Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

þriðjudagur, september 23, 2008

Rigningardagur.

Vissuð
þið?

meðal
líftími
verkamanna
í
límverksmiðu
eru
2-5 dagar áður en heilinn á þeim verður
óstarfshæfur.







Að heilsa með handabandi,
er siður í nútíma samfélagi.
Sem ég á stundum bágt með að
þola.

Það er þannig.

Öll höfum við heilsað fólki.

Allt frá því að heilsa fólki sem lætur
höndina á sér næstum leka úr höndinni á þér.

Til þeirra sem þurfa að að brjóta hvert einasta
bein í höndinni á þér.

Það fyrra er ókei.

Soldið gei en okei.

Það er þessi seinni sem getur verið svolítið pirrandi.

Þú heilsar einhverjum og þér finnst að
þú hafir læst sjálfan þig í skrúfstykki.

Þessi sem heilsar þér er venjulega með
sólheimaglott sem þýðir.

Ha! Ha!. Náði þér.
Síðan finnur þú að hvert einasta bein í lúkunni á þér er komið á vitlausan stað.

Hvað er eiginlega með þetta?

Smár penis á þessum mönnum, stór jeppi,
konan lemur þá........Hvað.

Er að spá næst þegar ég lendi í þessu að.

Öskra eins hátt og ég get. Hrista síðan lúkuna á mér
upp í loftið og öskra hvað í fokkanum er að þér.

Eða detta öskrandi í gólfið og þykjast vera örendur í 48 mínútur.
Láta fólk benda á hann og segja.

Hann drap manninn!!!

En.

Hættum að kreista þegar við heilsumst.
Það er akkúrat það sem ekki á að gera.

Heilsan er.
Handaband milli tveggja óvopnaðra manna sem eru vinir.


Immagaddus segir............................

1 ummæli:

Bjössi sagði...

Hitti Didier Drogba einu sinni. Heilsaði honum með handabandi. Tók þéttingsfast í hendina.

Hann datt niður dauður. Lá hreyfingarlaus.

Þangað til að leikurinn var búinn. Þá stóð hann upp og skokkaði í burtu.

Word verification dagsins er:
ymkpkp
Sem þýðir aumingi á fílabeinsku.