Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

fimmtudagur, maí 31, 2007

Í augum þeim sem sér.

Sumt fólk er með of mikinn frítíma.
Nú er allt að verða vitlaust í Póllandi, vegna þess að Teletubbies hafa hræðileg áhrif á krakka.
Þeir ku víst brengla kynferðiskennd barna frá 0 til 5 ára, já og alveg upp í 10 ára aldur eða meir.
Allt er þetta vegna þess að Tinky Winki gæti verið samkynhneigður.
Sennilega (Kinky Winki).
Það bráðskemmtilega við þetta alltsaman er að það er fullorðið fólk sem heldur þessu fram.
Hvað í ósköpunum er að gerast í hugarfylgsnum þessa fólks.
Það sér klám í Smáralindarblöðum, Hagkaupsblöðum og allstaðar í skúmaskotum hins daglega lífs.
Ætti það ekki að ritskoða fyrst sinn eigin hugsanahátt, áður en ráðist er á barnaþætti (efni) af þessu tagi.
Nú eru síðan einhverjir álíka vitleysingar í Bandaríkjunum farnir að hugsa það sama.
Verður næst ráðist á Íþróttaálfinn okkar, vegna þess að Solla stirða er í stuttu pilsi og getur farið í splitt. ( Sem er alþekkt í klámiðnaðinum).
Hvernig væri að þetta fólk færi frekar að spyrna fótum við ofbeldisleikjum, svosem leikjum sem æfa menn í að nauðga og drepa í staðinn fyrir að segja að almennt barnaefni sé klámfengið.
Í augum þeim sem sér klám allstaðar er klámhundur.
Ekki troða þínum saurugu hugsunum inn á okkur hin.
Halltu þínum saurugu hugsunum fyrir sjálfan þig, og leifðu framleiðendum vandaðs barnaefnis að vera í friði.
Það hugsa nefnilega ekki allir eins og þú.



Immagaddus segir..........................

Bara.

Jæja.
Einn dagur í vinnu.
Svo er ég kominn í sumarfrí.
Jibbííí!
Nú er síðasti dagur reykinga á skemmtistöðum.
Semsagt ekki verður hægt lengur að eitra loftið fyrir starfsfólkinu og hinum sem ekki reykja.
Nú verður maður bara að finna sér eitthvað annað til að angra gesti og gangandi með.
Annars sýnist mér að það séu engin sérstök viðurlög við því að brjóta þetta bann, annað en að vera vísað út.
Og...Í mínu tilfelli hefur mér margoft verið sagt að yfirgefa hina og þessa bari, án árangurs.
Ég er nefnilega með skollaeyru og skelli þeim reglulega við ýmsum athugasemdum sem starfsmenn bara segja við mig.


Immagaddus segir.......................

miðvikudagur, maí 30, 2007

Sumar.


Það er komið sumar.
Og er það vel.
Það er samt eitt leiðinlegt við sumarið.
Því ef maður býr í kjallaraíbúð.
Fær maður allskonar skorkvikindi inn til sín.
Það á meðal.
Köngulær,margfætlur,hunangsflugur og geitunga.
Og síðast en ekki síst.
Brúnbjöllur.
Þær gera manni svosem ekkert.
En geta verið hvimleiðar.


Immagaddus segir.................

Tveir dagar.







Bara fimtudagur og föstudagur eftir.
Þá verð ég kominn í sumarfrí.
Í tavæær vikur.
Sumarfrí þetta mun einkennast af.
Sterkri áfengisneyslu, áti á óhollum mat,
hreyfingaleysi og hetjulegri inntöku á verkja og eða skynvillandi töflum.
Nei annars.
Þá yrði þetta bara eins og í vinnunni.

Var að spá í að slá garðinn í dag.
Fór út.
Og sló.
Því á frest.


Immagaddus segir.....................

Óðum.

Jæja.
Vika síðan að liverpoolmenn urðu ekki Evrópumeistarar
í fótbolta.
Sjá mynd þar sem bikarinn er kysstur bless.
Ég er hinsvegar óðum að ná mér eftir þessa
lífsreynslu. Víkingarnir mínir eru að gera góða hluti þessa daganna og er ég bara þónokkuð kátur með það.
Einhverjir hafa bent mér á það að sum fyrri blogga minna í þessum mánuði séu ósmekkleg.
Þetta er samt ekki neitt.
Frændi minn samdi einu sinni svo ógeðslegt blogg að internetinu var frestað um hálft annað ár.


Immagaddus segir....................

