Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

þriðjudagur, mars 11, 2008

Skrýtið???

M.b.l. Í dag.

Aðstæður tjarnarfugla óviðunandi

mynd
Skýrsluhöfundar segja aðstæður tjarnafugla óviðunandi. MYND/Vilhelm
Engar stokkendur, gargendur, duggendur eða skúfendur notuðu friðlandið í Vatnsmýri til varps á síðasta ári samkvæmt ársskýrslu tveggja fuglafræðinga um fuglalíf tjarnarinnar. Þeir segja aðstæður tjarnarfugla óviðunandi.

Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar að Ólafur K. Niels og Jóhann Óli Hilmarsson hafi tekið út fuglalífið við Tjörnina í fyrra og kveður í skýrslu þeirra við nokkuð dimman tón. Fram kemur að grágæsin sé algengasti varpfuglinn í friðlandinu en 19 hreiður á þeirra vegum fundust.

Hins vegar notuðu engar stokkendur, gargendur, duggendur eða skúfendur friðlandið til varps árið 2007. Þetta er óvænt niðurstaða að mati skýrsluhöfunda og veldur þeim áhyggjum því áður var töluvert andavarp á þessu svæði. Skýrsluhöfundar nefna afrán sem mögulega skýringu en kettir sækja stíft inn á friðlandið. Önnur möguleg skýring að mati höfunda er að gengið hefur verið á varplönd í næsta nágrenni friðlandsins með húsbyggingum, gerð bílastæða og veglagningum.

Þá kemur fram í skýrslunni að fjórar tegundur anda hafi reynt varp við Tjörnina 2007: stokkönd, duggönd, skúfönd og æður. Eitt gargandapar var á svæðinu um vorið en ekki er vitað hvort kollan gerði tilraun til varps en talið er að gargöndin sé að hverfa úr fánu Tjarnarinnar. Þessar fimm tegundir hafa verið árvissir varpfuglar við Tjörnina í áratugi. Urtönd og toppönd dvöldu langdvölum á svæðinu 2007 en urpu ekki.

Skýrsluhöfundar ráðleggja borgaryfirvöldum að ráða umsjónarmann, andapabba eða -mömmu, með Tjarnarfuglunum. Verksvið hans vor og sumar yrði að sinna þörfum fuglanna, líkt og undirbúa hólmana og friðlandið fyrir varp, verja varplöndin fyrir vargi, fóðra og verja andarunga og telja og vakta fuglanna. Hlutverkið að vetri til yrði að tryggja að vetursetufuglar hefðu nóg æti. Höfundar telja einnig að friðland Vatnsmýrannar þjóni í raun helst grágæsinni sem varpland.

Skýrsla fuglafræðinganna var kynnt í umhverfis- og samgönguráði í dag.

Uhhh!

Afsakið.

En ef það eru miklar framkvæmdir umferð og rask.

Og það er yfirlýst stefna að minnka Vatnsmýrina þangað til að þar er orðinn
nýr skóli umhverfis 2-4000 manna byggð.

Er varla neitt undarlegt við það að endur geti ekki þrifist þarna.

Ps.
Annars ef endurnar gætu talað myndu þær
eflaust segja.
Ástand tjarnafugla óviðunandi vegna Sílamáfs!



Immagaddus segir...........................

1 ummæli:

Bjössi sagði...

pj4kkur
Þegar nýi skólinn rís verða einu endurnar sem þrífast í Vatnsmýri.

Nem-endur.

Word verification dagsins er:
hvxlfza
Sem er grágæs að hvæsa á andapabba.