Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

föstudagur, desember 19, 2008

Jólagjöf.























Liverpool fékk Real Madrid í jólagjöf.

Jibbíííí!!!!


Ps.
Myndaval af þessum liðum er EKKI hlutrægt.




Immagaddus segir.....................................

fimmtudagur, desember 18, 2008

Jól 2008.

cid:_2_1036EDFC1033F9000049E8D7C1257522

Jólakortin sem við fáum frá bönkunum okkar í ár.



Immagaddus segir.................

miðvikudagur, desember 17, 2008

Kannski ekki fyndið.

Sprakk í tætlur í líkbrennsluofni

mynd
Myndin tengist ekki þessari frétt. MYND/Moonbattery.com

skrifar:

Kínverji sem talið var að látist hefði af völdum eldingar lést í raun þegar hann varð fyrir eldflaug sem ætlað var að framkalla rigningu. Lík hans sprakk svo í brennsluofninum.


Ætti þetta að koma einhverjum á óvart?


Immagaddus segir........................

þriðjudagur, desember 16, 2008

Áhyggjur.

Hef svolitlar áhyggjur um þegar
Grænt framboð hyggt blása til mótmæla.

Þá mæta tveir, sem halda að þeir fá eitthvað
að reykja.

Hinir eru stónd heima hjá sér og eru
að bíða eftir að sjá eitthvað í sjónvarpinu.



Immagaddus segir......................

11. Góð ráð í kreppunni.

1. Nota auðlindir okkar meira, t.d. byrja að veiða hval
í ágóðaskini, það er markaður fyrir hann.
Þekking á jarðhita, hugbúnaði,fiskveiðum
og byrja að veiða þennann utankvótafisk
eins og t.d. Makríl ofl.

2. Hætta að flytja út óunninn fisk. Við erum með frystihúsin,tæknina
og mannaflann til þess að vinna þeta allt hérna heima.

3. Fara að vinna úr einhverju af þessu áli hérna heima, í stað
þess að flytaja það út til annara sem síðan fullvinna það.

4. Minnka innflutning. Við erum að flytja inn um 70 tegundir af
avaxtasafa, yfir 100.000. tegundir af sælgæti,6000 kextegundir,
frostna grænmetisrétti,frostna kjötrétti,pizzur,brauð,frosið kjöt,
ofl,ofl. ( Við erum á hausnum engann innflutning á lúxusvöru ).
Síðan erum við að flytja inn FISK í allskonar örbylgju og djúpsteikingar
rétti.
HMMM?

5. Minnka innflutning á fötum og vefnaðarvöru. Við vorum með
ágætis fyrirtæki hér áðurfyrr sem saumuðu/prjónuðu á þjóðina
aldeilis ágætis fatnað, gluggatjöld teppi ofl. Endurvekjum það.

6. Hækkum skatta á erlend fyrtæki hér á landi, sem
hafa notið góðs af góðæri síðustu ára á okkar kostnað.

7. Fækkum alþingismönnum og ráðherrum um 50 %.
þetta er ekki nema hagkerfi upp á 300.000 hræður.
Sem er sirka ein deild hjá sumum erlendum fyrirtækjum,
og þær deildir þurfa ekki svona stórar "stjórnir", eða forstjóra.

8. Kaupum ekki fyrirtæki aftur sem við áttum áður, en seldum
til einkavæðingar. Þá lærir enginn og þú tapar.

9. Verum meira með ástvinum og fjölskyldu. Gefur helling
og er tiltölulega ódýrt.

10. Verum góð hvert við annað og dýrin
í kring um okkur. Kostar ekki neitt.

11. Hættum að flytja inn bíla í 5-6 ár.
Þeir bílar sem eru á götunni núna eru
hvort sem er það nýjir að þeir duga alveg í bili.



Immagaddus segir.....................

Einmitt.

Ég vil að konurnar mínar séu eins og skrúfur.
Undirsínkaðar og með flatann haus.



Immagaddus segir.....................

Hagstofan.

Hagstofustjóri sér nú fram á að Hagstofu Íslands verði lokað
um óákveðin tíma.

Enda engin ástæða að reka Hagsofu þegar enginn
hagur er í að búa á Íslandi.



Immagaddus segir...............

Skúbb.













Samkvæmt nýjustu og óstaðfestustu fréttum í heimi.
Hefur Íþróttaálfurinn nú verið kærður, dæmdur og sakfelldur fyrir
kynferðislega áreitni gegn Sollu stirðu.

Hlaut Íþróttaálfurinn þennann dóm fyrir þær sakagiftir.

Hann þarf að borga henni:
12. skeppur af eplum.
19. kíló appelsínur.
46. stk Kúrbíta.
28. stk Ananas.
9. stk Kókoshnetur.
32. pakka af grænmetisbuffum frá Grænum kosti, sem seinna var síðan dregið til
baka af þeirri ástæðu að Solla hafi þjáðst nóg.

Einnig þarf hann að taka.
85. Armbegjur.
12. Kollnísa.
15. Heljarstökk.

Að síðustu þarf hann að sinna 174 klst vinnu
í endursýndum Latabæ hjá RUV.


Dómurinn verður staðfestur í Dómshúsi Latabæjar
um leið og hann nær að verða sýndur í 275 löndum.



Immagaddus segir.......................

mánudagur, desember 15, 2008

Landsbankinn.