þriðjudagur, maí 29, 2007

Óþörf spurning?

Hverjar eru líkurnar á því að.
Andlátsorð Elísabetar Taylor séu.
Richard Burton. Taktu skaufan á þér úr rassgatinu á mér.


Immagaddus segir...................

Gleymska.


Blindfullur.
Á leið heim frá Grandrokk.
Tók leið númer þrjú.
Búinn að sitja í strætó að
Þjóðmynjasafninu, þá.
Laust niður í huga mér.
Lækning á krabbameini.

Verst að ég
gleymdi henni
í sætinu
þegar ég fór út á stoppistöðinni
heima.









Immagaddus segir..................

Ég meina það.

Fullt af ofbeldisverkum í miðbæ Reykjarvíkur þessa helgi.
Ókey.
Tek hattinn ofan fyrir Fíknó og öllum þeim sem eru að berjast gegn eiturlyfjum, þ.ám. notkun og sölu.
Nú er svo komið að það eru hundar kettir og allskonar önnur tæki búin að hreinsa svo vel til í Kannabisgeiranum að það eru bara spítt og kókfíklar á götunum.
Og það eru þeir sem eru að fremja þessi ofbeldisverk.
Hinir sem reykja kannabis. Hass og Maríu hennar Hönnu. eru hættir að fara niður í bæ.
Þeir eru allstaðar lyktaðir uppi.
En það eru einmitt þeir sem við viljum hafa niður í bæ.
Þegar maður er búinn að reykja smá.
Nennir maður varla að svara símanum.
Hvað þá heldur að fara að slást.
En. Nei.
útrýmum fyrst liðinu sem er rólegt og gott.
Síðan berjumst við, við hörðu efnin. ( Já berjumst ).
Sjáið þið fyrir ykkur þrælskakka/nn mann/konu, ráðast á lögregluþjón eða samborgara.
Nei.
Það mesta sem þið sjáið er að þrælskökk persóna er að ráðast á Hamborgara. ( munchies).
Tökum nú til hjá okkur.
Bönnum vín á veitingarstöðum um leið og tóbaksreykingar.
Opnum hassbari og kökuhús og förum öll sátt heim.


Immagaddus segir...................

laugardagur, maí 26, 2007

Að fá það.

Talandi um þegar maður er búinn að drekka smá bjór.

Fór heim í gær eftir að hafa fengið mér vatnssopa á Ölver.
Labbaði sem leið liggur framhjá Olís þvottaplaninu.
Þar sá ég konu í erfiðleikum með að þvo bílinn sinn.
Gaf mér á tal við hana og spurði hvort hún vildi aðstoð?
Hún játti því svolítið pirruð.
Hún gat nefnilega ekki bæði þvegið undirvagninn og haldið bílnum lóðréttum meðan hún skrúfaði frá krananum.
MENTHAL NOTE. Númer eitt.
Ef kona getur gert svona.
Flýðu.
En það er ótrúlegt hvað nokkrir vatnssopar og kvenmansleysi geta gert.

Eftir að hafa aðstoðað hana. ( svalkalega eru þetta mörg eð í einu orði).
Bauðst hún annaðhvort að skutla mér heim, eða við færum í " Kaffi " til hennar.
Ég nennti ekki að hella uppá þegar ég væri kominn heim, enda langaði mig ekkert í kaffi.
Því í gamla daga þegar kona bauð upp á kaffi.
Meinti hún ekki endilega kaffi.
Já Kæru börn.
Í gamla daga var kaffi nefnilega ávísun á kynlíf.
Ókey kæru börn.
Ég skal útskýra hvað ávísun er.
Ávísun er svona blað sem bankinn þinn gaf þér.
Þú gast fengið 25,30,eða 50 svona blöð í einu hefti.
Hefti = bók.
Sorrí.
bók = DVD, nema úr pappír og þú gast flett.
Ókey.
Ávísun = debitkort úr pappír, þú skrifaðir upphæðina sjálf/ur.
Og tókst síðan afleiðingunum.

Anýhú.
Þetta kaffiboð reyndist verða hið besta mál.
því þegar við komum heim til hennar, sá eg ekki kaffikönnu nokkurnstaðar.

Hinsvegar þegar ég vaknaði upp þá var ég í vondum málum.
skv. Myndinni hér fyrir ofan.
Hún bjó í Yrsufellinu.

Ps.
Þótt það sé gaman á meðan á stendur.
Mæli ég ekki með konu sem er með klaufir og hala.

