Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

miðvikudagur, júlí 18, 2007

Ferguson.

Var að tala um fótbolta við kunningja minn sem er Man U maður..
Málið barst að Alex Ferguson.
Og hann sagði.
" Alex Ferguson, vá maður.
Hann eldist bara eins og gott vín."

Þá sagði ég.
" Af hverju geymið hann þá ekki í tunnu?"


Immagaddus segir..................

2 ummæli:

Bjössi sagði...

Sko. Vín eldist best sé það geymt í flösku. Það eru viskí og konjakk sem eldast vel í tunnum.

Ferguson er oftast í glasi.

Word verification dagsins er:
znjpie
Sem er hljóðið sem kom á undan hausverknum.

Nafnlaus sagði...

Ég held reyndar að hann sé skástur í eik, en samt frekar í svona ílöngu apparati, ekki ívölu.

Word verifivation dagsins er:
xjvmw sem er röntgen á serbókróatísku.