Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

föstudagur, desember 28, 2007

Gleðilega hátíð. ( Ekki jól)













Ég óska lesendum þessa Bloggs.
Hjartanlega til hamingju með alla þessa síðustu daga.
Og óska öllum gleðilegs nýs árs.

Ps.
Ég þori ekki fyrir nokkurn mun að óska neinum
gleðilegra jóla.

Maður verður að vera pólitískt rétthugsandi og
passa að móðga ekki neinn.

pps.

Ég veit að hátíðin er liðin.
Og er of seinn.
En.
Setra er beint en aldrei.

ppps.

Ég valdi Bjúgnakræki sem minn
jólasvein.....afsakið. Hátíðasvein.
Af augljósum ástæðum.


Immagaddus segir............

Svona eru jólin.

Rosalega var gott að hvíla sig í heilan dag eftir
Jólastússið.

Var búinn að vinna flesta laugardaga í des.

Og fékk síðan þetta líka flotta jólafrí.

Fékk að fara heim á hádegi á aðfangadag.
Var allann daginn heima á jóladag.
Mætti síðan á annann á jólum í vinnuna.
bara stutt að vísu.
Taka út kjöt og svo framvegis.
En flott frí.

Man samt ekki betur en venjuleg helgi sé betri,
svona frílega séð.

Hvaða há sem er. ( Anyhow)
Er að vinna á morgun.
Frí allann sunnudaginn.

Vinn til hádegis á gamlársdag.
Fæ frí allann nýársdag.
Mæti síðan eiturhress á miðvikudaginn, tilbúinn að takast á við síðasta mánuðinn
áður en ég byrja að vinna hjá Sjónmælingum Íslands.

Já þið sáuð rétt.

Er að fara að vinna hjá.
Sjóntækjaframleiðanda.

Kemur showkortum ekkert við.


Immagaddus segir............

laugardagur, desember 22, 2007

Og þið hélduð hvað?

Gæti farið í fangelsi fyrir að barna systur Britney

mynd
Casey er ekki í góðum málum.

Kærasti hinnar óléttu Jamie Lynn Spears, gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir samræði við ólögráða einstakling fyrir að barna stúlkuna. Jamie Lynn er sextán ára gömul, en kærastinn, Casey Aldridge, nítján. Refsing fyrir brotið getur numið allt að tíu ára fangelsisvist.

Hafi barnið verið getið í Louisiana, þar sem parið býr, flokkast það undir ,,glæpsamlegt holdlegt samræði við ólögráða einstakling". Skilgreiningin á þessu glæpsamlega samræði er kynlíf milli tvegga einstaklinga þar sem annar er nítján ára eða eldri, en hinn á aldrinum tólf til sautján. Jamie Lynn er sextán ára gömul, en kærastinn, Casey Aldridge, nítján.


Sjaldan fellur treilorinn langt frá trashinu.

Immagaddus segir...........

mánudagur, desember 17, 2007

Ef.

Ef maður hefur gert eitthvað
ólöglegt af sér.
Og löggan nær manni.

Þá á maður aldrei að vera með
skýrslur á sér.

Ég veit ekki hversu margir afbrotamenn
hafa verið nappaðir eftir að lögregkan
hefur tekið af þeim skýrslu.
En þeir eru ófáir.




Immagaddus segir...................

Heyrðu.

Var í Kolaprtinu síðustu helgi.

Sá á einu söluborðinu alveg
risastórann kuðung.

Hann var það stór að að
krabbinn sem var inn í honum
hefði auðveldlega getað drepið
sexhundruðogfimtíu reykingarmenn.

Og þá bara úr óbeinum reykingum.

En þar sem hann var löngu farinn úr kuðungnum.
Bar ég hann upp að hægra eyranu á mér.

Kuðunginn þar að segja.

Var búinn að taka það fram þetta með krabbann.

Og viti menn.
Ég heyrði sjávarnið.