Núna er það bún´að ske,
og Haukur þarf að skreppa.
Búinn að draga að sér fé.
og þá þarf til þess jeppa.


immagaddus segir......

sunnudagur, desember 14, 2008

Dónalegt.












Það er ekki nóg með að stjórnvöld séu
að taka okkur endalaust í kakóið.

Heldur erum við látin éta það aftur sumstaðar á landinu.




Immagaddus segir...............

föstudagur, desember 12, 2008

Helgin ónýt.







Ég er alveg. brjálaður!

Það kostar 92,90 krónur mínútan að hringja til Kína.


Immagaddus segir...................

þriðjudagur, desember 09, 2008

Ég er hræddur.









Nú í þessum skrifuðu orðum er Ríkisstjórnin að gera
okkur að aumingjum.

Fyrir tilviljun komst ég að því að þau eru búinn að
kaupa inn 1685321 lítra af aðgerðaleysi í 200 lítra tunnum
dulbúna sem lýsisperlur.

Sem yfirvöld ætla síðan sveitastjórnum að blanda
í vatnsból víðsvegar um landið, í þeirri veiku von að
fólk hætti að mótmæla og almennt að hafa skoðanir á
hlutum sem samkvæmt stjórnarliðum, við höfum ekki
hugmynd um hvort sem er.


Immagaddus segir...................

laugardagur, desember 06, 2008

Hef ekki efni á titli.

Lag:
Sigurður var sjómaður.
( Eins og í flutningi Bubba).

Sigurður var sjóðstjóri,
í hrikalegu góðæri.
en núna er Siggi lamaður,
vogunarsjóð í.

varð´ ann undir æseivi,
og hlutabréfa kjaftæði.
Engar fær hann bæturnar,
myntkörfunni á.

Dásamaður allstaðar,
með efnislitlar eignirnar.
en núna er Siggi öreigi,
á bótum eins og hin. x2.




Immagaddus segir..........

föstudagur, desember 05, 2008

Bankakreppa.









Búinn að komast að því að það er
sko enginn helvítis bankakreppa
á Íslandi.

Var inn í Smáralind.
Gat gengið framhjá þremur bönkum
á innanvið 5 mínútum án þess að fara
undir bert loft.


Immagaddus segir................

En ekki hvað?

Beint í meginmál síðu.



Vísir, 04. des. 2008 16:01

Fundu þúsundir peninga í Skildinganesi

mynd
Frá vinnu í Skildinganesi.

Þúsundir peninga fundust við jarðrask í Skerjafirðinum í Reykjavík í gær. Um var að ræða fimmeyringa og tíeyringa frá 1981. Með peningunum hafa komið í ljós tægjur af umbúðum úr taui, og merkimiðar sem benda til að myntin hafi legið í peningaflutningspokum, sem hafi rotnað og eyðst. Svo virðist sem peningunum hafi verið komið fyrir í gjótu sjávarmegin við sjóvarnargarðinn.

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir endurbætur á sjóvarnargarði við Skildinganes í Skerjafirðinum í Reykjavík. Fornleifastofnun Íslands hefur fylgst með framkvæmdunum fyrir Reykjavíkurborg, enda er varnargarðurinn reistur á eldri garðlögum, eða túngarði gamla heimatúnsins hjá Skildinganesbænum. Guðjón Kristinsson hleðslumaður vinnur við að hlaða upp garðinn. Þegar hreyft var við steinum framan við gamla varnargarðinn ultu hundruðir peninga fram.

Oddgeir Hansson fornleifafræðingur, sem hefur eftirlit með fornleifavinnunni, segir í samtali við Vísi að peningarnir muni líklegast enda á Árbæjarsafni. Búið sé að telja tíeyringana talsins og þeir virðist hafa verið um fjögur þúsund en einnig hafi verið um fimmeyringa að ræða. Oddgeir segir að lögreglan muni skoða hvernig peningarnir hafi komist á þennan stað, því að greinilega sé um að ræða peninga úr einhverri peningasendingu.


Svosem ekkert skrítið miðað við nafnið á nesinu ha?


Immagaddus segir...............

fimmtudagur, desember 04, 2008

Hvar?












Vegna mótmæla í andyri Seðlabankanns, hafa
stjórnvöld nú ákveðið að flytja hann á annann
og öruggari stað fjarri reiðu fólki og reiðu fé.

Ætla stjórnvöld síðan ekki að opinbera staðsetninguna
og bera við bankaleynd.


Immagaddus segir....................

Fögur var.
















Fögur er hlíðinn.
Brunnir akrar og slegið fólk.
Ég fer ekki rassgat.

Sign: (Stjórnin).


Immagaddus segir................

Farið.













Nú er stóra fjárhúsið við hólinn hans Adda
tómt af fé.

Fjárfestingarnar voru ekki nógu traustar.


Immagaddus segir.................

Þeir sem minna mega sín.













Nú er hart í ári hjá mörgum.

Þannig að nú eigum við að gefa smáfuglunum.

En.

Nú er einnig hart í ári hjá aumingja bankamönnunum, sem eru vanir sífeldu góðæri síðan þeir gubbuðust út úr Háskólum landsins eins og Engisprettuplága.

Nú mæli ég með að þeim sé gefið bankabygg því það er ódýrt og saðsamt.


Immagaddus segir......................

Það koma vonandi jól.

Aðventulag Baggalúts 2008

Alveg ágætt.

Immagaddus segir...................