Immagaddus segir......................

Bömmer.

Þrátt fyrir að það hafi verið met
áhorf hjá framsóknarfólki
á kosningasjónvarp.

Eru þeir ekki lengur í stjórn.






Immagaddus segir............................

Án orða.

















Immagaddus segir..............

Menntamál.

Hver segir að kvenfólk
þurfi að taka erfiðar
ákvarðanir,varðandi
hvað þær vilji verða?

Ekki ég.

Femínistar.
Hættiði svo að væla.



Immagaddus segir..................

Fita ll.

Þessi meinti maður ku heita Manuel.
Og kemur frá Suður Ameríku.
Og það er eitt sem ég hef alltaf sagt.
Suður Amerískur matur er góður.
Og þarna er lifandi sönnunn fyrir því.
Hversu lengi hann á eftir ólifað.
Get ég ekki um hér.
Hann hefur nýlega sagt héraðsfréttablaðinu sínu.
" að hann ætli að ná af sér 15 kílóum fyrir sumarið."
Og þá er það bara óþrifnaðurinn sem hann er með í buxunum.
Nei nei.
En í alvöru.
Sagði hann héraðsfréttablaðinu.
"Að honum langaði aðeins að fá að hitta Langreyðarkú og fara á stefnumót eins og eðlilegt fólk."

Jæts!


Immagaddus segir....................

Fita.

Jæja.
Þá er búið að finna feitasta barn jarðarinnar.
Hún hu vera svo feit að hún er byrjuð að toga smásteinabeltið milli Mars og Jarðar í áttina til Bandaríkjanna Norður Ameríku.
Hún er nýlega hætt að borða með gaffli og hefur nú nýtt sér krafta Steinbock og borðar nú bara með gaffallyftara.
Ef myndin prentast vel sést greinilega að hún er að fara að éta málband sem einhver hefur kæruleysislega sett fyrir framan hana.
Eða þá að hún er að skíta.
Les það ekki alveg úr svipnum.


Immagaddus segir....................

Gamalt en..

Gamalt en alltaf jafn fyndið
Eða þannig sko.

Það hefur löngum verið þekkt að kynlíf er góð heilsdurækt, en þangað
til nýlega hafði enginn rannsakað á vísindalegum grundvelli hvernig brennslu á kaloríum er háttað við þessar kringumstæður. Núna loks eru niðurstöður komnar og eru þær eftir farandi:
Að fjarlæga fötin hennar:
Með samþykki hennar: 12 Kal
Án samþykkis hennar: 187 Kal
Að opna brjóstahaldarann:
Með báðum höndum: 8 Kal
Með annari hendi: 12 Kal
Með tönnunum: 85 Kal
Að setja á smokk:
Með standpínu: 6 Kal
Án standpínu: 315 Kal
Forleikur:
Reyna að finna snípinn: 8 Kal
Reyna að finna G-blettinn: 92 Kal
Stellingar:
Trúboða: 12 Kal
69 liggjandi: 78 Kal
69 standandi: 112 Kal
Hjólbörur: 216 Kal
Aftan frá: 326 Kal
Hangandi í Ítalskri ljósakrónu: 912 Kal
Fullnæging:
Ekta: 112 Kal
Uppgerð: 315 Kal
Eftir fullnægingu:
Liggja uppi rúmi í faðmlögum:18 Kal
Standa strax upp: 36 Kal
Útskýra afhverju þú stóðst strax upp: 816 Kal
Að fá standpínu fljótlega aftur (15 - 20 mín seinna):
20-29 ára: 36 Kal
30-39 ára: 80 Kal
40-49 ára: 124 Kal
50-59 ára: 972 Kal
60-69 ára: 2716 Kal
70+: Niðurstöðufjöldi
ófullnægjandi
Að klæða sig á eftir:
Rólega: 32 Kal
Hratt: 98 Kal
Pabbi hennar bankandi ú hurðina: 1218 Kal
Konan þín bankandi á hurðina: 3521 Kal

Immagaddus segir...............................................

miðvikudagur, maí 23, 2007

Í dag.

En hvað um það.

Jæja nokkrir tímar í leik.
Og Liverpoolmenn byrjaðir aðþen-ja-sig.
M-org-unbl-að-ið, er m-eð síð-ur það sem al-tt er skri-fað m-eð ban-dst-riki.
Ferl-eg-a pi-rra-ndi.

En hvað um það.
Tökum upp léttara hjal og tölum um mellur.
Mellur eru fjölmargar í heiminum og þegar er búið að stofna samtök með og á móti þeim í heiminum.
Helstu baráttumáll samtaka sem eru hliðhollar mellum hafa á stefnuskrá sinni að verða kallaðar töggur á öllum tungumálum.
Til þess að verða ekki ruglað saman við mellur. sem er allt annar hlutur.
Er samt nokkuð spenntur fyrir leiknum á eftir.


Immagaddus segir.......................

þriðjudagur, maí 22, 2007

Það.

Það var maður sem hét Kexmus.
Og hann var blindur.


Immagaddus segir......................

mánudagur, maí 21, 2007

Nálgast.

Jamm.
Eftir tvo daga verða Le pool de liver.
Evrópumeistarar.
því eins og sagt er.
They deliverpool.
Annars, að öllum hroka burt. Hefði átt að segja.
Burtséð frá öllum hroka.
Held ég virkillerlega að Lifrarpollur verði Evrópumeistari í fótbolta.
Og þegar þeir verða búnir að læra að spila saman, hver veit þá hvað þeir geta gert.
Þetta var spurning er það ekki?
Það á í raun að vera spurningarmerki eftir setningunni. hver veit þá hvað þeir geta gert.
Djöfuls.
Ég hefði áttað setja stórt Há í hver veit þá hvað þeir geta gert. því Háið kom á eftir punkti.

Ensk sletta: Anyhú.
Hverjum er ekki sama.
Er að fara að borða þykkt lúxusbeikon með beini. ( Reykt svínakótiletta).
Munið.
Tveimur dögum fyrir leik.
Þetta er skúbb.
Liverpool er Evrópumeistari.


Immagaddus segir.....................................

föstudagur, maí 18, 2007

Af hverju??


Af hverju svarar Guð mér ekki?
Er algeng spurning.
Svarið er einfalt.
þú ert sennilega dauður og ert að reyna að ná í hann " kollect ".
Feitur séns hann svari þér.
Farðu á Skypje.






Immagaddus segir.........................

Spelt.

Hvað er spelt

Ancient Grain With Modern Day Appeal

Not to be confused with oats or wheat, spelt is a member of the same grain family but is an entirely different species. It is one of the original seven grains mentioned in the Bible. This 9000 year old grain originated in the Fertile Crescent and over the centuries found its way throughout Europe where it remained a very popular grain for hundreds of years. To Germans it is their beloved "Dinkel" and is now found in a wide variety of foods and beverages from bread to beer. To Italians it is called "Farro" and is found in gourmet soups, pizza crusts, breads and cakes.
And to Icelanders it´s called YUCKKK!!!!

Já þar hafið þið það.
Þetta er kosher, Guddi bjó sennilega til mannað úr þessu.
En já Étið spelt og farið til himna.
Munið bara.
Þið eruð númer 5893420974. Í röðinni.

Ykkur var nær að hanga svona lengi í símanum.


Ps. þetta með okkur Íslendingana var bætt við greinina af mér.


Immagaddus segir..............

Post kosningar.

Við kjósum okkur stórn.
Fáum ekki stjórnina sem við kusum.
En við fengum stjórnina sem við eigum skilið.

Ef þið náið rekinu á mér.
( If you catch my drift).

Það öflugasta vopn sem við höfum eru útstrikanir.
Og ef nægilega mörg okkar strika yfir nægilega mörg nöfn.
Dettur þetta fólk neðar og neðar á listunum, þangað til að það kemst ekki inn.
Eina reglan er sá að þú mátt bara strika út fólk á þeim lista sem þú kaust. ( Auðvitað ).
Annað væri náttúrulega bara bull.
En.
Næst þegar þú kýst.
Notaðu útstrikunaraðferðina ef þú villt ekki að einhver þjóni þér.


Immagaddus segir.......................

Gagnslausar upplýsingar og annað smálegt.

Ef Richter hefði hitt Parkinson.
Hefði veikin sennilega verið mæld eins og jarðskjálftar.
Kelvin átti konu sem var "(Hot)".
Kona Newtons, var sennilega feit.
Ástarsamband Darwins og konu hans var lengi að þróast.
Einstein var afar flókinn persónuleiki.
Kona Georgs Bush jr. Ætti í raun að vera þroskaþjálfi.
Sem betur fer kallaði Freud ekki allt ömmu sína.

