laugardagur, mars 24, 2007
Erfitt.
Æ! Æ!
Dópsalar í miklum erfiðleikum.
Heilbrigðiseftirlitið komið á stjá.
Á öllum smáskammtapokum eiturlyfja skal nú standa nákvæm Innihaldslýsing.
Í mörgum tilfellum er þetta nánast ógerlegt.
En þar sem þetta er stór bissness, eru nokkrir farnir að átta sig á þessu eftir ábendingar frá Heilbrigðis og Lyfjaeftirlitinu.
Nokkrir kúnnar hafa til dæmis kvartað yfir því að það vantar best fyrir dagsetningu, ásamt pökkunardegi á dópið sem þeir eru að kaupa,einnig
hvort þetta sé af innfluttu eða innlendu.
Þá eru margir notendur á nálum yfir því hvort þetta sé í raun óhætt.
Þá hvort íblöndunarefnin koma fram í réttu hlutfalli við þyngd, og hvort vatni sé blandað í vöruna.
Einu innflytjendur eiturlyfja sem ekki þurfa að hafa áhyggjur af þessu eru þeir sem flytja inn E pillur.
Eina E efnið í þeim er E.
Annars er þetta blogg út í hött.
Immagaddus segir..........................
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Sko. Síðast þegar ég keypti E stóð skýrum stöfum á pakkanum.
Best before: midnight.
Word verification dagsins er:
bchauvk
Sem er nákvæm lýsing á því hvernig teknótónlist hljómar án allra E-efna.
Skrifa ummæli