Hafði ekkert með það að gera að
það rigndi eins og móðurserðir.. En.

Fór síðan að borði með skrilljón skóm.
Flestir voru þeir ekki endilega pör.

En jú ég meina það passa ekki allir saman er það?
Bara ef það er ódýrt.

En í bríaríi.
Og kannski vegna þess að ég var
drullu skakkur og fullur.

Tók ég upp skó af einu borðinu.
Bar hann upp að hægra eyranu.
Og heyrði fótatak.


Immagaddus segir..............

Sofandi á verðinum part ll.

Og nú er hinn útlendingurinn sem
nauðgaði konunni niður í miðbæ.
Líka stunginn af úr landi.

Við erum fokkíngs eyja!!!!

Af hverju getum við ekki fylgst með
hverjir mega fara og hverjir mega koma?!!!!!!!!!!!

Djöfull er þetta að verða pirrandi.


Immagaddus segir..................

laugardagur, desember 15, 2007

Sofandi á verðinum?

Nú þurfum við Íslendingar að fara að rífa okkur upp á rassgatinu.

Setja lög um að Íslenska skuli vera opinbert mál á Íslandi.

Þjóðtungan okkar er ekki bundin í stjórnarskrá.

Við eigum að kenna kristinfræði í skólum!
því hin opinbera trú okkar er kristni.

Og við eigum að endurskoða þá dóma sem útlendingar eru að fá.

Við erum orðin svo dauðhrædd við að vera kynþáttahatarar/útlendingahatarar
að það er orðið aumkunarvert.

Okkar land. Okkar reglur.
Ef þið skiljið það ekki.
Eruð þið ekki velkominn.

( Kemur pólitískri rétthugsun ekkert við)
Þú býður heim gestum. Og ætlast til þess að þeir fari eftir reglum heimilisins.

Við erum að opna landið okkar fyrir fólki sem er með aðra siði og trú en við.
Og oftast en ekki ofsótt í sínu heimalandi.
það aðlagast fljótt og virðir okkar reglur.

Hinir hinsvegar ætla sér aldrei að gera slíkt.

Ég er samt ekki tilbúinn til þess að fórna öllu því sem ein smæsta þjóð í heimi er
búin að byggja upp, vegna þess að ég þurfi að vera pólítískt rétthugsandi.

þeir útlendingar sem koma hingað.
Og vilja búa hér.
Verið velkominir.

En í guðanna bænum.
Lærið Íslensku og virðið það samfélag sem þið eruð að koma í.

Hvergi í heiminum er betra að vera.

Nema þegar.

Ég kem til með að lesa fréttirnar.

Tveir lögreglumenn skotnir til bana við venjulegt umferðareftirlit.

Og það fer að styttast í þessa frétt.

Við erum að hleypa inn í landið allskonar óðþjóðalýð.

Meira að segja einn af líkfundarmönnunum komst inn í landið aftur.
Eftir að það var búið að setja hann í 10 ára útlegð.

Við erum svo grandalaus, að Ísland er orðin ein helsta paradís glæpamanna.
Þeim er bannað að koma inn í landið. Samt komast þeir í gegn.
Þeir eru settir í farbann.
Samt komast þeir undan.

Ég spái því.
Að eftir 5 ár verði lögreglan hér heima vopnuð.
Og það eigi eftir að kosta.
Tvo til átta lögreglumenn lífið.
Áður en það gerist.

Hvað ætlum við að segja við börnin þeirra?
Við vissum þetta alltaf.
En?????

Litháenska mafían er komin.

Hér eru spíttverksmiðjur, kannabisversmiðjur,mansal, og peningaþvottur.

Íslendingar.
VÖKNUM!!!!

Immagaddus segir...........

Vestmannaeyjar.









Hvernig væri að fara að banna sölu
Og notkun eldfæra í
Vestmannaeyjum?

