ósinn verið?


Immagaddus segir.............

Jólagjöf.























Liverpool fékk Real Madrid í jólagjöf.

Jibbíííí!!!!


Ps.
Myndaval af þessum liðum er EKKI hlutrægt.




Immagaddus segir.....................................

fimmtudagur, desember 18, 2008

Jól 2008.

cid:_2_1036EDFC1033F9000049E8D7C1257522

Jólakortin sem við fáum frá bönkunum okkar í ár.



Immagaddus segir.................

miðvikudagur, desember 17, 2008

Kannski ekki fyndið.

Sprakk í tætlur í líkbrennsluofni

mynd
Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/Moonbattery.com

skrifar:

Kínverji sem talið var að látist hefði af völdum eldingar lést í raun þegar hann varð fyrir eldflaug sem ætlað var að framkalla rigningu. Lík hans sprakk svo í brennsluofninum.


Ætti þetta að koma einhverjum á óvart?


Immagaddus segir........................

þriðjudagur, desember 16, 2008

Áhyggjur.

Hef svolitlar áhyggjur um þegar
Grænt framboð hyggt blása til mótmæla.

Þá mæta tveir, sem halda að þeir fá eitthvað
að reykja.

Hinir eru stónd heima hjá sér og eru
að bíða eftir að sjá eitthvað í sjónvarpinu.



Immagaddus segir......................

11. Góð ráð í kreppunni.

1. Nota auðlindir okkar meira, t.d. byrja að veiða hval
í ágóðaskini, það er markaður fyrir hann.
Þekking á jarðhita, hugbúnaði,fiskveiðum
og byrja að veiða þennann utankvótafisk
eins og t.d. Makríl ofl.

2. Hætta að flytja út óunninn fisk. Við erum með frystihúsin,tæknina
og mannaflann til þess að vinna þeta allt hérna heima.

3. Fara að vinna úr einhverju af þessu áli hérna heima, í stað
þess að flytaja það út til annara sem síðan fullvinna það.

4. Minnka innflutning. Við erum að flytja inn um 70 tegundir af
avaxtasafa, yfir 100.000. tegundir af sælgæti,6000 kextegundir,
frostna grænmetisrétti,frostna kjötrétti,pizzur,brauð,frosið kjöt,
ofl,ofl. ( Við erum á hausnum engann innflutning á lúxusvöru ).
Síðan erum við að flytja inn FISK í allskonar örbylgju og djúpsteikingar
rétti.
HMMM?

5. Minnka innflutning á fötum og vefnaðarvöru. Við vorum með
ágætis fyrirtæki hér áðurfyrr sem saumuðu/prjónuðu á þjóðina
aldeilis ágætis fatnað, gluggatjöld teppi ofl. Endurvekjum það.

6. Hækkum skatta á erlend fyrtæki hér á landi, sem
hafa notið góðs af góðæri síðustu ára á okkar kostnað.

7. Fækkum alþingismönnum og ráðherrum um 50 %.
þetta er ekki nema hagkerfi upp á 300.000 hræður.
Sem er sirka ein deild hjá sumum erlendum fyrirtækjum,
og þær deildir þurfa ekki svona stórar "stjórnir", eða forstjóra.

8. Kaupum ekki fyrirtæki aftur sem við áttum áður, en seldum
til einkavæðingar. Þá lærir enginn og þú tapar.

9. Verum meira með ástvinum og fjölskyldu. Gefur helling
og er tiltölulega ódýrt.

10. Verum góð hvert við annað og dýrin
í kring um okkur. Kostar ekki neitt.

11. Hættum að flytja inn bíla í 5-6 ár.
Þeir bílar sem eru á götunni núna eru
hvort sem er það nýjir að þeir duga alveg í bili.



Immagaddus segir.....................

Einmitt.

Ég vil að konurnar mínar séu eins og skrúfur.
Undirsínkaðar og með flatann haus.



Immagaddus segir.....................

Hagstofan.

Hagstofustjóri sér nú fram á að Hagstofu Íslands verði lokað
um óákveðin tíma.

Enda engin ástæða að reka Hagsofu þegar enginn
hagur er í að búa á Íslandi.



Immagaddus segir...............

Skúbb.













Samkvæmt nýjustu og óstaðfestustu fréttum í heimi.
Hefur Íþróttaálfurinn nú verið kærður, dæmdur og sakfelldur fyrir
kynferðislega áreitni gegn Sollu stirðu.

Hlaut Íþróttaálfurinn þennann dóm fyrir þær sakagiftir.

Hann þarf að borga henni:
12. skeppur af eplum.
19. kíló appelsínur.
46. stk Kúrbíta.
28. stk Ananas.
9. stk Kókoshnetur.
32. pakka af grænmetisbuffum frá Grænum kosti, sem seinna var síðan dregið til
baka af þeirri ástæðu að Solla hafi þjáðst nóg.

Einnig þarf hann að taka.
85. Armbegjur.
12. Kollnísa.
15. Heljarstökk.

Að síðustu þarf hann að sinna 174 klst vinnu
í endursýndum Latabæ hjá RUV.


Dómurinn verður staðfestur í Dómshúsi Latabæjar
um leið og hann nær að verða sýndur í 275 löndum.



Immagaddus segir.......................