Ef fimmtán bílar fara afturábak frá Þórsmörk til hellu, og eru á 18 km meðalhraða á klukkustund.
Og 4 göngumenn frá þýzkalandi og einn Svisslendingur fara skokkandi frá Selfossi til Víkur, og meðalhraði þeirra er 3 km á klukkustund.
Hverjum er þá ekki sama um það að ég skrifaði hellu með litlu hái?

Pabbi er að búa til hangikjötssallat.
Núna er hann búinn að ná í tað, setja það í ofninn ásamt birkigreinum.
Hann er líka búinn að setja eitt saltað lambalæri , 500 grömm af majónesi og 4 dósir af blönduðu grænmeti inn í hann.
YummY!!!!!!!

Reyndi að biðja til Guðs í morgun.
Eftir svona 30 mínútur gerðist það ég fékk svar.
Þú ert númer 4863215600. í röðinni, vinsamlega hinkrið. Númer verða afgreidd í réttri röð.

Vitið þið nokkuð um lítinn ónotaðan Guð handa mér?



Immagaddus segir.............................

miðvikudagur, maí 16, 2007

Kringlan.

Ég sá svo ljótt barn í Kringlunni áðan að úrið mitt stoppaði.
Það var svo ljótt að þegar það fór inn í mjólkurkælinn í Hagkaupum, súrnaði mjólkin.
Það var svo ljótt að þegar að það fæddist, rassskellti fæðingarlæknirinn foreldrana.
Já, sem sagt ljótt.
Það var svo ljótt að þegar það labbaði framhjá kaffirekkanum, varð kaffið koffínlaust.
Það var svo ljótt að mamma þess bar það einu sinni út með Mogganum.


Ps.
Annars á ekki að gera grín af fólki.


Immagaddus segir.

þriðjudagur, maí 15, 2007

Jörðin okkar.










Ég er fylgjandi sölu áfengis í matvöruverzlunum,sjoppum,benzínstöðum og eða hvar sem einhver vill selja mér áfengi.
Á tímum hnattlægrar hlínunar.(sbr. Að hlína, eða að verða Hlýtt)
Er það siðferðisleg skylda okkar að leyfa sölu áfengis, ja, bara næstum allsstaðar.

Dæmi:
Föstudagur.
Þú ferð og verzlar allann matinn inn fyrir helgina. Ekur síðan eitthvað annað til þess að kaupa þér rauðvín með matnum og bjór til þess að eiga yfir helgina.
Ef vínið hefði verið til í búðinni þar sem þú verzlaðir þér inn matinn. ( Samt ekki innmatinn, þú verzlaðir hann annarsstaðar. Önnur saga)..
Já. Til að gera langa sögu leiðinlega.
Ef þú hefðir geta verzlað með vín hjá kaupmanninum.
Hefðir þú getað sparað benzín, óþarfa tíma og fyrirhöfn, stuðlað að minni umferð og heilmiklum pirringi í umferðinni og auk þess minnkað mikið magn gróðurhúsavaldandi efna út í andrúmsloftið.
Núverandi kerfi með ríkiseinokun á áfengi er lokið.
Mitt kerfið er hnattvænt.
Það er náttúruvænt að geta fengið sér á sama stað. Góða ribeye steik úr kjötborði og rauðvín með.



Immagaddus segir............

Staðalímyndir.

Ég trúi því staðfastlega að ég sé eins og fólk er flest.
( Þó svo að aðrir kunni að hafa sitthvað um það að segja)
Hinsvegar, er ég einn af þeim sem.
Hafa einhverntíma á lífsleiðinni litið í spegil og verið ókátur með það sem ég sá.
Bingó *.
Það er einmitt sem mér langar að fjalla um.
Það eru tvær leiðir til þess að losna útúr þessu vandamáli.
Og báðar eru erfiðar.
Það eru engin snöggleist vandamál í þessu máli.
Eins og í mínu tilfelli.
Segir spegillinn mér að raka mig oftar,fara í klippingu,megra mig,megra mig, megra mig og megra mig.
Þá er bara eitt að gera.
Skipta um lífsíl og fara í ræktina,hjóla,borða hollann mat. hætta að drekka tvo kassa af bjór á viku.
Hætta að drekka 6 rauðvín um helgar, hætta að fá sér skot með bjórnum.
Hvern er ég að kidda?
Á morgun ríf ég niður alla spegla á heimilinu.





*. Í Vinabæ á morgun!

Ps.
Og já, voða tæknileg mynd af spegli.



Immagaddus segir...............................

sunnudagur, maí 13, 2007

Kosninganótt.

