Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

miðvikudagur, september 20, 2006

Án titils.

Jæja.
Þá er Harry Kewell farinn til Ástralíu til þess að vinna í fiski.
Honum finnst sennilegra betra að gera það en spila með Liverpool.
Liverpool.
Já annars.
Lifrarpollur spilar við Nýjakastala í kvöld.
Verða að vinna.
Það er annars í fréttum að ég var færður einu sinni enn til í fyrirtækinu.
Og með því er ég búinn að komast að því að það getur tekið mann allt upp í átta ár að vinna sig uppí það að skera gúllas allann daginn.
Jibbíííí...Æi!

Föðmum holdsveikann dagurinn mistókst víst hræðilega.
Enginn mætti.
Var ég annars búinn að minnast á það að vísindamenn voru að komast að því að óbeinar reykingar eru hættulegri fyrir móður á meðgöngu og barnið sem hún ber undir belti, en áður var talið.
Ókey.
Þær valda m.a. of háum blóðþrýsting,krabbameini,misþroska fósturs,dauða, þá bæði móður og barns.
Hvernig í ósköpunum geta þær þá verið hættulegri en þetta?.
Grafa þær þig upp eftir að þær eru búnar að valda öllu þessu og gera það aftur.

Immagaddus segir..................

1 ummæli:

Bjössi sagði...

Harry Kewell er að deita stelpu sem er fædd snemma í mars.

Svo það er hægt að segja að hann sé að vinna í fiski.

Word verification dagsins er:
lszopd

Sem heyrist þegar meyjarhaftið í fiski brestur.