Hvernig líður þér í buxum ömmu þinnar?

miðvikudagur, apríl 13, 2005

XXL, Kári klári og auðvitað liverpool.

Íslensk erfðagreining er að fara að gefa út nýtt greiðslukort.
Ætla að kalla það erfðavisa.
Góður vinnudagur undir nýju managementi,Sólskin í tún og allt það krapp.
Framkvæmdastjórinn sló á létta strengi við maddömuna. Sagði henni að hafa eitthvað gott í matinn, því Ólafur Ragnar Grímsson og Mússójeppinn ætluðu að koma og skoða kjötvinnsluna.
Maddaman panikkaði og fékk nett kast, andaði á tímabili það hratt að það myndaðist lofttæmi í húsinu. Stundi síðan útúrsér. " Ætti ég ekki að fara heim og skipta um föt."
Ái hvað hún er kjánaleg.
Allir vita að Ólafur færi aldrei með Mússójeppann í eina stærstu svínakjötvinnslu á landinu.
Phssstthhh!!!
Var að opna alveg ískaldann STELLA ARTOIS bjór.
Mmmmmmmmmmmm. Bjór.
Púllararnir mínir eru að fara að spila við Juve á eftir.
Er að fara að galla mig upp. Treyjan,hringirnir, bæði á fingur og í geirvörtur. Húfan,trefillinn
Vinningssvipurinn, tek tapsvipinn samt með til vara.
CISSE með í hópnum maður.
Sennilega meira eftir leik.

Immagaddus segir...................

1 ummæli:

Bjössi sagði...

Eins og maðurinn sagði, soldið eins og að horfa á íslenska landsliðið. Allavega hef ég sjaldan heyrt heilan sal af fólki fagna því eins og sigurmarki, þegar boltanum er sparkað uppí stúku. "Húrrei! nú fáum við ekki á okkur mark næstu 20 sekúndurnar!"

Hvernig fór leikurinn annars?