Var alveg í stórkostlegu.
" Karlapartíi í kvöld.,,
Ítalskir ostar, hráskinkur,melónur, pestó og bagettur.
Grillaðar nautnalundir og "alles,,.
Mikið af bjór og rauðvíni.
En.
Á einum eða öðrum tímapunkti, þurfti ég að fara heim.
" heimilisástæður,,.
Kom samt við á Ölver í einn Thule..
Þar var bara leiðinlegt fólk.
Barþjónarnir, næstum klöppuðu fyrir mér þegar ég staulaðist inn.+Fékk mér einn bjór, og fór.
Og hér er ég.



Immagaddus segir......................

laugardagur, maí 12, 2007

Kostningar.

Sólin skín í dag.
Það er kostningadagur.
Og ég var rétt í þessu að komast að því að ég get látið hvern sem er ýta bílnum mínum.
Flokkarnir gera nefnilega allt fyrir þig í dag.
Ég er til dæmis búinn að þvælast um allann bæ í dag.
Íslandshreyfingin og Vinstri Grænir eru búnir að vera að ýta bílnum mínum hvert sem ég vill.
Svo framarlega að ég starti honum ekki.
Er a' spá í að fara til Egilstaða.



Immagaddus segir.................................

þriðjudagur, maí 08, 2007

Til athugunar.


Sokkar sem eru of þröngir í hálsinn.
Geta verið hættulegir heilsu þinni.









Immagaddus segir......................

föstudagur, maí 04, 2007

The Borg.

Þarna er mynd af einum skæðasta sníkli mannskepnunar í dag.
Ég veit allt um það því ég nota svona.
Mjög þægilegt í vinnunni.
Þangað til einhver vinnufélagi sem þú ætlar að tala við er í símanum.
Þú byrjar.
Blessaður.
Hann:Já,já.
þú:Er ekki allt gott?
Hann: Ha? jú,jú
Þú: Á að gera eitthvað í kvöld.
Hann:Já,já.
Þú: Og hvað á að gera?
Hann: Ha? Nei ekkert mikið.
Þú: Kva, kommonn það er föstudagur.
Hann: Nei. Bara smá rauðvín.
Þú: Kommonn, það er föstudagur, ekkert rauðvínsfyllerí maður.
Hann: Eða smá púrtvín.
Þú: Kommon. Ertu orðin kellíng?
Hann: Halltu kjafti ég er í símanum!!!

Immagaddus segir......................

Pirringur.

Djöfull er ég pirraður út í glös.
Þau virka alveg herfilega þegar maður er láréttur.

Strákar.
Að vera kosinn besti kyssarinn í sumarbúðum KFUM í vatnaskógi.
er ekki endilega góður hlutur.

En.
Það er alveg merkilegt hvað það er mikið stress í umferðinni.
Þarna var ég bara rólegur á 10-30 kílómetra hraða að því að ég vissi af börnum í grenndinni, nýbúinn að leita í aftursætinu á bílnum af bjór, kaupti mér nefnilega nokkra kalda í Kringlunni til að drekka á leiðinni heim. Föstudagsumferð á mánaðarmótum getur verið svo hæg, að hún getur hæglega gert útaf við mann. þessvegna nota ég allann þann tíma sem ég fæ til að drekka mig fullann á föstudögum.
Já þarna var ég samt, bara á 10-30 kílómetra hraða, nýbúinn að stinga bjórnum í glasahaldarann, þegar mér datt í hug að nota tímann enn betur og vefja mér eina feita.
Fannst það Snjallráð, bölvaði samt því að ég ætti ekki í nös.
Leit á hraðamælinn, sem sagði mér að hraði bílsins væri nú um 20 kílómetrar á klukkustund.
Sem mér fannst alveg upplagður hraði 800 kílóa bifreiðar, til þess að vefja sér eina feita.
Svo ég gerði það.
Þegar því var lokið og rettan reykt var kominn bílaröð frá Grensásvegi og allt vestur á Seltjarnarnes.
Og hver einasti maður flautandi.
Ekki svona með stút á munninum. Heldur flautandi bílflautunum.
Svona til að fyrirbyggja allann misskilning.
Þurfti að vísu að stoppa á ímynduðum ljósum á Tunguveginum með bílinn þversum í götunni
en það er allt í lögregluskýrslum og bíður úrvinnslu.
Og sama hvað þið heyrið.
Kötturinn er búinn að vera framaná grillinu síðan ég fékk bílinn.

Immagaddus segir.............................

Já og.

Já og þetta finnst mér fyndið.


















Immagaddus segir....................