laugardagur, janúar 27, 2007

Landsins forni fjandi.

Hafís er nú landfastur við Arnarfjörð.
Fleiri hundruð tonn af honum.

Nei kæru íbúar þessa lands.
Ekki sleppa ykkur og æða vestur á firði.

Ykkur hefur sennilega misheyrst.






Þetta var ekki skafís sem rak á land.

Heldur hafís fíflin ykkar.

Þeir sem eru farnir af stað geta hinsvegar.










Pulsað sig niður í Staðarskála áður en þeir halda hnípnir heim.

Munið.


Hafís er rekís frá Grænlandi, fullur af pcb,salti og ísbjrnarhlandi.

Skafís er hinsvegar fullur af verksmiðjuframleiddu undanrennudufti íslenzku vatni,ljúffengum gerfibragðefnum,E- númerum,næloni og áttahundruðogníutíuföldum ráðlögðum ársskammti af sykri.

Namm! Namm!.
Það keppir enginn við það.

Immagaddus segir..........

Engin ummæli:

Skrifa ummæli