Þeim er greinilega ekki treystandi fyrir
opnum eldi. ( Fyrir utan þjóðhátíð)

Að vísu má segja um slökkviliðið þar.
Að það sé nú það best þjálfaða af Íslenskum
slökkviliðum.


Immagaddus segir..........................

föstudagur, desember 14, 2007

Svona.

Þessi samantekt er ekki tiltæk. Smelltu hér til að skoða færsluna.

Rok.

Það var svo mikið rok hérna í dag.

Að ég fékk bjartsýnisverðlaun Bröste *
fyrir það að fara út og reyna að kveikja
mér í sígarettu.

En það tókst.

Ég er þannig vaxinn að ég er mjög
lofteðlisfræðilega vænn.
( aerodynamic ).

Fljótlega eftir að ég fór út að reykja.
Fóru 8 manns bakvið mig og náðu að kveikja sér í
sínum rettum.

Ef við hefðum raðað okkur upp í Vaff stellingu eins og
gæsirnar gera.
Hefðum við getað blásið Álnabæ upp á Akranes.

*
Bjartsýnisverðlaunum Bröste er best
lýst á midgetporn.com


Immagaddus segir............

miðvikudagur, desember 12, 2007

Verst.




















Þetta er versti dauðdagi sem fyrirfinnst.


Immagaddus segir............

þriðjudagur, desember 11, 2007

Femínistar.

Ætli öryggisráð Femínista sé nú á
Viðbúnaðarstigi eitt?

Jarðskjálftar við Upptyppinga eru
að grynnka, og ef þeir verða grynnri.
Má búast við gosi.

Meiri karlrembufréttir eru ekki til.

Stöðvum þessar kynjabundnu fréttir!


Immagaddus segir.................

Vá maður.

Var einu sinni með svo feitri stelpu.
Að þegar við fórum út að borða.
Vað það í umhverfismat.



Immagaddus segir...........

föstudagur, desember 07, 2007

Mannbjörg.

Mannbjörg varð.









Þegar skemmtibáturinn Súlan
strandaði í Girndarvíkurhöfn.
Þetta gerðist allt í rólegheitum
og í blíðskapa verði.

Hér fyrir ofan er mynd af nokkrum
skipbrotsmönnunum.


Immagaddus segir..............

Ekki svo augljóst.

Átti eitt sin vin sem
ég hélt að væri
Hommi.

Kom síðar í ljós að
hann var bara með
sykursýki.




Immagaddus segir..............

Augljóst?









Hverskonar svið eru þetta.
Eru þetta kannski sjómælingasvið
Lhg eins og hann Gústi vinnur hjá.

Immagaddus segir..............

miðvikudagur, desember 05, 2007

Já fínt. Já sæll.

















Kannabisræktun er ekki öll slæm.

Til dæmis þarf ég ekki nema um 197.
Kannabisplöntur til þess að
kolefnisjafna bílinn minn.

Og allir eru happí.


Immagaddus segir...............

mánudagur, desember 03, 2007

Ónauðsynlegar upplýsingar. með (ý).

















Baldur .

Þegar sjómælingabáturinn Baldur var tekinn í notkun
árið 1991.
Var hann stærsti sjómælingarbáturinn á Íslandi.


Immagaddus segir...........

Ónauðsynlegar upplísingar.










Emma Mærsk.

Er Stærsta gámaflutningaskip í heimi.

Bara að láta ykkur vita það.

Immagaddus segir.

Kynjamerkt.

Ljósmóðir er Kynjamerkt starfsheiti.

Um konur sem útskrifast úr ákveðnu námi.

Þannig.

Að nú heimta ég að allir karlmenn sem útskrifast
úr þessu námi.

Verði kallaðir:

Ljósamenn.


Immagaddus segir...................

Fælni

Pólóníus.
Var haldin svo sjúklegri fælni um að vera stunginn, að
hann faldi sig öllum stundum bak við tjöldin.

Immagaddus segir...............