Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

föstudagur, apríl 07, 2006

Heilsuvernd.

Til að fá veikindadaga borgaða og til að skrásetja veikindi landsmanna.
Þarf að tilkynna öll veikindi til Heilsuverndar.

5106500.

Heilsuvernd Góðann daginn. Sirrilidin hjúkrunarfræðingur talar.
Ég: ( Rám rödd, já þessi sem er í öllum símum, allra hryllingsmynda samtímans). Ég er að tilkynna veikindi.
Sirrilidin: ( Eftir að hafa tekið niður nafn og kennitölu). Já og hvernig lýsir það sér?
Ég: ( Rám rödd, já þessi sem er í öllum símum, allra hryllingsmynda samtímans). Mér er illt í hægra hné.
Sirrilidin: Ha?
Ég: ( Rámari rödd, já þessi, þegar morðingin fer að æsast). Nei. Ég er með hálsbólgu.
Sirrilidin: Já. Ég heyri það. Hvernig lýsir það sér?
Ég: ( Ráma röddin komin á það stig að hún getur brotnað hvenær sem er). Með eymslum í Hægra hné.
Sirrilidin: Ha?
Ég: ( Ráma röddin er alveg kominn að því að verða helíumrödd). Auðvitað með hæsi. Ertu annars ekki hjúkrunarfræðingur?
Sirrilidin: Ha? Jú annars.
Ég: ( Ráma röddin orðin nokkuð fáránleg). Þurftir þú nokkuð að spyrja?
Sirrilidin: Ha? Spyrja að hverju?
Ég: ( Rám rödd að gefast upp). hvað væri að mér.
Sirrilidin. Ha? Nei. Ég er að fara eftir gátlista.
Sirrilidin: Gangi þér vel með hálsbólguna.
Ég: Hmm Takk.

Immagaddus segir.........

Engin ummæli: