Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

laugardagur, ágúst 09, 2008

Af hverju?

Ragna: Ákvað bara að gefa allt

mynd
Ragna Ingólfsdóttir. Mynd/Auðunn

Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar:

„Þrátt fyrir allt er ég rosalega ánægð með að hafa komist hingað og það er betra að þetta gerðist núna en á æfingu í gær til að mynda. Það hefði verið skemmtilegra að klára leikinn og sleppa við meiðslin en áhættan er til staðar þegar maður gefur allt í þetta," sagði Ragna Björg Ingólfsdóttir með tárin í augunum þegar Vísir hitti hana fyrir utan badmintonhöllina í Peking í gær.

Ragna gat sökum meiðslanna ekki komið á viðtalasvæðið og blaðamaður Vísis varð því að vippa sér inn í bíl til hennar þar sem hún var í nokkru spennufalli.

„Hirose spilaði mikið upp á meiðslin mín og sendi stanslaust í hornin sem mér finnst erfitt að fara í. Hún vissi vel hvað hún var að gera. Ég ákvað í annarri lotu að hætta að hugsa um hnéð og gefa bara allt. Þá fór að ganga betur en um leið gerist þetta og það mátti kannski búast við því," sagði Ragna en hún brosti í gegnum tárin og var augsýnilega mjög ánægð með að hafa getað tekið þátt eftir allt saman en hún hefur verið að spila á slitnu krossbandi í tæplega eitt og hálft ár.

„Ég hlakka núna til að fara heim og í aðgerð þar sem meiðslin verða löguð.Ég er búin að spila með ákveðna hræðslu í langan tíma. Ég hef verið að hætta á að skemma meira í hnénu í hvert skipti sem ég fer inn á völlinn og er því bara sátt við að halda fætinum. Ég get hreyft allar tær," sagði Ragna og brosti.

„Það verður gaman að byrja svo að æfa aftur með hnéð í lagi og þá get ég æft á allt annan og skemmtilegri hátt."

Kópí og peistað af visi.is.

Fjarri mér að gagnrýna.

Ef.....

Af hverju erum við að senda íþróttafólk á
Ólympíuleika ef það er ekki fit?

Það er svo ósanngjarnt við íþróttamanninn.

Greinin segir þetta allt.

Þetta er keppni um. Hver stendur síðastur uppi.

Gamla Colosseum.

Auðvitað koma andstæðingarnir til með að spila á alla
þá veikleika sem finnast.

Þetta er jú keppni.

Og sjúkraþjálfarar og læknar þessa fólks.

Skammist ykkar.

Maður sendir ekki slasað fólk langar leiðir eftir nýuppteknum kartöflum.
Hvað þá á Ólympíuleika.

Ps.

Smá plús fyrir hana.

Hún þurfti bara að tapa á Ólympíuleikunum til
þess að komast framar í biðröðina eftir hnéuppskurði.



Immagaddus segir...............


1 ummæli:

Bjössi sagði...

Jabb. Og að sama skapi verður Stevie G örugglega ekki settur inná í seinni leiknum á móti Standard Liege þegar Loserpool VERÐA að skora til að komast áfram.

Word verification dagsins er:
bgftivy
Sem er krossband að slitna.